Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 307/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 25. maí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 307/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23040007

 

Kæra […]

og barna hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 3. apríl 2023 kærði einstaklingur er kveðst heita […],vera fædd […] og vera ríkisborgari Nígeríu (hér eftir nefnd kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 21. mars 2023 um að synja henni og börnum hennar, sem hún kveður heita […], fætt […], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir A) og […], fætt […], ríkiborgara Nígeríu (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að henni og börnum hennar verði veitt staða flóttamanna hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að henni og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi hvað varðar brottvísun og endurkomubann hennar og að henni verði veittur 30 daga frestur til sjálfviljugrar heimfarar.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 14. apríl 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. 6. september 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 18. október 2022, synjaði Útlendingastofnun kæranda og börnum hennar um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Með úrskurði kærunefndar nr. 15/2023, dags. 19. janúar 2023, voru ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi og stofnuninni gert að taka mál kæranda og barna hennar til meðferðar að nýju. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 15. mars 2023 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 21. mars 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda og börnum hennar um alþjóðlega vernd ássamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ákvarðanir Útlendingastofnunar kærðar til kærunefndar útlendingamála 3. apríl 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 21. apríl 2023 ásamt fylgiskjali. Viðbótarathugasemdir frá kæranda bárust kærunefnd 11. og 17. maí 2023.

III.    Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna ofsókna af hálfu tiltekinnar fjölskyldu í landinu.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og henni skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í máli barna kæranda kom fram að B væri svo ungt að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við það en A hafi mætt til viðtals hjá Útlendingastofnun 14. júní 2022. Fram kom að umsóknir barna kæranda væru grundvallaðar á framburði móður þeirra og henni hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun í máli móður hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldris þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að börnum kæranda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni til heimaríkis.

Kæranda var brottvísað frá landinu og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem henni hefði verið veittur yrði endurkomubann hennar fellt niður. Börnum kæranda var brottvísað frá landinu.

Útlendingastofnun tilkynnti kæranda og börnum hennar jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til frásagnar hennar í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Þar hafi kærandi greint frá því að vera frá þorpinu […] í Edo fylki í Nígeríu. Kærandi hafi upplifað mikla fátækt og mikið mótlæti, allt frá barnsaldri. Afar ung hafi hún verið þolandi kynfæralimlestingar, á táningsaldri hafi henni verið nauðgað og nokkru síðar hafi hún verið seld af föður sínum í hjónaband með mun eldri manni. Þegar hann hafi dáið hafi fjölskylda hans farið að ofsækja kæranda þar sem faðir hennar hafi skuldað þeim peninga. Kærandi hafi þá flúið Nígeríu og verið þvinguð í vændi í Líbíu. Kærandi hafi greint frá því að eiga tvö börn í Nígeríu sem búi hjá móður hennar. Þá hafi hún greint frá því að hafa takmarkaða menntun og eigi erfitt með að lesa og skrifa. Eftir að kærunefnd hafi kveðið upp úrskurð nr. 15/2023 hafi kærandi staðfest frásögn sína í viðtali hjá Útlendingastofnun þó nákvæmar tímasetningar og atburðarás hafi stundum verið á reiki. Kærandi hafi eignast báðar dætur sínar í kjölfar kynferðisofbeldis. Þá hafi báðar dætur hennar í Nígeríu sætt kynfæralimlestingum, m.a. af hendi móður kæranda, þ.e. ömmu þeirra. Kærandi óttist að yngsta dóttir hennar sæti kynfæralimlestingu verði hún send aftur til Nígeríu. Þá hafi hún greint frá því að barnsfaðir tveggja yngstu barnanna hafi hvorki verið tengdur mansalinu á henni né þvingaða vændinu í Líbíu. Varðandi auðkenni kæranda og barna hennar telur kærandi að auðkenni þeirra sé sannað og mótmælir hún því niðurstöðu Útlendingastofnunar um að þau hafi ekki sannað auðkenni sitt.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi átt erfitt með að rifja upp sögu sína og að hún myndi illa atriði úr fortíð sinni. Hún hafi greint frá því að hún væri stressuð og ætti erfitt með að skilja spurningarnar. Lagði kærandi fram gögn félagsráðgjafa því til stuðnings að sökum áfalla væri eðlilegt að hún ætti erfitt með að muna atburði úr fortíð sinni. Yfirlestur á viðtölum kæranda hjá Útlendingastofnun hafi ekki farið fram sem skerði að mati kæranda trúverðugleika málsmeðferðar Útlendingastofnunar. Í því samhengi vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 43/2020. Gerir kærandi athugasemd við að Útlendingastofnun hafi lagt frásögn hennar til grundvallar að nær öllu leyti nema þegar komi að hinu þvingaða hjónabandi hennar. Hafnar kærandi jafnframt þeirri fullyrðingu Útlendingastofnunar að henni standi til boða vernd stjórnvalda í Nígeríu. Vísar kærandi m.a. til skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins því til stuðnings. Þá glími kærandi við mikil andleg vandamál vegna ýmissa áfalla sem hún hafi greint frá í viðtölum. Þá hafi barn kæranda, A, lýst óheilbrigðu fjölskylduástandi. Sé vafi að mati kærunefndar á því hvort kærandi glími við andleg vandamál telur kærandi að nefndinni sé skylt að afla frekari heilsufarsgagna. Bendir kærandi jafnframt á að grundvallarreglan um það sem barni sé fyrir bestu skuli ávallt höfð að leiðarljósi og gangi framar reglunni um einingu fjölskyldunnar. Horfa þurfi m.a. til slæmrar heilsu kæranda, fátæktar hennar, lítillar menntunar hennar og lítils stuðnings fjölskyldu hennar. Mikilvægt sé að kærunefnd framkvæmi ítarlegt og einstaklingsbundið mat á aðstæðum barna kæranda, A og B, og bæti þannig úr ágöllum hvað það varðar í ákvörðunum Útlendingastofnunar.

Kærandi krefst þess aðallega að henni og börnum hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi sé aðili að tilteknum þjóðfélagshópi, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga sem þolandi mansals. Jafnframt tilheyri barn kæranda, B, tilteknum þjóðfélagshópi vegna kyns síns og hættunnar á að sæta kynfæralimlestingu og/eða öðru kynbundnu ofbeldi í Nígeríu. Vísar kærandi m.a. til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi laganna. Kærandi hafi sætt miklu ofbeldi frá barnsaldri, verið seld mansali, m.a. af föður sínum, og þvinguð í vændi í Líbíu. Kærandi eigi í takmörkuðum samskiptum við fjölskyldu sína og því hafi hún ekki möguleika á stuðningi frá fjölskyldu sinni. Kærandi muni eiga í vandræðum með að styðja og ala upp börn sín í heimaríki og sýni framlögð gögn hennar fram á það. Kærandi eigi erfitt með að muna atburði og hafi skýrt vel það misræmi sem finna megi í framburði hennar. Þá telur kærandi að ákvæði a- og c-liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga eigi við í máli hennar þar sem nígerísk yfirvöld verndi ekki konur með lagasetningu og framfylgd laga og geti ekki veitt kæranda vernd gegn ofsóknum.

Kærandi telur að með endursendingu hennar og barna hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Einnig yrði brotið gegn samningi Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum og samningi Evrópuráðsins og forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að henni og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og börn hennar séu í viðkvæmri stöðu þar sem kærandi sé einstæð móðir og líta þurfi til skorts á öryggi, þau mannréttindabrot sem eigi sér stað í Nígeríu og þeirra átaka sem geisi í landinu, m.a. milli stjórnvalda og Boko Haram sem og ISIS. Raunhæf hætta sé á að þau láti lífið eða verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða alvarlegum skaða af völdum handahófskennds ofbeldis snúi þau til baka. Þá væri óraunhæft og ósanngjarnt að ætlast til þess að kærandi og börn hennar settust að annar staðar í Nígeríu.

Til þrautavara krefst kærandi þess að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, vegna heilbrigðissjónarmiða, erfiðra félagslegra aðstæðna þeirra og erfiðra almennra aðstæðna í Nígeríu. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis þegar útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Kærandi vísar m.a. til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Þar komi fram að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki. Sérstaklega sé tekið sem dæmi aðstæður kvenna sem hafi sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt geti til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki felli sig við kynhlutverk sem sé hefðbundið í heimaríki þeirra og eigi því á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að kærandi glími við andleg veikindi og börn kæranda þurfi nauðsynlega stuðning og aðstoð sérfræðinga hér á landi. Þá sé geðheilbrigðiskerfið í Nígeríu ekki gott. Kærandi telur að hún og börn hennar hafi jafnframt ríka þörf fyrir vernd vegna erfiðra félagslegra aðstæðna. Þau eigi ekki bakland í Nígeríu sem geti stutt þau. Þá geti kærandi lítið skrifað og lesið og muni af þeim sökum eiga erfiðara með að finna vinnu. Útlendingastofnun hafi lagt til grundvallar að kærandi geti búið fjarri fjölskyldu sinni í þeim tilgangi að vernda dóttur sína gegn kynfæralimlestingu en hafi þó einnig lagt til grundvallar að kærandi geti notið stuðnings fjölskyldu sinnar. Fullyrðing Útlendingastofnunar um að kærandi teljist fær um að annast börn sín sé órökstudd. Eining fjölskyldunnar sé börnunum aðeins fyrir bestu þegar kærandi fái nauðsynlegan stuðning. Þá telur kærandi að hún og börn hennar hafi ríka þörf fyrir vernd þegar litið sé til almennra aðstæðna í landinu. Þau myndu eiga erfitt uppdráttar í Nígeríu vegna öryggisleysis, skorts á virðingu fyrir lífi og mannréttindum einstaklinga, hins almenna ástands þar í landi, þeirra ofsókna sem kærandi hafi sætt og myndi aftur sæta, skorts á félagslegum stuðningi, stöðu kæranda og B sem konur, aldurs A og B og andlegra veikinda kæranda.

Kærandi krefst þess til þrautaþrautavara að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi hvað varðar brottvísun og endurkomubann hennar og að henni verði veittur 30 daga frestur til sjálfviljugrar heimfarar. Með lögum nr. 136/2022 um landamæri hafi verið gerðar breytingar á lögum um útlendinga án þess þó að kveðið væri á um lagaskil við þær breytingar. Jafnvel þótt sú meginregla ríki að nýjum lagareglum verði beitt um lögskipti sem undir þau falli þótt til þeirra hafi verið stofnað fyrir gildistöku þeirra, enda ráðist réttarstaða manna af lögum eins og þau séu hverju sinni, sé þeirri meginreglu settur fyrirvari í m.a. dómi Hæstaréttar frá 30. nóvember 2017 í máli nr. 655/2016. Þar komi skýrlega fram í rökstuðningi að nýjum lögum megi ekki beita þegar um íþyngjandi og afturvirka lagasetningu sé að ræða. Vísar kærandi einnig til álits umboðsmanns Alþingis nr. 1832/1996 máli sínu til stuðnings. Kærandi hafi sótt um vernd á Íslandi 14. apríl 2022 og haft réttmætar væntingar til þess að um umsókn sína og barna sinna giltu þágildandi ákvæði laga. Krefst kærandi því þess að kærunefnd ákveði henni og börnum hennar ekki brottvísun og endurkomubann heldur verði þeim öllum gefinn 30 daga frestur til sjálfviljugrar heimfarar. Verði það niðurstaða kærunefndar að brottvísa kæranda og ákvarða henni endurkomubann bendir hún á að hún hafi haft dvalarleyfi á Möltu og að barnsfaðir hennar dvelji einnig í Evrópu og því þurfi að meta hvort að brottvísun hennar og barna hennar teljist ósanngjörn ráðstöfun.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kemur fram að til að sanna á sér deili hafi hún framvísað vegabréfum fyrir útlendinga, útgefnum á Möltu, með gildistíma til 4. mars 2023, fyrir sig og börn sín. Var það mat Útlendingastofnunar að kærandi og börn hennar hefðu ekki sannað hver þau væru með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni þeirra á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi og börn hennar væru frá Nígeríu. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi og börn hennar séu nígerískir ríkisborgarar en að öðru leyti er auðkenni þeirra ósannað.

Réttarstaða barna kæranda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 16 Facts About Violence Against Women and Girls in Nigeria (UNICEF, 22. nóvember 2022);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Report on International Religious Freedom: Nigeria (U.S. Department of State, 2. júní 2022);
  • 2022 Trafficking in Persons Report: Nigeria (U.S. Department of State, 19. júlí 2022);
  • Actors of Protection - Nigeria (EUAA, nóvember 2018);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Nigeria (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Country Guidance: Nigeria – Common analysis and guidance note (EUAA, 19. október 2021);
  • Country Information Note – Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021);
  • Country of Origin report – Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, 22. júní 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, október 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
  • Country Policy and information note- Nigeria: Female genital mutilation (FGM) (U.K. Home Office, júlí 2022);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, apríl 2022);

  • Country Policy and Information Note: Nigeria: Women fearing gender-based harm or violence (UK Home Office, ágúst 2016);
  • DFAT Country Information Report – Nigeria (Australian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
  • EASO Country Guidance – Nigeria – Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
  • EASO COI Meeting Report: Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 22. ágúst 2017);
  • EASO COI Report – Nigeria – Trafficking in human beings (EUAA, 25. apríl 2021);
  • Freedom in the World 2023 – Nigeria (Freedom House, 2023);

  • Health care in Nigeria, Challenges and recommendations (https://socialprotection.org/discover/blog/health-care-nigeria-challenges-and-recommendations, 7. febrúar 2019);
  • Information on trafficking including situation for returness of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
  • Key socio-economic indicators (EUAA, nóvember 2018);
  • Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
  • National strategy to end child marriage in Nigeria 2016-2021 (Federal Ministry of Women Affairs and Social Development, 29. nóvember 2016);
  • Nigeria – Country Focus (EUAA, júní 2017);

  • Nigeria: Delstaten Edo – det nigerianska navet för migration och mannskohandel (1.0) (Migrationsverket, 16. desember 2019);
  • Nigeria Police Effectiveness (Ireland - Refugee Documentation Centre (RDC), 9. september 2019);
  • Nigeria – Security situation (EUAA, júní 2021);

  • Nigeria – Trafficking and re-trafficking (Ireland – Refugee Documentation Centre (RDC)), 16. júní 2019);
  • Ninth Report on Violence in Nigeria (Nigeria Watch, 2019);
  • Nigeria: Returforhold for kvinner som har arbeidet i prostitusjon i Europa (Landinfo, 20. mars 2017);

  • Nigeria. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
  • Prevalence and management of child sexual abuse cases presented at Nigerian hospitals: A systematic review (Journal of Health and Social Sciences, janúar 2018);
  • Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014en.pdf);
  • Taking Action and Finding Safe Spaces: Supporting Child Survivors of Sexual Abuse (https://nigeriahealthwatch.com/taking-action-and-finding-safe-spaces-supporting-child-survivors-of-sexual-abuse/, 28. júlí 2021);
  • Targeting of individuals - Nigeria (EUAA, nóvember 2018);
  • The World Factbook - Nigeria (CIA, uppfært 16. maí 2023);
  • Upplýsingar á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (https://www.interpol.int/Who-we-are/Member-countries/Africa/NIGERIA);
  • Violent Extremist in West Africa (Denmark – Immigration Service, COI Division, 28. júní 2020);
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Nigeria (Minority rights group International, janúar 2018) og
  • World Report 2023 – Nigeria (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Nígería er sambandslýðveldi með um 230 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2022 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun á lögreglumönnum sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.

Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022, að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2021 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Commission (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmannsins í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórn lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 kemur fram að sérstök viðbragðsdeild vegna kvartana yfir störfum lögreglu hafi unnið að því að byggja upp traust almennings til lögreglunnar. Deildin taki á móti kvörtunum vegna starfa lögreglunnar og auðveldi úrlausn slíkra mála. Í skýrslu Amnesty International fyrir árið 2021 kemur fram að í Lagos hafi sérstakt viðbragðsteymi gegn heimilis- og kynferðisofbeldi verið gert að sérstakri stofnun til þess að efla baráttu í fylkinu gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Stofnunin (e. Domestic and Sexual Violence Agency (DSVA)) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá júní 2021 er öryggisástand landsins hvað verst í norðurhluta Nígeríu þar sem hryðjuverkahópurinn Boko Haram ber ábyrgð á morðum mörg þúsund íbúa. Öryggisástand í norðurhluta og norðausturhluta Nígeríu hafi farið versnandi á árunum 2019 og 2020 og yfirvöld á viðkomandi svæðum geti einungis veitt takmarkaða vernd. Átök og árásir af hálfu hryðjuverkahópa hafi jafnframt farið að gera vart við sig í norðvesturhluta Nígeríu frá árinu 2019. Helstu átök í suðurhluta Nígeríu megi rekja til ágreinings í tengslum við olíuauðlindir á svæðinu. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2021 hafa öryggissveitir Nígeríu sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki tekist að útrýma hættunni sem stafi af Boko Haram, en talið sé að til þess þurfi öryggissveitir landsins meiri mannafla, vopn, þjálfun og fjármagn. Yfirvöld hafi þó gripið til ýmissa aðgerða í þeim tilgangi að útrýma hryðjuverkahópum, þ. á m. Boko Haram, en með takmökuðum árangri.

Fram kemur í framangreindum gögnum að ofbeldi gegn börnum sé útbreitt í Nígeríu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafi unnið í samvinnu með yfirvöldum í Nígeríu, m.a. við að bæta lagaumgjörð um vernd barna gegn ofbeldi, breyta viðurkenndum félagsháttum sem feli í sér hættulegar hefðir líkt og kynfæralimlestingar og barnahjónabönd, auk þess sem unnið hafi verið að styrkingu félagslegrar þjónustu og barnaverndarstarfs þar í landi. Þá hafi yfirvöld samþykkt aðgerðaráætlun, National Strategy to End Child Marriage in Nigeria (2016-2021) með það að markmiði að útrýma barnahjónaböndum fyrir árið 2030. Jafnframt vinni yfirvöld hörðum höndum að aðgerðaráætlun sem feli m.a. í sér forvarnarstarf meðal ráðuneyta og stofnana með það að markmiði að stöðva ofbeldi gagnvart börnum. Í framangreindum gögnum kemur fram að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Árið 2003 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt lög um réttindi barnsins (e. The Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið lögfesti reglurnar heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis einnig að færa regluverkið í fylkislöggjöf svo löggjöfin taki gildi í hverju fylki. Árið 2016 hafi 24 af 36 fylkjum tekið lögin í gildi og séu flest þeirra í suðurhluta Nígeríu, m.a. Edo fylki. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu. Í ársskýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að í september 2022 hafi Nígería fullgilt samning Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) gegn ofbeldi og áreitni á vinnustað. Nígería er fyrsta ríki Vestur-Afríku til að fullgilda samninginn og það áttunda í heiminum.

Samkvæmt framangreindum gögnum, þ. á m. skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá júlí 2022 og EASO frá 2019, er umskurður á konum og stúlkubörnum útbreiddur í Nígeríu en talið sé að um 10% umskurða í Afríku eigi sér stað í Nígeríu. Algengt sé að stúlkur yngri en fimm ára séu þolendur umskurða. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-20%. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að þær verði þolendur umskurðar. Samkvæmt nígerískum alríkislögum er umskurður á konum og stúlkum þó refsiverður verknaður. Lögin gildi hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem kærandi hafði búsetu. Þá mæli lög fyrir um a.m.k. þriggja ára fangelsisvist, sekt sem samsvari rúmlega 8 þúsund bandaríkjadollurum eða hvoru tveggja ef fólk framkvæmir umskurð á konum eða stúlkum. Fram kemur að í sumum tilvikum álíti lögreglan í Nígeríu umskurð kvenna vera einkamál fjölskyldunnar og í öðrum tilfellum styðji lögreglufulltrúar jafnvel aðgerðina. Aftur á móti hafi lögregluyfirvöld í Nígeríu hafið samstarf bæði með stjórnvöldum og frjálsum félagasamtökum við að bæta viðhorf og viðbrögð lögreglu við umskurði kvenna og öðrum hættulegum hefðum. Meðal annars hafi verið stofnuð sérstök deild innan lögreglunnar sem rannsaki kynbundið ofbeldi, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Þá séu flestir íbúar Nígeríu andsnúnir umskurði á konum og stúlkum og hafi m.a. ýmsir leiðtogar hvatt til afnáms á hefðinni. Komið hafi verið á fót aðgerðaráætlun, The National Policy and Plan of Action for the Elimination of FGM in Nigeria (2013-2017), með það að markmiði að afnema umskurð kvenna en aðgerðirnar hafi m.a. falið í sér fræðslu innan heilbrigðisstofnana, stjórnvalda, skóla, mismunandi samfélaga og víðar um bann gegn umskurði. Þá geti konur leitað til lögreglu, umboðsmanns, kirkna eða moskna, frjálsra félagasamtaka og athvarfa eigi þær á hættu umskurð. Þá sé afnám umskurðar eitt af markmiðum aðgerðaráætlunar til ársins 2030 um sjáflbærni (e. 2030 Agenda for Sustainable Development) sem samþykkt var árið 2015. Þrátt fyrir framfarir sé erfitt að afnema umskurð kvenna og stúlkna í Nígeríu, m.a. vegna þess að verknaðurinn sé enn löglegur í sumum fylkjum, skortur sé á fræðslu meðal íbúa og á eftirliti með framkvæmd laganna. Fram kemur að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra en ömmur og afar stúlknanna, ásamt elstu konunni í ætt fjölskyldu föður stúlkunnar, geti einnig haft áhrif á þá ákvörðun. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis.

Samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2022 sætir ein af hverjum fjórum stúlkum í Nígeríu kynferðisofbeldi. Talið sé að tæplega eitt prósent gerenda kynferðisbrota, sem tilkynntir séu til lögreglu, endi á að verða leiddir fyrir dóm og nánast engin mál endi með sakfellingu þeirra. Þolendur treysti margir hverjir ekki réttarkerfinu í Nígeríu og tilkynni því ekki brotin. Algengara sé að málin séu leyst utan réttarkerfisins. Ástæðu þess megi m.a. rekja til þekkingarskorts þolenda á lögunum og réttindum sínum, auk þess sem samfélagsleg viðhorf réttlæti misnotkun, ofbeldi og skömm þolenda. Slíkt leiði til refsileysis gerenda. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Nigeria Health Watch skorti sálfræðinga og annað fagfólk til að styðja við börn sem séu þolendur kynferðisofbeldis í Nígeríu.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2022 kemur fram að Nígería hafi gerst aðili að Maputo viðaukanum við mannréttindasáttmála Afríkuríkja árið 2003. Þar með hafi ríkið gengist undir skyldu til þess að tryggja þolendum kynbundins ofbeldis aðgengi að innlendum og svæðisbundnum dómstólum til þess að leita réttar síns. Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sem gefin var út í mars 2023 kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunun þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú í mörgum tilfellum að konur erfi ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Það sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og í sumum ríkjum sé það félagslega samþykkt. Þá tíðkist einnig afskiptaleysi meðal lögreglunnar í slíkum málum.

Í skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá því í júlí 2019 og apríl 2022 kemur fram að Nígería sé upprunaland, viðkomustaður og áfangastaður mansals og nauðungarvinnu. Flestir þolendur mansals komi frá borginni Benín í Edo fylki. Fram kemur að nígerísk stjórnvöld uppfylli ekki enn lágmarksviðmið ríkja vegna baráttu gegn mansali en hafi þó tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og koma í veg fyrir mansal. Gerðar hafi verið ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök löggjöf sett til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Þá hafi stjórnvöld, í samvinnu við alþjóðleg samtök og önnur ríki, þjálfað lögreglulið landsins, starfsmenn ríkisins og stofnanir til að gera þeim betur kleift að rannsaka, sækja til saka og sakfella gerendur mansals. Árið 2003 hafi tekið gildi lög sem komu stofnuninni NAPTIP (e. the National Agency for the Prohibition of Traffic in Persons and Other Related Matters) á laggirnar. Markmið NAPTIP sé að vekja athygli á málefninu, fræða þjóðina og með þeim hætti að reyna að koma í veg fyrir frekara mansal, vernda þolendur mansals ásamt því að sækja gerendur til saka. Einnig hafi verið samþykkt sérstök lög gegn mansali árið 2015 en þau hafi gert það refsivert að stunda mansal og mæli ennfremur fyrir um fangelsisvist allt að fimmtán árum fyrir brot gegn þeim. Starf NAPTIP felist í því að stuðla að framfylgni laga og reglugerða gegn mansali í Nígeríu, rannsaka mansalsmál og fræða og efla lögreglu og aðra aðila sem komi að upprætingu mansals í Nígeríu. Einnig aðstoði stofnunin þolendur mansals með því að veita þeim skjól, ráðgjöf, hafa uppi á fjölskyldumeðlimum þeirra, aðstoða við heimkomu og aðlögun að samfélaginu á ný. Samkvæmt skýrslu Landinfo og skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í apríl 2022 hafi NAPTIP þekkingu og reynslu af því að sinna þolendum mansals sem eigi börn. NAPTIP hafi til umráða húsnæði fyrir þolendur mansals í borgunum Abuja, Lagos, Benín, Uyo, Enugu, Kano, Sokoto, Maiduguri og Markudi. Þá kemur fram í skýrslu frá EASO frá árinu 2021 að dvöl í húsnæði NAPTIP sé ekki langtímalausn og dvelji þolendur þar í um tvær til sex vikur. NAPTIP vinni með frjálsum félagasamtökum sem geti útvegað þolendum mansals langtímahúsnæði og andlegan stuðning. Þá verði konur sem dvelji hjá NAPTIP í einhverjum tilvikum fyrir aðkasti í samfélaginu þar sem gert sé ráð fyrir að þær hafi unnið við vændi erlendis. Af þeim sökum hafi NAPTIP reynt að senda konur eins fljótt og verða megi til fjölskyldu sinnar eða í annað húsnæði. Skortur á fjármagni takmarki getu NAPTIP og frjálsra félagasamtaka við að aðstoða þolendur mansals við að aðlagast samfélaginu og standa á eigin fótum. Nígerísk yfirvöld hafi komið til móts við umræddan fjárskort hjá NAPTIP og veitt þolendum mansals fjárstyrk sem aðstoði við aðlögun að samfélaginu.  

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna um mansal frá apríl 2019 kemur fram að í ágúst 2017 hafi í Edo fylki verið sett á fót sérstakt aðgerðarteymi gegn mansali (e. Edo State task force against human trafficking (ETAHT)) sem leitt sé af dómsmálaráðherra fylkisins (e. State Attorney-General and Commissioner of Justice). Megin verkefni aðgerðarteymisins séu rannsókn og saksókn í mansalsmálum, forvarnir og vitundarvakning, aðstoð við þolendur með því að bjóða sálfræðiaðstoð, skammtíma og langtíma húsnæði, kennslu og þjálfun í iðngreinum og stuðningur og aðstoð við aðlögun þolenda sem snúa aftur heim. Þá vilji teymið vinna að því að uppræta rót vandans sem birtist í mansali og kynjamisrétti. Aðgerðarteymið sé byggt á þörfinni til að styrkja aðgerðir stjórnvalda og félagasamtaka í baráttunni gegn mansali í Nígeríu og nú hafi einnig verið komið á fót slíkum teymum í öðrum fylkjum s.s. Ondo, Delta og Ekiti í samstarfi við UNODC og NAPTIP. Í gögnunum kemur þá fram að þolendur mansals séu líklegri til þess að sæta endurteknu mansali heldur en að sæta líkamlegu ofbeldi vegna hefndaraðgerða þeirra aðila sem staðið hafi að baki mansalinu. Lögreglan í ríkinu hafi þá almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn. Samkvæmt skýrslu EASO frá apríl 2021 benda ýmsar heimildir til þess að mansalsgerendur einblíni frekar á að finna nýja þolendur mansals í stað þess að beita þolendur ofbeldi, sem enn standi í skuld við þá, þar sem þeir vilji síður draga að sér athygli lögregluyfirvalda í Nígeríu. Þrátt fyrir að dæmi séu um að fjölskyldur þolenda verði fyrir ofbeldi eða árásum af hálfu mansalsgerenda bendi heimildir til þess að slíkar hefndaraðgerðir séu sjaldgæfar samkvæmt framangreindri skýrslu EASO. Oft sé ástæðan sú að fjölskyldur þolenda komi að mansalinu sjálfu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2020 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stig sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu, m.a. mæðra- og ungbarnavernd, fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skiplögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningastofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningastofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna tiltekinnar fjölskyldu. Faðir kæranda hafi fengið lán hjá umræddri fjölskyldu gegn því að kærandi flytti inn á heimili fjölskyldunnar. Þar hafi hún sætt ofbeldi og kynferðislegri misnotkun af hálfu fjölskylduföðurins með þeim afleiðingum að hún hafi orðið þunguð og eignast barn. Fjölskyldan hafi síðar krafið föður kæranda um greiðslu skuldarinnar sem honum hafi verið ókleift að greiða. Kæranda hafi verið hótað lífláti og hafi hún flúið til annars þorps innan Nígeríu. Þar hafi kærandi verið hneppt í mansal og neydd til að stunda vændi í Líbíu. Þá sé kærandi þolandi kynfæralimlestinga. Kærandi eigi tvö börn í heimaríki sem dvelji hjá móður hennar en tvö börn hennar séu með henni hér á landi.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda. Í ljósi upplýsinga um heimaríki kæranda telur kærunefnd ekki ástæðu til annars en að leggja til grundvallar að kærandi kunni að hafa verið þolandi mansals og vændis í heimaríki sínu og Líbíu. Jafnframt verður lagt til grundvallar að kærandi sé þolandi kynfæralimlestingar.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hún óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í Nígeríu sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun var kærandi margsaga um ýmsa atburði sem hún kveður hafa átt sér stað í aðdraganda flótta hennar frá Nígeríu. Í viðtali, dags. 9. júní 2022, greindi kærandi frá því að henni hafi verið nauðgað af einum ótilgreindum aðila þegar hún hafi verið 12 ára gömul. Í framhaldi af því greindi hún frá því að hafa verið þvinguð í hjúskap með nafngreindum manni, J, og orðið þunguð u.þ.b. árið 2006 í kjölfar þess að hann hafi nauðgað henni. Hún hafi eignast sitt fyrsta barn, C, með honum. Kærandi kvaðst hafa orðið þunguð aftur eftir J en misst fóstrið eftir fjóra mánuði í kjölfar slyss. Maðurinn hafi síðar dáið. Í viðtali 6. september 2022 kvaðst kærandi hafa farið inn á heimili J sem húshjálp og að hann hafi byrjað að misnota hana. Greindi hún ekki frá þvinguðum hjúskap í því viðtali. Kærandi kvað J hafa dáið þegar C hafi verið eins árs. Kærandi hafi þá farið aftur heim með C en vegna hótana og áreitis af hálfu fjölskyldu J hafi hún flúið til annars þorps í Nígeríu en skilið C eftir hjá móður sinni. Hún hafi í kjölfarið kynnst öðrum manni og orðið þunguð eftir hann. Hann hafi síðan dáið af slysförum fjórum mánuðum síðar. Kærandi minntist ekki á að hafa misst fóstur í viðtalinu 6. september 2022 líkt og hún greindi frá í viðtalinu 9. júní sama ár. Í viðtali 9. febrúar 2023 var kærandi aftur spurð út í framangreind atriði. Kvaðst hún þá ekki vita hver faðir C væri þar sem henni hafi verið nauðgað af ótilgreindum aðilum. Kvað hún framangreindan mann, J, vera föður D, yngra barns síns í heimaríki. Er sú frásögn kæranda í mikilli mótsögn við frásögn hennar í fyrri viðtölum þar sem hún lýsti því ítarlega að J væri faðir C. Greindi kærandi jafnframt frá því í viðtali 9. febrúar 2023 að báðir feður eldri dætra hennar væru látnir. Þegar kærandi var spurð hvernig hún vissi að faðir C væri dáinn, þar sem hún hafi lýst því skömmu áður í viðtalinu að hún vissi ekki hver faðir hennar væri, breyttist framburður kæranda og kvaðst hún einungis hafa verið að vísa til J.

Auk framangreinds misræmis kvaðst kærandi, m.a. í viðtali 9. júní 2022, annars vegar hafa kynnst eiginmanni sínum, F, í Líbíu og hins vegar í Nígeríu í viðtali 9. febrúar 2023. Í gögnum frá Maltneskum yfirvöldum í tengslum við umsókn kæranda þar í landi kemur fram að kærandi hafi gifst F 1. febrúar 2009 í […] í Edó fylki Nígeríu og að þau væru saman í Möltu. Þegar kæranda var gefið færi á að koma að andmælum varðandi framangreint misræmi í viðtali hjá Útlendingastofnun 9. febrúar 2023, kvaðst hún hafa kynnst F í […] og að þau hafi verið saman í um ár áður en hann hafi yfirgefið hana. Þau hafi síðan hist fyrir tilviljun aftur í Líbíu árið 2011 og saman hafi þau farið til Möltu. Þá kvað kærandi að hún og F hefðu aldrei gengið í hjúskap. Þá var kærandi spurð í síðastnefndu viðtali hvenær faðir hennar hafi látist. Kvað hún hann hafa dáið 29. mars 2011. Var kæranda þá bent á tölvubréf frá henni til Útlendingastofnunar, dags. 4. október 2022, þar sem hún hafi greint frá því að faðir hennar hafi látist af slysförum 29. mars 2017. Kærandi hafi þá skoðað símann sinn og breytt frásögn sinni á þann veg að faðir hennar hafi látist árið 2017 en ekki 2011.

Ljóst er að frásögn kæranda í viðtölum hjá Útlendingastofnun hefur verið óskýr og óstöðug og ljóst að talsverðs misræmis gætir, einkum hvað varðar tímalínu atburða, fjölskylduaðstæður og ástæður flótta hennar frá heimaríki. Að mati kærunefndar dregur framangreint misræmi verulega úr trúverðugleika frásagnar kæranda þar sem það varðar kjarna málsástæðna hennar og grundvöll umsóknar hennar, þ.e. ástæðu þess að hún kveðst hafa flúið heimaríki sitt. Með vísan til þess er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki lagt rökstuddar líkur að því að hún hafi verið þvinguð í hjúskap með eldri manni í Nígeríu og að fjölskylda hans leiti nú að kæranda vegna skuldar föður hennar við fjölskylduna. Í ljósi heimilda um heimaríki kæranda er þó ekki hægt að útiloka að kærandi kunni á einhverjum tímapunkti að hafa flutt inn á heimili manns sem húshjálp og að kærandi hafi verið misnotuð af honum. Kærunefnd telur hins vegar ekki sýnt fram á að fjölskylda mannsins leiti kæranda vegna skuldar föður hennar. Við það mat hefur kærunefnd horft til þess að það eru um 15 ár síðan kærandi kvaðst síðast hafa átt í samskiptum við fjölskylduna og þá hafa móðir kæranda og systkini hennar búið í heimaríki að því er virðist nær óáreitt allan þann tíma.

Auk framangreinds byggir kærandi á því að vera þolandi mansals og vændis. Líkt og áður greinir telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga þann þátt frásagnar kæranda í efa. Fram kemur í ákvæði d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga að þolendur mansals skuli teljast til sérstaks þjóðfélagshóps. Samkvæmt skýrslu EUAA frá október 2021 geta þolendur mansals átt á hættu athafnir sem eru af slíku alvarleikastigi að þær jafngildi ofsóknum, t.d. ofbeldi eða endurtekið mansal. Ekki séu allir þolendur mansals taldir standa frammi fyrir slíkri hættu að þeir geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir. Fram kemur að einstaklingsbundið mat þurfi að fara fram þar sem tekið sé mið af alvarleika og/eða endurtekningu athafna eða hvort um sé að ræða samsafn athafna sem talist geti til ofsókna. Við mat á því hvort líklegt sé að þolandi mansals eigi á hættu ofsóknir beri að taka tillit til ýmissa áhættuþátta, svo sem upphæðar skuldar þolanda gagnvart geranda sínum, þ.e. þeim sem standi að baki mansalinu, hvort þolandi hafi borið vitni gegn geranda sínum, valda og getu geranda, þekkingu geranda á fjölskyldu og bakgrunni þolanda, aldurs þolanda, fjölskylduaðstæðna þolanda, t.d. hvort um sé að ræða einstæða konu, félags- og efnahagslegan bakgrunn þolanda, aðgangs þolanda að stuðningsneti í heimaríki og þátttöku fjölskyldu þolanda í mansalinu. Ekki er fjallað um vægi hvers og eins áhættuþáttar við mat á því hvort þolandi mansals geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir eða hversu margir áhættuþættir verði að vera til staðar svo að leggja megi slíkt mat til grundvallar.

Frásögn kæranda ber með sér að hún hafi ekki þekkt manninn sem hafi hneppt hana í mansal og þvingað í vændi í Líbíu. Kvaðst hún hafa hitt manninn í Nígeríu og hann hafi boðið henni starf í verslun í Líbíu en þegar þangað hafi verið komið hafi hún verið þvinguð í vændi. Kærandi kvaðst hafa tekist að flýja eftir sex mánuði. Frásögn hennar ber ekki með sér að maðurinn sé tengdur henni fjölskylduböndum eða að fjölskylda kæranda hafi átt þátt í mansalinu. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að maðurinn hafi reynt að hafa uppi á kæranda síðan eða að kæranda stafi hætta af honum í dag. Af frásögn kæranda og gögnum málsins verður ekki séð að maðurinn hafi slík völd eða ítök í Nígeríu að kæranda sé ómögulegt að leita aðstoðar þarlendra yfirvalda telji hún þörf á því. Þá líkt og áður greinir telur kærunefnd ljóst að kæranda stafi ekki hætta af hálfu fjölskyldu manns sem hún kann að hafa starfað sem húshjálp hjá. Þrátt fyrir að þolendur mansals geti átt erfitt uppdráttar við endurkomu til Nígeríu benda gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér til þess að þeir sæti almennt ekki ofsóknum við heimkomu og að til staðar séu innviðir í heimaríki kæranda sem sérhæfi sig í þjónustu og aðstoð við þolendur mansals og að sækja gerendur til saka. Þá sé mansal refsivert í Nígeríu og hafa lögregluyfirvöld og stofnunin NAPTIP almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn. Það er mat kærunefndar að kærandi eigi þess kost að leita aðstoðar og verndar yfirvalda, hjá stofnuninni NAPTIP, aðgerðarteyminu ETAHT og lögreglu, telji hún þörf á því. Að mati kærunefndar hefur því ekki verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sem rekja megi til þess að hún hafi verið þolandi mansals.

Auk framangreinds ber kærandi fyrir sig að hún og B tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi sem konur í Nígeríu. Þrátt fyrir að konur sæti almennt mismunun í Nígeríu og geti talist til sérstaks þjóðfélagshóps í skilningi 38. gr. laga um útlendinga er það mat kærunefndar að sú mismunun nái ekki því alvarleikastigi að geta talist ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna. Verður því ekki fallist á að kærandi og B hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki sínu á grundvelli kyns síns.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 6. september 2022 greindi kærandi frá því að hafa sætt kynfæralimlestingu sem barn í heimaríki sínu. Greindi hún jafnframt frá því að dætur hennar tvær, C og D, hefðu jafnframt sætt kynfæralimlestingu, sem og allar systur kæranda. Í viðtali 9. febrúar 2023 kvað hún móður sína og ömmur hafa staðið að baki verknaðinum á sér. Í tilviki dætra sinna hafi móðir kæranda framkvæmt verknaðinn á C en fjölskylda J, ásamt móður kæranda, hafi staðið að baki verknaðinum á D. Kærandi kvaðst ekki hafa verið samþykk því að dætur hennar sættu kynfæralimlestingu en móðir hennar hafi sagt það vera nauðsynlegt. Kvaðst kærandi hafa verið ung að árum og ekki fengið neinu ráðið varðandi verknaðinn. Kvaðst kærandi vera á móti kynfæralimlestingum. Greindi hún frá því í sama viðtali að yngsta dóttir hennar, B, sem er stödd hér á landi með kæranda, hafi ekki sætt kynfæralimlestingu. Kvaðst kærandi trúa því að móðir hennar og móðir barnsföður síns myndu beita kæranda þrýstingi til þess að B verði látin sæta kynfæralimlestingu. Aðspurð kvaðst kærandi vera í góðu sambandi við móður sína en að hún myndi ekki hlusta á andmæli kæranda þar sem verknaðurinn sé talinn eðlilegur á heimasvæði kæranda. Kvaðst kærandi ekki vilja búa nálægt móður sinni ef hún færi aftur til Nígeríu þar sem hún vilji vernda B gegn því að sæta kynfæralimlestingu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2022 mynda stúlkur og konur, þ. á m. þær sem óttast kynfæralimlestingar, tiltekinn þjóðfélagshóp. Samkvæmt skýrslunni er það ekki svo að allar stúlkur og konur sem hafi sætt kynfæralimlestingum eða óttist að sæta þeim teljist flóttamenn. Fara þurfi fram einstaklingsbundið mat og beri þá að horfa m.a. til tíðni kynfæralimlestinga innan fjölskyldu og nærsamfélags stúlkunnar, fjölskyldusögu og þá einkum hvort móðir hennar hafi sætt kynfæralimlestingu, aldurs stúlkunnar og fjárhagsstöðu og menntunarstigs móður hennar. Við mat sitt á því hvort B eigi á hættu kynfæralimlestingu verði henni gert að fara aftur til Nígeríu horfir kærunefnd til þess að móðir hennar, kærandi, hefur sætt slíkum verknaði. Hefur það verið staðfest með læknisskoðun hér á landi. Kærandi hefur greint frá því að hún og fjölskylda hennar séu fátæk og að hún sjálf sé ómenntuð og að mestu ólæs og óskrifandi. Samkvæmt framangreindri skýrslu eru kynfæralimlestingar oftast framkvæmdar á stúlkum frá fæðingu til 15 ára, en verknaðurinn sé oftast framkvæmdur áður en stúlkur nái fimm ára aldri. Jafnframt séu kynfæralimlestingar algengari í þeim tilfellum sem móðir stúlkunnar sé ómenntuð. Kærunefnd horfir til þess að B er fædd árið 2020 og er því þriggja ára gömul. Þá greindi kærandi frá því að allar systur hennar í heimaríki hefðu jafnframt verið kynfæralimlestar. Telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga það í efa í ljósi reynslu kæranda. Þrátt fyrir að frásögn kæranda varðandi dætur hennar í heimaríki hafi að mestu verið ótrúverðug er ekki hægt að útiloka að þær hafi sætt kynfæralimlestingum. Bera þær heimildir sem kærunefnd hefur skoðað með sér að ákvörðunarvaldið liggi yfirleitt í höndum foreldra stúlkna. Kærandi hefur greint frá því að vera á móti kynfæralimlestingum og að hún vilji ekki að B sæti þeim. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun, þegar hún var spurð hvort hún myndi koma í veg fyrir kynfæralimlestingu á B, að hún hafi látið skoðun sína í ljós við móður sína í tilviki eldri dætra hennar en að móðir hennar hafi ekki virt skoðun hennar heldur svarað því að kynfæralimlesting væri nauðsynleg. Var svar kæranda því ekki á þann veg að hún myndi koma í veg fyrir kynfæralimlestingu á B en ráða má að hún hafi aðeins talið sig geta komið í veg fyrir það með því að búa ekki með móður sinni í heimaríki. Þá hefur kærandi greint frá því að glíma við andleg veikindi og lagði hún m.a. fram vottorð félagsráðgjafa þar sem fram kemur að vísbendingar séu um áfallastreitu hjá henni og að hún glími við þunglyndi og kvíða. Telur kærunefnd, með vísan til aðstæðna kæranda, einkum hvað varðar félagslega stöðu hennar sem einstæðrar móður, andlega vanheilsu og lágt menntunarstig, ekki hægt að leggja til grundvallar að kærandi hafi burði til þess að standa gegn fjölskyldu sinni og fjölskyldu B og veita B vernd gegn því að sæta kynfæralimlestingu snúi þær til baka til heimaríkis. Þá er óljóst hver afstaða föður B sé til kynfæralimlestinga jafnframt því sem að af gögnum málsins og frásagna kæranda og A verður ráðið að faðir barnanna hafi yfirgefið fjölskylduna á Möltu og ekki verið í sambandi við þau í rúmt ár þar í landi og hafi takmörkuð samskipti við börn sín eftir að hann kom hingað til lands í janúar 2023. Er því að mati kærunefndar ekki hægt að leggja til grundvallar að faðir B muni standa gegn því að hún sæti kynfæralimlestingu í heimaríki. 

Með vísan til heildarmats á aðstæðum B og kæranda er það niðurstaða kærunefndar að rökstuddar líkur séu á því að B eigi á hættu að sæta kynfæralimlestingu verði henni gert að fara aftur til heimaríkis, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Uppfyllir B því skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Mat á möguleika á flutningi innanlands

Þó svo að umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi sýnt fram á ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum á því landsvæði sem hann býr, er heimilt að synja umsókn um alþjóðlega vernd ef umsækjandi getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga segir að niðurstaða um hvort útlendingur geti fengið raunverulega vernd í öðrum hluta heimalands skuli byggð á einstaklingsbundnu mati á persónulegum aðstæðum útlendingsins og þeim aðstæðum sem séu í því landi. Við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði sem talið er öruggt samkvæmt ákvæði þessu skuli tekið tillit til ýmissa þátta, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á vinnu eða menntun. Við mat samkvæmt ákvæðinu skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Guidelines on International Protection: „Internal Flight or Relocation Alternative“ within the Context og Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees, frá 23. júlí 2003).

Í leiðbeiningunum, sem varða möguleika á flutningi innanlands þegar einstaklingur hefur flúið heimaríki af ástæðuríkum ótta við ofsóknir, er lagt til grundvallar að mat á því hvort möguleiki sé á að einstaklingur geti flust búferlum til annars svæðis í heimaríki sé tvíþætt. Annars vegar verði að kanna hvort flutningur innanlands sé raunhæft úrræði. Að því er mál kærenda varðar kemur í þessu sambandi einkum til athugunar hvort það svæði sem lagt er til að hann flytjist til sé aðgengilegt á öruggan og löglegan hátt og hvort flutningur hans þangað skapi hættu á að kærandi verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Hins vegar beri að kanna hvort viðkomandi geti, með hliðsjón af aðstæðum í heimaríki hans, lifað tiltölulega eðlilegu lífi án þess að standa frammi fyrir óþarfa erfiðleikum. Við þann þátt matsins verður m.a. að horfa til persónulegra aðstæðna viðkomandi, t.a.m. félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem lagt er til. Í leiðbeiningunum segir m.a. um síðastnefnt atriði að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess lífsviðurværi einstaklings verði lægra en það sem talist geti viðunandi eða að viðkomandi búi við eymd.

Í nígerísku stjórnarskránni er kveðið á um að allir Nígeríumenn skuli njóta dvalar- og ferðafrelsis í öllu landinu. Bendir ekkert til annars en að svæði í suðurhluta heimaríkis kæranda, sem sé undir stjórn nígerískra stjórnvalda, séu henni aðgengileg á raunhæfan, öruggan og löglegan hátt.

Með hliðsjón af fyrri umfjöllun um aðstæður í Nígeríu verður heldur ekki talið að flutningur kæranda innanlands, til svæða Nígeríu sem eru undir stjórn nígerískra stjórnvalda, skapi henni hættu á að verða fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Kærandi kvaðst hafa flutt sig um set áður innan Nígeríu áður en hún hafi farið til Líbíu og áfram til Möltu. Þá greindi kærandi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún myndi mögulega setjast að í borginni Lagos í Nígeríu yrði henni gert að yfirgefa Ísland. Samkvæmt framansögðu telur kærunefnd að flutningur innanlands sé ekki óraunhæfur kostur fyrir kæranda og börn hennar.

Sé fyrra skilyrði möguleika flutnings innanlands uppfyllt verður því næst að taka afstöðu til þess hvort unnt sé, með hliðsjón af einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og aðstæðum í heimaríki hennar, að ætlast með sanngirni til þess að kærandi og börn hennar setjist að á öðru svæði í Nígeríu.

Móðir B, kærandi, er einstæð móðir fjögurra barna og hefur greint frá andlegum erfiðleikum. Hún kveðst vera fátæk og ómenntuð. Kærandi kvaðst ennfremur hafa orðið fyrir alvarlegu ofbeldi í heimaríki sínu, þ.m.t. grófu kynferðislegu ofbeldi. Í ljósi eðlis og alvarleika þess ofbeldis sem kærandi hefur þegar orðið fyrir í heimaríki, almennra viðhorfa þar til einstæðra kvenna og stöðu þeirra er það mat kærunefndar að ekki sé með sanngirni hægt að ætlast til þess að kærandi og börn hennar setjist að annars staðar Nígeríu þar sem hún hefur ekki sterkan sjálfstæðan bakgrunn og traust tengslanet. Við það mat hefur verið litið til 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga sem mælir fyrir um að ákvörðun sem varðar barn skuli vera tekin með hagsmuni þess að leiðarljósi og að hugað sé að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska. Það er mat kærunefndar að þær aðstæður sem börn kæranda yrðu sett í við mögulegan flutning innanlands, í ljósi stöðu móður þeirra, sé með þeim hætti að ekki sé raunhæft eða sanngjarnt að ætlast til þess af kæranda að hún og börn hennar setjist að annars staðar í Nígeríu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Telur kærunefnd ljóst að B uppfylli skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga til að teljast flóttamaður hér á landi.

Samkvæmt 3. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eiga foreldrar barns yngra en 18 ára sem nýtur alþjóðlegrar verndar jafnframt rétt til verndar enda þyki sýnt að þeir hafi farið með forsjá barnsins og hyggist búa með barninu hér á landi. Þá njóta þessa réttar systkini barnsins sem eru yngri en 18 ára, eru án maka og búa hjá foreldrunum eða foreldrinu. Með vísan til framangreinds er ljóst að kærandi og A uppfylla skilyrði 3. mgr. 45. gr. laga um útlendinga og verður þeim veitt dvalarleyfi hér á landi samkvæmt 73. gr. laganna.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu er fallist á hluta aðalkröfu kæranda um að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar og veita B alþjóðlega vernd á Íslandi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðsamnings um stöðu flóttamanna. Þá er kæranda og A veitt dvalarleyfi hér á landi samkvæmt 73. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi þess að kærunefnd útlendingamála hefur fallist á aðalkröfu kæranda verða varakrafa, þrautavarakrafa og þrautaþrautavarakrafa kæranda ekki teknar til umfjöllunar í máli þessu.


 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Barni kæranda, B, er veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 40. gr. s.l. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.

 

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellant and her children are vacated. The appellant’s child, B, is granted international protection in accordance with Article 37, paragraph 1, and Article 40, paragraph 1, of the Act on Foreigners. The Directorate is instructed to issue them residence permit on the basis of Article 73 of the Act on Foreigners.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Sindri M. Stephensen                                                Þorbjörg I. Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta