Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 352/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 13. júní 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 352/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23040031 og KNU23040032

 

Kæra [...], [...] og barns þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 12. apríl 2023 kærðu einstaklingar er kveðast heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir K) og [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir M), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 27. mars 2023, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda og barns þeirra, [...], fd. [...], ríkisborgari Sómalíu (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi og brottvísa þeim frá landinu. Var kærendum gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.

Kærendur krefjast þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að lagt verði fyrir stofnunina að taka umsóknir kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 14. desember 2022. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum 30. desember 2022 og 10. janúar 2023, kom í ljós að fingraför þeirra höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Hinn 11. janúar 2023 var beiðni um upplýsingar um stöðu kærenda beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 16. janúar 2023, kom fram að kærendum hafi verið veitt réttarstaða flóttamanns 29. mars 2022 og hefðu gilt dvalarleyfi þar í landi til 28. mars 2025. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 21. og 24. febrúar 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 27. mars 2023 að taka umsóknir kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað brott frá landinu með endurkomubanni til tveggja ára. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum 28. mars 2023 og kærðu þau ákvarðanirnar 12. apríl 2023 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 26. apríl 2023.

III.      Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendum hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Kærendum var ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Var skorað á kærendur að yfirgefa landið án tafar og athygli þeirra vakin á því að yfirgefi þau landið sjálfviljug yrði endurkomubannið fellt niður.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra hans, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum hans væri ekki stefnt í hættu og að þeim væri best borgið með því að fylgja foreldrum sínum til Grikklands.

IV.      Málsástæður og rök kærenda

Kærendur byggja kröfu sína á 2. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 42. gr. laganna og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sbr. lög nr. 62/1994. Þá vísa kærendur til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar hvað málsatvik og frekari rökstuðning varðar.

Kærendur andmæla því mati Útlendingastofnunar í hinum kærðu ákvörðunum að endursending þeirra til Grikklands brjóti ekki gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að í hinum kærðu ákvörðunum hafi Útlendingastofnun ekki með fullnægjandi hætti lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður þeirra í Grikklandi, einkum með tilliti til nýjustu frétta og skýrslna. Þá andmæli kærendur mati Útlendingastofnunar á aðstæðum þeirra í Grikklandi og vísa til þess að aðstæðum flóttafólks þar í landi sé verulega ábótavant. Máli sínu til stuðnings vísa kærendur til fréttagreinar af vefsíðunni Vísir, dags. 19. mars 2023, um að grísk lögregla ræni, misþyrmi og beiti flóttafólk kerfisbundnu ofbeldi þar í landi. Fréttin sé byggð á frétt úr spænskum og grískum fréttamiðlum sem hafi rannsakað meðferð grískra stjórnvalda og lögreglunnar á flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd yfir sex mánaða tímabil. Fréttaflutningur Vísis hafi jafnframt byggt á umfjöllun Flóttamannaráðs Evrópusambandsins frá 10. mars 2023. Þá vísa kærendur til skýrslu frá Greek Council for Refugees sem gefin hafi verið út 2023 vegna sömu atriða. Þrátt fyrir að framangreint hafi legið fyrir þegar Útlendingastofnun ákvarðaði í málum kærenda hafi ekki verið minnst á framangreint. Kærendur krefjist þess að kærunefnd taki skýra afstöðu til framangreinds með rökstuddum hætti, einkum í ljósi þess að umrædd umfjöllun sé í samræmi við frásögn kærenda, sem geri frásögn þeirra trúverðuga og málið alvarlegt. Kærendur byggja á því að framangreint renni stoðum undir frásögn og málsástæðu kærenda um að aðstæður þeirra í Grikklandi séu verulega síðri en aðstæður innfæddra í Grikklandi, m.a. að því varðar aðgengi að þjónustu, atvinnu og almennu öryggi. Þá sé umrætt ofbeldi til marks um stöðu þeirra almennt í landinu og það viðmót og fordóma sem flóttafólk upplifi um að það sé ekki velkomið þar í landi. Fordómarnir hindri og komi í veg fyrir að kærendur og annað flóttafólk geti átt framtíð í landinu þar sem þau fái ekki tækifæri til aðlagast samfélaginu, vinna og skapa sér viðunandi framtíð, sökum ofsókna og ofbeldis sem það verði fyrir, ekki aðeins af hálfu lögreglu heldur einnig af hálfu almennings.

Kærendur gera athugasemd við að í ákvörðunum Útlendingastofnunar hafi ekki verið vikið að því hve þungbært og hættulegt sé fyrir fjölskylduna að ferðast þegar K er gengin svo langt á leið eða eftir atvikum ef fjölskyldan væri með nýfætt barn. Kærendur vísa til meginreglu barnaréttar um að það sem er barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang við alla ákvörðunartöku sem varði börn, sbr. 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sbr. lög nr. 19/2013, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þá vísa kærendur til athugasemdar nr. 14 í almennum athugasemdum sem Barnaréttarnefndin gaf út árið 2013 varðandi skýringu á inntaki 1. mgr. 3. gr. Barnasáttmálans og reglunnar um það sem er barni fyrir bestu. Samkvæmt áliti nefndarinnar sé það sem er barni fyrir bestu þrískipt hugtak. Í fyrsta lagi komi það til skoðunar þegar um sé að ræða ólíka hagsmuni sem rekist á í málefnum sem snerti börn. Í þeim tilvikum þurfi að tryggja að hagsmunir barnsins séu ávallt hafðir í fyrirrúmi. Í öðru lagi þegar kemur til greina að túlka lagaákvæði á fleiri hátt en einn, þá skuli sú túlkun verða fyrir valinu sem þjóni hagsmunum barnsins best. Í þriðja lagi þegar til greina komi að taka ákvörðun sem geti haft áhrif á tiltekið barn, hóp barna eða börn almennt, en í slíkum tilvikum þurfi að fara fram mat á mögulegum áhrifum ákvörðunarinnar, jákvæðum og neikvæðum á barnið/börnin. Við slíka ákvörðun þurfi einnig að sýna fram á að umrætt mat hafi farið fram, hvernig það hafi farið fram og rökstyðja hvernig hagsmunir barnsins hafi verið hafðir í fyrirrúmi og teknir inn í málið. Barnaréttarnefndin hafi gefið út sérstakan lista yfir sjö atriði sem veiti ákveðin ramma fyrir hvað sé barni fyrir bestu. Ekki sé um tæmandi lista að ræða og önnur atriði komi til skoðunar. Kærendur byggja á því, með hliðsjón af framangreindu, að skyldu- og einstaklingsbundið heildarmat á því hvað sé barni og ófæddu barni fyrir bestu hafi ekki verið framkvæmt með fullnægjandi hætti við ákvörðunartöku Útlendingastofnunar vegna umsókna þeirra. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar hafi fyrst og fremst verið litið til rétts A til heilbrigðisþjónustu og menntunar. Auk þess hafi stofnuninni borið að líta til öryggis barnsins og viðkvæmrar stöðu þess. Við það mat hafi verið mikilvægt að líta til 19. gr. Barnasáttmálans sem kveði á um rétt barna á vernd gegn hvers kyns líkamlegu og andlegu ofbeldi, meiðingum, misnotkun, illri meðferð, einelti, vanvirðandi háttsemi o.s.frv.

Þá vísa kærendur til máls Barnaréttarnefndar gegn Danmörku í máli nr. 3/2016 frá 25. janúar 2018, sem varðaði ákvörðun danskra stjórnvalda um að vísa móður og ungu stúlkubarni til Sómalíu þar sem barnið var í hættu á kynfæralimlestingu. Niðurstaða nefndarinnar hafi m.a. verið að danska ríkið hafi ekki tekið tillit til hagsmuna stúlkunnar og að danska ríkið hafi ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt 3. og 19. gr. Barnasáttmálans. Kærendur byggja á því að ákvarðanir Útlendingastofnunar hafi verið sama marki brenndar og í framangreindu máli, þar sem matið hafi takmarkast við almennar tilvísanir til skýrslna um Grikkland án þess að raunverulegt mat hafi farið fram um sérstakar og persónulegar aðstæður barna í Grikklandi, sbr. 3. og 19. gr. Barnasáttmálans. Umfjöllun og rökstuðningur Útlendingastofnunar sé almenns eðlis um aðgengi barna kærenda að heilbrigðis-, félags- og skólaþjónustu í Grikklandi en ekki sýnt fram aðra þætti. Í dæmaskyni vísa kærendur til ferðalagsins til Grikklands og áhrif þess á börnin, sérstaklega hið ófædda, hvort sem ferðalagið yrði fyrir eða eftir fæðingu þess. Kærendur byggja á því að endursending þeirra til Grikklands brjóti gegn rétti barnanna til þess að alast upp í umhverfi sem stuðli að þroskavænlegum skilyrðum og mannlegri reisn, sbr. 6. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sbr. 1. mgr. 1. gr. barnalaga.

Kærendur byggja á því að aðstæður þeirra í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá brjóti endursending þeirra til Grikklands gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu einstaklinga til ríkja þar sem líf þeirra og frelsi kanna að vera í hættu, sbr. t.d. 3. gr. flóttamannasamningsins og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kærenda og barns þeirra

Samkvæmt gögnum málsins eru kærendur par á [...] sem eru stödd hér á landi ásamt [...] syni sínum. Þá er K barnshafandi og eiga kærendur von á öðru barni [...]. Samkvæmt gögnum málsins lögðu kærendur fram umsókn um alþjóðlega vernd í Grikklandi í mars 2021 og hlutu hana 29. mars 2022. Kærendur hafi dvalið Í Grikklandi þar til þau hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi í desember 2022. Kærendur greindu frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að þau hafi fengið úthlutað húsnæði á vegum Helios samtakanna í sex mánuði eftir að þau hlutu alþjóðlega vernd í Grikklandi. Að þeim tíma loknum hafi þau búið á götunni og fengið mat hjá hjálparsamtökum. Þá hafi kærendur fengið takmarkaða heilbrigðisaðstoð og ítrekað verið vísað frá. M hafi ekki fengið atvinnu í Grikklandi og K hafi ekki leitað eftir atvinnu heilsu sinnar vegna. Kærendur hafi verið með almannatrygginganúmer í Grikklandi en ekki skattnúmer. Þá greindu kærendur frá því að þau hefðu rétt á heilbrigðisþjónustu í Grikklandi en verið vísað frá þegar þau leituðu eftir henni. K hafi þá fætt A í Grikklandi. Kærendur hafi jafnframt mátt þola kynþáttafordóma og ofbeldi í Grikklandi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hann væri við góða líkamlega og andlega heilsu. Þá greindi K frá því að hún væri orkulaus og glími við blóðleysi. K hafi dvalið í tvær nætur á spítala hér á landi. Kærendur greindu frá því að heilsa A væri almennt góð en læknir í Grikklandi hafi tjáð þeim að hann þurfi á aðgerð að halda.

Réttarstaða barns kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna og af þeim verður ekki annað ráðið en að hagsmunum barnsins sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða hans verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið er í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála þeirra í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b-, c- og d-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd í öðru ríki.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var kærendum og A veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi 29. mars 2022 og eru með gilt dvalarleyfi til 28. mars 2025. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærendur og A njóta í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd telur ljóst af eftirfarandi gögnum að ófætt barn kærenda muni einnig geta sótt um dvalarleyfi í Grikklandi á grundvelli alþjóðlegrar verndar foreldra sinna og öðlast sömu réttindi þar í landi.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd jafnframt kynnt sér þær skýrslur sem kærendur vísa til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.

  • 2022 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);

  • Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 8. júní 2023);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, mars 2023);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Excluded and segregated – The vanishing education of refugee children in Greece (Refugee Support Aegean, 13. apríl 2021)

  • Freedom in the World 2023 – Greece (Freedom House, mars 2023);
  • Growing up in lockdown: Europe´s children in the age of Covid-19 – Eurochild report (Eurochild, nóvember 2020);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingar af vefsíðu Eurochild (http://eurochild.org);

  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/) og
  • World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Grikkland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Grikkland verið aðili að Evrópuráðinu frá 9. ágúst 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1953. Grikkland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 6. október 1988 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgarleg og stjórnmálaleg réttindi árið 1997 og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1985 og barnasáttmálann árið 1993. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 5. apríl 1960.

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá í júní 2023 og Passerell frá nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslum ECRE og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna upplýsinga um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í fyrrnefndri skýrslu ECRE kemur fram að fæðingu barns beri að skrá hjá viðeigandi sveitarfélagi og að við skráninguna þurfi að framvísa fæðingarvottorði barnsins og dvalarleyfisskírteini a.m.k. annars foreldris. Þá kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi geti sótt um fjölskyldusameiningu. Handhafi alþjóðlegrar verndar sem sækir um fjölskyldusameiningu við barn undir 18 ára aldri þurf hvorki að sækja um innan ákveðins tímaramma frá því viðkomandi öðlaðist vernd eða sýna fram á lágmarkstekjur. Í skýrslu ECRE kemur fram að samkvæmt grískum lögum sé skólaskylda fyrir börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi á grunnskólaaldri. Í skýrslu Refugee Support Aegean (RSA) kemur fram að Covid-19 faraldurinn hafi haft neikvæð áhrif á menntun flóttabarna. Mörg börn hafi ekki náð að sækja skóla í meira en ár auk þess sem það hafi verið erfiðleikum bundið að skrá sig til náms. Jafnframt eigi stór hluti flóttabarna í erfiðleikum með fjarnám vegna tungumálaerfiðleika og skorts á nauðsynlegum búnaði. Jafnframt geti börn fengið pláss á sérstökum ungbarnaleikskólum frá sex mánaða aldri og á leikskóla frá tveggja ára aldri. Til þess að sækja um pláss á leikskóla þurfi að sýna fram á staðfestingu á heimilisfangi og staðfestingu á því að barnið hafi verið bólusett. Árið 2022 gaf Grikkland út aðgerðabaráætlun til þess að bregðast við tilmælum frá European Child Guarantee sem hefur það að markmiði að hvert barn í Evrópu í hættu á fátækt eða félagslegri einangrun hafi aðgengi að grunnréttindum eins og heilbrigðisþjónustu og menntun. Gríska aðgerðaráætlun felur m.a. í sér aðgerðir gagnvart börnum til þess að tryggja aðgengi þeirra að ungbarnamenntun og umönnun, menntun á skólastigi, heilsugæslu, heilbrigðu matarræði og fullnægjandi húsnæði. Þá getur flóttafólk leitað til hjálparsamtaka í Grikklandi sem m.a. veita aðgengi að ungbarnavernd og nýbökuðum mæðrum og ungabörnum viðeigandi aðstoð, t.a.m. upplýsingar og aðstoð í tengslum við brjóstagjöf og næringu.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá hafi borið á kvörtunum óskráðra innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd um ofbeldi við brottvísunaraðgerðir (e. pushbacks) grískra yfirvalda við landamærin. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram að grísk stjórnvöld hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, lögsækja og refsa opinberum starfsmönnum sem hafi gerst sekir um mannréttindabrot eða spillingu. Hins vegar hafi frjáls félagasamtök og alþjóðastofnanir gagnrýnt stjórnvöld fyrir rannsóknir á ásökunum um misþyrmingu lögreglunnar við brottvísunaraðgerðir á umsækjendum um alþjóðlega vernd í Grikklandi. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærendur eru par á [...] sem eru stödd hér á landi ásamt [...] syni sínum. Þá eiga kærendur von á barni í júlí. Í viðtali við K hjá Útlendingastofnun 21. febrúar 2023 greindi K frá því að hún væri gengin [...] á leið og að áætlaður fæðingardagur barnsins væri [...]. K greindi frá því að henni liði illa í Grikklandi en betur hér á landi. K hafi ekki mikla orku og sé blóðlítil. Þá hafi K þurft að dvelja í tvær nætur á spítala hér á landi. K greindi jafnframt frá því að hún hafi ekki orku til þess að vinna og finni fyrir ógleði. Þá greindi K frá því að A þyrfti að fara í aðgerð á kynfærum. Ekki hafi verið hægt að framkvæma aðgerðina fyrir [...] og þau hafi ekki fengið tíma hjá lækni í Grikklandi eftir að hann náði þeim aldri. Í viðtali við M hjá Útlendingastofnun 24. febrúar 2023 greindi hann frá því að hann væri við góða líkamlega og andlega heilsu. M hafi upplifað kynþáttafordóma og ofbeldi í Grikklandi sem hafi haft áhrif á hann. Hann hafi þó ekki skaðast líkamlega. M greindi frá því að A væri við góða heilsu en þyrfti á heilsufarsskoðun að halda. Læknar í Grikklandi hafi greint hann með öndunarvandamál við fæðingu og að hann þurfi að fara í aðgerð. Það valdi því að nef A stíflist og hann eigi erfitt með svefn sökum þess. Í málunum liggja fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 8. og 9. mars 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.

Kærunefnd tekur fram að kærendum var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun 21. og 24. febrúar 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærendur teldu hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun. Þá var kærendum, sem njóta aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 12. apríl 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari gögn hafa borist. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kærenda séu nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kærenda og barns þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kærenda og barns þeirra sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá skuli líta til þess, í tilviki þungunar, hvort umsækjanda standi til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki. Að mati kærunefndar er heilsufar kærenda og barns þeirra ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur og barn þeirra hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kærenda og barns þeirra tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kærenda og barns þeirra geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Þá bendir frásögn kæranda til þess að kærendur hafi fengið heilbrigðisþjónustu í Grikklandi að því er varðar greiningu á heilsufarsvandamálum A. Það er jafnframt mat kærunefndar með vísan til framangreindra heimilda að K muni fá viðeigandi fæðingaraðstoð í Grikklandi. Auk þess bendir frásögn kærenda til þess að K hafi fengið slíka aðstoð við fæðingu A í viðtökuríki.

Kærendur hafa jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið húsnæðis-, fjárhags- eða félagslega aðstoð frá grískum yfirvöldum, nema í takmarkaðan tíma. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kærenda séu ekki slíkar að þau geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem þau eiga að lögum rétt á og þurfa á að halda í Grikklandi. Líkt og komið hefur fram eiga handhafar alþjóðlegar verndar í Grikklandi sem búa undir fátæktarmörkum m.a. rétt á fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna.

Í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051 er fjallað um skattnúmer í Grikklandi. Skattnúmer er nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Í því máli sem hér er til meðferðar eru kærendur að mestu heilbrigð og vinnufær og hafa greint frá því að hafa almannatrygginganúmer í Grikklandi en ekki skattnúmer. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að þau séu fær um að sækja sér þá þjónustu sem þau þurfi á að halda í viðtökuríki, þ. á m. sækja um skattnúmer, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.

Kærendur hafa jafnframt borið fyrir sig að þau hafi mátt þola kynþáttafordóma, ofbeldi og mismunun í Grikklandi og m.a. hafi bensínsprengju verið kastað í áttina að M. Þá hafi komið upp atvik þar sem kærendum hafi verið meinað að sitja í strætisvagni og gert að færa sig. Kærendur hafi leitað til lögreglunnar en hún hafi ekki aðhafst í málum þeirra. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir fordómum og ofbeldi í Grikklandi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt geti þau leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að þau vænst þess að staða þeirra, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærendur hafa ekki sýnt fram á að aðstæður þeirra í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsóknir kærenda til efnismeðferðar hér á landi.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið eru kærendur og A handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Líkt og áður hefur komið fram telur kærunefnd jafnframt að ófætt barn kærenda muni geta sótt um dvalarleyfi í Grikklandi á grundvelli alþjóðlegrar verndar foreldra sinna og hljóti sömu réttindi þar í landi. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreinda upplýsinga um aðstæður í Grikklandi og gagna málanna að flutningur kærenda og barna þeirra til Grikklands muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Að því er varðar aðgengi A að menntun tekur kærunefnd fram að þótt skýrslur bendi til þess að kærendur þurfi að yfirstíga ákveðnar stjórnsýsluhindranir til að skrá barn sitt í skóla er að mati kærunefndar ljóst að A eigi lagalegan rétt á menntun í Grikklandi frá 5 til 15 ára aldurs og í kjölfarið rétt til endurgjaldslausrar grískukennslu. Jafnframt geta börn fengið pláss á sérstökum ungbarnaleikskólum frá sex mánaða aldri og á leikskóla frá tveggja ára aldri. Til þess að sækja um pláss á leikskóla þarf að sýna fram á staðfestingu á heimilisfangi og staðfestingu á því að barnið hafi verið bólusett.

Kærendur gera athugasemd í greinargerð við að ekki hafi hafið fram skyldu- og einstaklingsbundið heildarmat á því hvað sé A og ófæddu barni kærenda fyrir bestu við ákvörðunartöku Útlendingastofnunar vegna umsókna þeirra. Þá hafi ekki með fullnægjandi hætti verið gætt að ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og barnalaga um réttindi barnsins. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum A og ófædds barns þeirra tekur kærunefnd fram að kærendum var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna, t. a. m. varðandi heilsufar A og ófædds barns þeirra, við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali var þeim leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem þau töldu hafa þýðingu fyrir mál sitt og barns þeirra, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kærendum auk þess verið leiðbeint um framlagningu frekari heilsufarsgagna í málinu. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun voru kærendur spurðir út í heilsufar A og aðstæður þess í viðtökuríki. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kærenda er jafnframt að finna umfjöllun um réttarstöðu A og ófædds barns kærenda, þ. á m. um aðgengi þeirra að leikskólum/ dagheimilum, skólaskyldu í Grikklandi sem og umfjöllun um aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Auk þess er að finna umfjöllun um fæðingaraðstoð og aðgengi að mæðravernd, með hliðsjón af ófæddu barni kærenda. Þá er umfjöllun um aðgengi fjölskyldna að fjárhagsstuðningi og félagslegri aðstoð, s.s. aðstoð við að sækja um heilbrigðisþjónustu, húsnæði, fjárhagsstuðning, leik- og grunnskóla. Við meðferð mála kærenda og barns þeirra hjá kærunefnd hefur enn fremur verið litið til einstaklingsbundinna aðstæðna A og ófædds barns kærenda, sem og aðstæðna barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi. Það er mat kærunefndar, með hliðsjón af gögnum málsins og umfjöllun um aðstæður barna í Grikklandi, að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmist hagsmunum A og ófædds barns kærenda þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá er það jafnframt mat kærunefndar að Útlendingastofnun hafi litið til hagsmuna A og ófædds barns kærenda í hinum kærðu ákvörðunum og gætt að ákvæðum 3. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sbr. lög nr. 19/2013, sbr. einnig 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. laga um útlendinga og ákvæða barnalaga, við meðferð umsókna þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum barns þeirra sem horfa beri til við mat á því hvort rétt sé að taka umsókn þess til efnismeðferðar hér á landi. Auk þess telur kærunefnd að mál Barnaréttarnefndar í Danmörku nr. 3/2016 frá 25. janúar 2018, sem kærendur vísa til og varðaði barn sem var í hættu á kynfæralimlestingum í heimaríki sínu séu ekki sambærilegar og aðstæður í því máli sem hér er til meðferðar. Með hliðsjón af athugasemdum kærenda vísar kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu, m.a. í máli M.T. og aðrir gegn Svíþjóð nr. 22105/18 frá 20. október 2022. Í dómnum er vísað til þeirrar meginreglu að þrátt fyrir að barni muni vegna betur í einu aðildarríki mannréttindasáttmálans en öðru teljist það ekki falla undir hugtakið bestu hagsmunir barnsins.

Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn barns kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barns kærenda að umsókn þess verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda og barns þeirra er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun 21. og 24. febrúar 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærendur hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sína 14. desember 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. – 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda og barns þeirra er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærendur og barn þeirra eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærendur njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður mál kærenda og barns þeirra ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kærenda við ákvarðanir Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gera kærendur ýmsar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og mat stofnunarinnar á stöðu kærenda og barns þeirra.

Í greinargerð vísa kærendur til fréttagreina um að gríska lögreglan misþyrmi, ræni og beiti flóttafólk kerfisbundnu ofbeldi þar í landi. Kærunefnd hefur kynnt sér umræddar fréttagreinar sem kærendur vísa til og tekur fram að fyrrgreind rannsókn spænsku og grísku fréttamiðlanna snúi einkum að einstaklingum sem staddir eru við landamæri Grikklands eða hafa komið til landsins með ólögmætum hætti og ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd eða hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi. Í fréttunum er þó jafnframt fjallað um að dæmi séu um að flóttafólk sé handtekið á mismunandi stöðum innan Grikklands, jafnvel þó það hafi hlotið alþjóðlega vernd þar í landi eða sé í umsóknarferli og í kjölfarið flutt á einangraða staði og þaðan til Tyrklands. Að mati kærunefndar ber fyrrgreindur fréttaflutningur eða önnur gögn málsins ekki með sér að slíkar aðgerðir séu markvisst viðhafðar af hálfu grískra yfirvalda eða að einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi slíka meðferð á hættu. Þá snýr fréttaflutningurinn að miklu leyti að því að gríska landamæralögreglan hafi stolið verðmætum af þeim sem komi ólöglega inn í landið og þeim sem hafi verið fluttir aftur til Tyrklands. Líkt og fram hefur komið eru kærendur handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og eru með gild dvalarleyfi þar í landi til 28. mars 2025. Það er mat kærunefndar, að kærendur og barn þeirra, sem handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi, eigi ekki á hættu þá meðferð í viðtökuríki að vera vísað frá landinu með handahófskenndum hætti. Þá er ekkert í gögnum málsins eða frásögn kærenda sem bendir til þess að þau hafi óttast að vera handsömuð af grísku lögreglunni og flutt til Tyrklands eða að þau hafi orðið fyrir annars konar ofbeldi af hálfu grísku lögreglunnar.

Þá bera framangreindar heimildir, m.a. skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022, með sér að grísk yfirvöld hafi tekið skref í þá átt að rannsaka, lögsækja og refsa embættismönnum sem hafi gerst sekir um mannréttindabrot eða stundað spillingu. Þá kemur fram að ábendingar hafi borist frá frjálsum félagasamtökum og fjölmiðlum um að lögregla og landamæraverðir hafi beitt ofbeldi og hættulegum aðferðum til að hindra aðgang flóttafólks að landinu. Samkvæmt skýrslunni hafa fallið dómar gegn lögreglumönnum í Grikklandi vegna ofbeldis í garð flóttafólks.

Brottvísun og endurkomubann

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 14. desember 2022. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kærendum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.

Í viðtali hjá Útlendingastofnunar, dags. 21. og 24. febrúar 2023 var kærendum gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun og endurkomubanni frá Íslandi. Kærendur kváðust ekki hafa tengsl við Ísland eða annað Schengen-ríki en M taldi endurkomubann vera ósanngjarna ráðstöfun gagnvart þeim þar sem þau hafi flúið heimaríki og geti ekki dvalið í Grikklandi. Með vísan til fram kominna gagna, athugasemda kærenda og umfjöllunar kærunefndar um aðstæður kærenda í Grikklandi telst brottvísun kærenda frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til 3. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skulu kærendur yfirgefa landið án tafar. Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. skal að jafnaði veita frest í 7-30 daga til sjálfviljugrar heimfarar. Með vísan til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga verður að skilja orðalagið án tafar þegar veittur er frestur til sjálfviljugrar heimfarar svo að miða verði við lágmarksfrest í 2. mgr. 104. gr. Frestur kærenda til sjálfviljugrar heimfarar er því 7 dagar og tekur ákvörðun um brottvísun og endurkomubann ekki gildi yfirgefi kærendur landið sjálfviljugir án tafar. Ákvarðanir Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann eru staðfestar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kærenda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Sandra Hlíf Ocares                                                                Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta