Hoppa yfir valmynd

1055/2021. Úrskurður frá 30. desember 2021.

Úrskurður

Hinn 30. desember 2021 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1055/2021 í máli ÚNU 21100006.

Kæra og málsatvik

Með erindi, dags. 14. október 2021, kærði A synjun Herjólfs ohf. á beiðni hans um gögn.

Með erindi, dags. 24. september 2021, óskaði kærandi eftir aðgangi að ráðningarsamningi yfirskipstjóra Herjólfs ohf. Í svarbréfi félagsins, dags. 7. október, segir að allar upplýsingar um starfsfólk séu meðhöndlaðar og varðveittar í samræmi við ákvæði laga og reglna á sviði persónuverndar. Félagið leggi áherslu á að tryggja að meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Félagið verði því ekki við beiðnum um upplýsingar um starfsfólk.

Í kæru segir kærandi að líta verða á yfirskipstjóra sem einn af æðstu embættismönnum Herjólfs ohf. og á þeim grundvelli skuli félagið úrskurðað til þess að afhenda ráðningarsamninginn.

Málsmeðferð

Kæran var kynnt Herjólfi ohf. með bréfi, dags. 26. nóvember, og félaginu veittur kostur á að koma á framfæri umsögn vegna hennar. Í umsögn Herjólfs ohf., dags. 1. desember 2021, er vísað í úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 860/2019 frá 13. desember 2019 þar sem reyndi m.a. á rétt til aðgangs að ráðningarsamningi framkvæmdastjóra Herjólfs ohf. Í því máli staðfesti úrskurðarnefndin synjun félagsins.

Niðurstaða

Í málinu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningi yfirskipstjóra Herjólfs ohf. Upplýsingalög nr. 140/2012 taka samkvæmt 2. mgr. 2. gr. til aðila sem teljast að 51% hluta eða meira í eigu hins opinbera, ríkisins eða sveitarfélaga. Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga er tekið fram að skylt sé, ef þess sé óskað, að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál, með þeim takmörkunum sem greinir í 6. - 10. gr. Sama gildir þegar óskað er aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum.

Í 7. gr. upplýsingalaga er fjallað um rétt almennings til aðgangs að upplýsingum um málefni starfsmanna aðila sem lögin taka til. Er meginreglan sú að réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna tekur ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti. Í 2. mgr. 7 gr. er að finna undantekningar frá þessari meginreglu hvað varðar opinbera starfsmenn og í 4. mgr. 7. gr. er að finna undantekningar varðandi starfsmenn lögaðila sem falla undir upplýsingalög samkvæmt 2. mgr. 2. gr. laganna. Þar kemur fram að skylt er að veita upplýsingar um nöfn og starfssvið starfsmanna, sbr. 1. tölul., og um launakjör og menntun æðstu stjórnenda, sbr. 2. tölul. málsgreinarinnar. Rétturinn til upplýsinga um málefni starfsmanna lögaðila sem falla undir upplýsingalög samkvæmt 2. mgr. 2. gr. er þannig þrengri en rétturinn til upplýsinga um opinbera starfsmenn. Af þessu leiðir að Herjólfi ohf. er ekki skylt að veita kæranda aðgang að ráðningarsamningi yfirskipstjóra. Þá er vísað til úrskurðar úrskurðarnefndarinnar nr. 860/2019 frá 13. desember 2019 þar sem nefndin komst að því að ráðningarsamningur framkvæmdastjóra Herjólfs ohf. væri undanþeginn upplýsingarétti samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga.

Úrskurðarorð:

Staðfest er synjun Herjólfs ohf., dags. 7. október 2021, á beiðni A um aðgang að ráðningarsamningi yfirskipstjóra félagsins.

Hafsteinn Þór Hauksson
formaður

Kjartan Bjarni Björgvinsson

Sigríður Árnadóttir

Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum