Hoppa yfir valmynd

1098/2022. Úrskurður frá 5. október 2022

Hinn 5. október 2022 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1098/2022 í máli ÚNU 22050023.

Kæra, málsatvik og málsmeðferð

Með erindi, dags. 25. maí 2022, kærði A tafir á afgreiðslu Tryggingastofnunar á beiðni hans um upplýsingar, dags. 22. apríl sama ár, um það hversu mikið peningaflæði væri á milli Trygginga­stofnunar og Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

Kæran var kynnt Tryggingastofnun með erindi, dags. 12. júní 2022, og skýringa óskað. Í svari Trygg­ingastofnunar, dags. 22. júní, kom fram að ekki yrði séð að stofnuninni hefði borist erindi kær­anda. Tryggingastofnun liti á erindi úrskurðarnefndarinnar frá 12. júní sem framsendingu á erindi kær­anda. Stofnunin svaraði erindi kæranda daginn eftir, þar sem óskað var eftir því að kærandi afmarkaði beiðni sína nánar í samræmi við 15. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.

Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 1. júlí 2022, var kæranda gefið færi á að tjá sig um svar Trygginga­stofnunar. Ekki bárust athugasemdir frá kæranda.

Niðurstaða

Samkvæmt þeim upplýsingum sem fyrir liggja í málinu barst Tryggingastofnun ekki erindi kæranda frá 22. apríl 2022. Stofnunin leit hins vegar á erindi úrskurðarnefndarinnar frá 12. júní 2022 sem fram­sendingu erindis kæranda og svaraði erindinu hinn 23. júní sama ár.

Af ákvæðum upplýsingalaga leiðir að úrskurðarvald úrskurðarnefndar um upplýsingamál er afmarkað við að fjalla um réttmæti synjunar á beiðni um aðgang að fyrirliggjandi gögnum samkvæmt lögunum og synjunar á beiðni um að afhenda fyrirliggjandi gögn á tiltæku formi. Þegar svo háttar til að beiðni um gögn hefur ekki borist kærða er ekki um að ræða synjun á aðgangi að gögnum sem kæranleg er til nefndarinnar á grundvelli 1. mgr. 20. gr. laganna. Verður því að vísa kærunni frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Úrskurðarorð

Kæru A, dags. 25. maí 2022, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Hafsteinn Þór Hauksson, formaður
Kjartan Bjarni Björgvinsson
Sigríður Árnadóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum