1268/2025. Úrskurður frá 9. apríl 2025
Hinn 9. apríl 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1268/2025 í máli ÚNU 25040005.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 3. apríl 2025, kærði […], fréttamaður á Ríkisútvarpinu, til úrskurðanefndar um upplýsingamál ákvörðun skrifstofu Alþingis að synja honum aðgang að gögnum. Kærandi óskaði eftir að fá afhent bréf sem bárust Alþingi frá fyrrverandi umboðsmanni Alþingis í tengslum við skipun núverandi umboðsmanns Alþingis.
Eins og mál þetta er vaxið taldi úrskurðarnefndin óþarft að kynna kæruna skrifstofu Alþingis og veita kost á að koma á framfæri umsögn um kæruna, sbr. 2. mgr. 22. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.
Niðurstaða
Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, taka lögin til allrar starfsemi stjórnvalda. Í athugasemdum við ákvæðið í greinargerð með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að undir ákvæðið falli einungis þeir aðilar sem falið er að fara með stjórnsýslu og teljist til handhafa framkvæmdarvalds í ljósi þrískiptingar ríkisvaldsins. Með lögum nr. 72/2019 um breytingu á upplýsingalögum var bætt við ákvæði í 4. mgr. 2. gr. laganna, þar sem segir eftirfarandi:
Lög þessi taka til stjórnsýslu Alþingis eins og nánar er afmarkað í lögum um þingsköp Alþingis og reglum forsætisnefndar sem settar eru á grundvelli þeirra. [...] Ákvæði V.–VII. kafla taka ekki til Alþingis eða stofnana þess.
Í athugasemdum við ákvæðið í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 72/2019 kemur fram að tilgangur ákvæðisins sé verið að víkka út upplýsingarétt almennings yfir þá starfsemi handhafa löggjafarvalds sem ætti hvað mest skylt við stjórnsýslu, til að mynda ráðstöfun fjárveitinga, innkaup og önnur fjármál, starfsmannahald, símenntun og þjónustu, upplýsinga- og tæknimál og önnur atriði sem falla undir hugtakið rekstur í víðum skilningi. Hins vegar væri gert ráð fyrir að Alþingi sjálft myndi með reglum sem forsætisnefnd setti á grundvelli laga um þingsköp Alþingis skilgreina hvaða gögn vörðuðu stjórnsýslu Alþingis og hvaða gögn vörðuðu starfsemi Alþingis sem fulltrúasamkomu. Reglur forsætisnefndar eru aðgengilegar á vef Alþingis.
Í framangreindri 4. mgr. 2. gr. upplýsingalaga kemur fram að ákvæði V.–VII. kafla laganna taki ekki til Alþingis eða stofnana þess. Ákvæði um úrskurðarnefnd um upplýsingamál, þar á meðal um kæruheimild til nefndarinnar, er að finna í V. kafla laganna. Það er því ljóst að ákvarðanir Alþingis um aðgang að gögnum, hvort sem þau varða stjórnsýslu Alþingis eða starfsemi Alþingis sem fulltrúasamkomu, sæta ekki kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Því er óhjákvæmilegt að vísa kærunni frá nefndinni.
Úrskurðarorð
Kæru […], dags. 3. apríl 2025, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Sigríður Árnadóttir