Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 653/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 653/2024

Fimmtudaginn 6. mars 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. desember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2024, um að hann uppfyllti ekki skilyrði til greiðslu desemberuppbótar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á tímabilinu júní 2023 til og með október 2024. Með erindi, dags. 11. desember 2024, óskaði kærandi eftir upplýsingum frá Vinnumálastofnun um hvort hann fengi greidda desemberuppbót frá stofnuninni. Með tölvupósti Vinnumálastofnunar, dags. sama dag, var kæranda tilkynnt að hann ætti ekki rétt til greiðslu desemberuppbótar frá Vinnumálastofnun þar sem hann hefði ekki verið á atvinnuleysisskrá í nóvember 2024 en það væri eitt af skilyrðum fyrir greiðslu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. desember 2024. Með bréfi, dags. 18. desember 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Með tölvupósti Vinnumálastofnunar, dags. 20. desember 2024, óskaði stofnunin eftir frekari fresti til að koma gögnum og umsögn til úrskurðarnefndar. Með tölvupósti úrskurðarnefndar, dags. 2. janúar 2025, var stofnuninni veittur frekari frestur til 4. janúar 2025. Beiðni um greinargerð og gögn málsins var ítrekuð af úrskurðarnefnd þann 23. janúar 2025. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 27. janúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. janúar 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því í kæru að hann mótmæli því að desemberuppbót Vinnumálastofnunar sé aðeins greidd til þeirra sem hafi staðfest atvinnuleit í nóvember. Kærandi hafi verið í atvinnuleit allt árið 2024 en fengið samning hjá atvinnurekanda 1. nóvember 2024 með ráðningarstyrk Vinnumálastofnunar. Hann telji því ekki sanngjarnt að aðili sem hafi verið í atvinnuleit allt árið fái ekki desemberuppbót og sér í lagi þar sem kærandi sé í atvinnuúrræði á vegum Vinnumálastofnunar. Að mati kæranda væri réttast að hann fengi hlutfallslega uppbót, þ.e. 11 mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 23. maí 2023. Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 16. júní 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að bótaréttur hans væri 100%. Kærandi hafi hafið störf hjá B þann 1. nóvember 2024 og því verið afskráður af atvinnuleysisskrá frá og með þeim degi. Starf kæranda hjá fyrirtækinu hafi verið hluti af vinnumarkaðsúrræði Vinnumálastofnunar um ráðningu með styrk, sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 918/2020.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar er rakið að þann 11. desember 2024 hafi kærandi sent Vinnumálastofnun tölvupóst og óskað eftir upplýsingum um hvort hann fengi greidda desemberuppbót. Erindi kæranda hafi verið svarað samdægurs og honum tjáð að hann uppfyllti ekki skilyrði fyrir greiðslu desemberuppbótar þar sem hann hafi ekki verið skráður atvinnulaus í nóvember 2024. Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 12. desember 2024.

Í greinargerðinni kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Í 3. mgr. 33. gr. sé ráðherra fengin heimild til að setja reglugerð um nánari framkvæmd laganna og að ákveða í reglugerð, að fengnu samþykki ríkisstjórnarinnar, að greiddar séu sérstakar desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur í lok hvers árs að uppfylltum nánar tilteknum skilyrðum.

Þann 19. nóvember 2024 hafi tekið gildi reglugerð nr. 1291/2024 um desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur sem sett hafi verið á grundvelli heimildar 3. mgr. 33. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 2. gr. reglugerðarinnar sé kveðið á um að sá sem staðfest hefur atvinnuleit sína á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2024 og verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2024 eigi rétt á desemberuppbót að fjárhæð 104.955 kr., enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður samkvæmt III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma. Þá sé í 3. og 4. gr. reglugerðarinnar kveðið á um hlutfallslegan rétt atvinnuleitanda til desemberuppbótar, sem sé þó ávallt háður því skilyrði að viðkomandi atvinnuleitandi hafi staðfest atvinnuleit sína á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2024.

Vinnumálastofnun byggi á því, eins og áður segi, að kærandi hafi hafið störf á nýjum vinnustað þann 1. nóvember 2024. Því sé ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði fyrir greiðslu desemberuppbótar samkvæmt reglugerð nr. 1291/2024, enda hafi hann hvorki verið skráður atvinnulaus í nóvember 2024 né staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2024, líkt og áskilið sé í reglugerð. Það að upphaf ráðningar kæranda hafi verið hluti af vinnumarkaðsúrræði Vinnumálastofnunar breyti ekki þeirri niðurstöðu. Kærandi eigi því ekki rétt á greiðslu desemberuppbótar í desember 2024.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi eigi ekki rétt til greiðslu desemberuppbótar á grundvelli reglugerðar nr. 1291/2024.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi eigi ekki rétt á greiðslu desemberuppbótar fyrir árið 2024.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gilda um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laganna er að tryggja launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir eru að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt.

Í 3. mgr. 33. gr., sbr. 64. gr. laga nr. 54/2006, er ráðherra fengin heimild til að setja reglugerð um nánari framkvæmd laganna. Þann 19. nóvember 2024 var á grundvelli þeirrar heimildar sett reglugerð nr. 1291/2024 um desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur. Þar segir í 2. gr. að þau sem hafi staðfest atvinnuleit sína á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2024 og verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2024 eigi rétt á desemberuppbót að fjárhæð 104.955 kr., enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður samkvæmt III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma. Þá er í 3. og 4. gr. reglugerðarinnar kveðið á um hlutfallslegan rétt atvinnuleitanda til desemberuppbótar sem er þó ávallt háður því skilyrði að viðkomandi atvinnuleitandi hafi staðfest atvinnuleit sína á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2024.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu júní 2023 til og með október 2024. Í 2.-4. gr. framangreindrar reglugerðar er skýrt kveðið á um það skilyrði greiðslu desemberuppbótar að hún greiðist eingöngu til þeirra sem hafi staðfest atvinnuleit sína á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2024. Kærandi hóf störf þann 1. nóvember 2024 hjá B og var því skráður af atvinnuleysisskrá frá þeim degi. Vegna þessa gat kærandi ekki staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2024 og átti því ekki rétt á greiðslu desemberuppbótar á árinu 2024 á grundvelli reglugerðar nr. 1291/2024. Er hin kærða ákvörðun því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2024, um að A, eigi ekki rétt á greiðslu desemberuppbótar 2024, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta