Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 432/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 8. ágúst 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 432/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23070106

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […] og barns hennar

 

Málsatvik

Hinn 13. júlí 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. apríl 2023, um að umsóknum […], fd. […], ríkisborgara Nígeríu, og barns hennar, […], fd. […], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir A), um alþjóðlega vernd hér á landi, yrðu ekki teknar til efnismeðferðar og að þær yrðu endursendar til Ítalíu. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 14. júlí 2023 og 20. júlí 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 28. júlí 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Í greinargerð aðila kemur fram að hún muni þingfesta mál á hendur íslenska ríkinu á næstu dögum og krefjast m.a. ógildingar á úrskurði kærunefndar. Aðili vísar til 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Aðili byggir á því að verði henni og barni hennar brottvísað áður en meðferð dómstóla á máli þeirra ljúki muni hún ekki hafa raunhæf úrræði til þess að bera ákvörðun stjórnvalda undir dómstóla. Aðili byggir á því að framkvæmd úrskurðarins muni valda henni og barni hennar óafturkræfan legum skaða og í málum barna sé viðurkennt að gæta þurfi sérstakrar varúðar. Þá muni það reynast aðila erfitt að eiga í sambandi við lögmann sinn hér á landi þar sem alls óvíst sé hvort hún muni eiga þess kost á að vera í netsambandi sem væri eina raunhæfa leiðin fyrir hana til að eiga í samskiptum við lögmann sinn. Jafnframt sé þörf á sérstakri varúð með tilliti til þess að verið sé að setja líf og heilsu hennar í mikla hættu með brottvísun frá Íslandi með tilliti til framangreindra sjónarmiða. Þá hafi aðili takmarkaðan aðgang að heilbrigðiskerfinu. Af þeim sökum sé þörf á sérstakri varúð við ákvörðunartöku um hvort réttaráhrifum skuli fresta í máli hennar.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hennar að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hún skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hennar til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hún höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hún sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hennar fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem henni eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn hennar um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hennar um efnismeðferð. Fyrir liggur að stjórnvöld í viðtökuríkinu hafa viðurkennt skyldu sína til þess að taka við aðila og barni hennar og umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að henni sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar bera stjórnvöld viðtökuríkis ábyrgð á umsóknum aðila og barns hennar um alþjóðlega vernd og er skylt að tryggja að þær verði ekki endursendar í slíkar aðstæður annars staðar. Í samræmi við framangreint er það mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hún aftur til viðtökuríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Í úrskurði kærunefndar í máli aðila var gerð grein fyrir mati nefndarinnar á hagsmunum barns aðila. Í úrskurðinum er m.a. vísað til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga þar sem fram koma sérviðmið er varða börn og ungmenni. Var það niðurstaða kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til viðtökuríkis samrýmdist hagsmunum barnsins þegar litið væri m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá var það einnig mat kærunefndar að gögn málsins bentu ekki til þess að hætta væri á að fjölskyldan yrði aðskilin við meðferð máls þeirra í viðtökuríki.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hennar.

 

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta