Mál nr. 161/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 161/2025
Miðvikudaginn 30. apríl 2025
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með kæru, móttekinni 12. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. janúar 2025, um að synja umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. janúar 2025, var umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri synjað á þeim grundvelli að endurhæfingaráætlun teldist ekki nógu ítarleg í ljósi heildarvanda hennar og óljóst væri hvernig endurhæfingin kæmi til með að stuðla að endurkomu á vinnumarkað, enda virtist virk endurhæfing þar sem tekið væri á heilsufarsvanda vart í gangi. Í kjölfar kæru samþykkti Tryggingastofnun með bréfi, dags. 20. mars 2025, að greiða kæranda endurhæfingarlífeyri vegna tímabilsins 1. desember 2024 til 31. maí 2025.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. mars 2025. Með bréfi, dags. 13. mars 2025, var óskað eftir greinargerð frá Tryggingastofnun ríkisins ásamt gögnum málsins. Með greinargerð, dags. 20. mars 2025, óskaði Tryggingastofnun eftir því að kæru yrði vísað frá með þeim rökstuðningi að stofnunin hefði tekið nýja ákvörðun í máli kæranda. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Tryggingastofnunar með bréfi, dags. 24. mars 2025, sem ítrekað var 10. apríl 2025. Engin svör bárust frá kæranda.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru kemur meðal annars fram að kærandi hafi verið í virkri endurhæfingu og á endurhæfingarlífeyri síðan í ágúst 2022. Kærandi hafi síðast fengið greitt frá Tryggingastofnun 1. nóvember 2024. Kærandi sé búin að senda inn nýja endurhæfingaráætlun og læknir hennar hafi sagt að það væri mjög mikilvægt að hún fengi greitt frá 1. desember 2024 þar sem hún hafi áfram sinnt endurhæfingu.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að ákvörðun stofnunarinnar, dags. 15. janúar 2025, um synjun á endurhæfingarlífeyri hafi verið kærð. Kæranda hafi verið synjað um mat á endurhæfingarlífeyri þar sem fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun hafi ekki þótt nægilega ítarleg í ljósi heildarvanda kæranda.
Við yfirferð gagna vegna umrædds máls hafi Tryggingastofnun endurskoðað ákvörðun sína og lagt nýtt mat á gögn kæranda. Endurhæfing kæranda hafi verið samþykkt frá 1. desember 2024 til 31. maí 2025, sbr. bréf stofnunarinnar frá 20. mars 2025. Út frá ofangreindu telur Tryggingastofnun málinu vera lokið og óskar því eftir frávísun.
IV. Niðurstaða
Kærumál þetta varðaði upphaflega ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. janúar 2025, um að synja umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri. Í kjölfar kæru samþykkti Tryggingastofnun með bréfi, dags. 20. mars 2025, að greiða kæranda endurhæfingarlífeyri vegna tímabilsins 1. desember 2024 til 31. maí 2025. Með bréfi, dags. 24. mars 2025, sem var ítrekað 10. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu kæranda til nýrrar ákvörðunar stofnunarinnar en engin svör bárust frá kæranda.
Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni vegna ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, sbr. 1. mgr. 13. gr. laganna. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð gilda ákvæði laga um almannatryggingar um bætur félagslegrar aðstoðar eftir því sem við á, m.a. um kærurétt til úrskurðarnefndar velferðarmála og um hækkun bóta. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Tryggingastofnunar ríkisins. Stofnunin hefur fallist á að greiða kæranda endurhæfingarlífeyri vegna tímabilsins 1. desember 2024 til 31. maí 2025, þ.e. frá þeim tíma sem óskað er eftir í kæru. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir