1267/2025. Úrskurður frá 9. apríl 2025
Hinn 9. apríl 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1267/2025 í máli ÚNU 25040003.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 31. mars 2025, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál tafir sem hefðu orðið á afgreiðslu ríkissaksóknara á erindi hans. Með erindi, dags. 20. mars 2025, óskaði kærandi eftir að ríkissaksóknari legði fyrir Lögregluna í Vestmannaeyjum að afhenda honum lögregluskýrslur vegna rannsóknar á tjóni á vatnsleiðslu milli lands og Vestmannaeyja.
Niðurstaða
Upplýsingaréttur almennings tekur samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál og aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum. Þegar aðili sem heyrir undir gildissvið laganna tekur á móti erindi sem ber með sér að vera beiðni um aðgang að gögnum á hann að athuga hvort fyrir liggi annaðhvort þau gögn sem beinlínis er óskað eftir eða gögn sem innihalda þær upplýsingar sem tilgreindar eru í beiðninni og taka ákvörðun um hvort aðgangur að gögnunum á grundvelli upplýsingalaga verði veittur.
Af upplýsingalögum verður ekki leidd sambærileg skylda til að svara erindum sem bera ekki með sér að vera beiðnir um aðgang að gögnum. Ekki er útilokað að skylt kunni að vera að bregðast við slíkum erindum, sbr. 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og óskráða leiðbeiningarreglu þess efnis að stjórnvöldum sé skylt að veita þeim sem til þeirra leita nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar varðandi þau mál sem snerta starfssvið þeirra. Hins vegar er það ekki hlutverk úrskurðarnefndar um upplýsingamál að skera úr um rétt beiðanda til að fá svar við slíku erindi eða ágreining um það hvort erindinu hafi verið svarað með fullnægjandi hætti, enda byggja kæruheimildir til nefndarinnar í upplýsingalögum á því að beðið hafi verið um aðgang að gögnum, sbr. 3. mgr. 17. gr. og 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga. Þá þarf og að liggja fyrir beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt upplýsingalögum til að kæru, vegna óhóflegs dráttar á afgreiðslu máls samkvæmt 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, teljist réttilega beint til úrskurðarnefndarinnar.
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir erindi kæranda til ríkissaksóknara og telur erindið ekki bera með sér að vera beiðni um gögn í skilningi upplýsingalaga heldur beiðni um að embættið hlutist til um afhendingu gagna frá öðru stjórnvaldi. Af þeim sökum er óhjákvæmilegt að vísa kærunni frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð
Kæru […], dags. 31. mars 2025, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir