Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 667/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 667/2024

Fimmtudaginn 20. mars 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 18. desember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. desember 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 31. ágúst 2024 og var umsóknin samþykkt 17. september 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. desember 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 18. desember 2024. Með bréfi, dags. 7. janúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 13. febrúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. febrúar 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að hann hafi ekki séð skilaboð Vinnumálastofnunar vegna vandræða með síma sinn og því hafi hann ekki mætt á boðaðan fund. Stofnunin hafi því fellt niður atvinnuleysisbætur til hans í tvo mánuði. Kærandi viti ekki hvernig hann eigi að borga leigu eða hvernig hann muni lifa af þessa tvo mánuði. Kærandi finni fyrir mikilli sektarkennd og biðjist afsökunar á því að hafa ekki mætt á fundinn. Þetta muni ekki koma fyrir aftur. Kærandi sé í atvinnuleit en hafi enga vinnu fengið því nú sé ekki rétta árstíðin. Hann muni fá vinnu í sumar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 31. ágúst 2024. Með erindi, dags. 17. september 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 21. október 2024 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 22. október 2024, klukkan 13:15. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 21. október 2024, klukkan 12:57. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund en hafi sent tölvupóst klukkan 7:21 þann 22. október 2024 þar sem hann hafi kveðist hafa verið veikur frá 18. október 2024 og ófær um að mæta.

Þann 26. nóvember 2024 hafi kærandi aftur verið boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík, þann 27. nóvember 2024, klukkan 11:45. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 26. nóvember 2024, klukkan 11:27. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund en skilað þann 28. nóvember 2024 læknisvottorði, dagsettu sama dag, þar sem hann sé sagður óvinnufær með öllu vegna ótilgreinds sjúkdóms frá 25. nóvember 2024 til 28. nóvember 2024.

Þann 4. desember 2024 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðaðan fund. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum en hann hafi jafnframt verið beðinn um að skila inn starfshæfnisvottorði. Skýringar hafi borist frá kæranda og hafi hann vísað til þess að hann hefði þegar skilað inn læknisvottorði.

Með erindi, dags. 10. desember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði sökum þess að hann hefði ekki mætt á boðaðan upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og ekki boðað forföll né hafi hann tilkynnt um veikindi. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 18. desember 2024. Í kæru kveðist kærandi hafa misst af boðunum þar sem hann ætti í vandræðum með símtæki sitt. Þá segi kærandi að hann sé sakbitinn vegna þessa og að þetta komi ekki fyrir aftur. Ekki sé vikið að veikindum kæranda í kæru.

Til upplýsinga hafi kærandi verið boðaður í þriðja sinn á upplýsingafund þann 7. janúar 2025 sem hafi verið haldinn 8. janúar 2025. Kærandi hafi ekki sinnt því boði og hafi skilað inn tilkynningu sama dag og fundurinn hafi verið haldinn um særindi í hálsi, beinverki og hita og af umhyggju við aðra myndi hann ekki mæta á fundinn. Læknisvottorð, dags. 13. janúar 2025, hafi borist stofnuninni 14. janúar 2024 sem hafi kveðið kæranda vera óvinnufæran með öllu vegna ótilgreinds sjúkdóms frá 3. janúar 2025 til 13. janúar 2025.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaða upplýsingafundi dagana 22. október 2024, 27. nóvember 2024 og þá einnig 8. janúar 2025. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tímasetning og staðsetning hafi verið tilgreindar. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar.

Kærandi hafi tilkynnt um veikindi sín til stofnunarinnar, en fram komi á læknisvottorðum að skoðanir eigi sér alltaf stað eftir að veikindi hafi staðið í einhvern tíma. Þá sé ekki að finna nánari skýringar á veikindum kæranda en að hann sé óvinnufær með öllu vegna „sjúkdóms“ á öllum vottorðum. Í kæru taki kærandi ekki fram að hann hafi verið veikur heldur að hann hafi misst af boðunum vegna bilaðs símtækis. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi sent kæranda boð á upplýsingafund bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda. Auk þess hafi erindið verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Kæranda hafi í upphafi umsóknar verið tilkynnt um með hvaða hætti honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án ástæðulausrar tafar.

Vinnumálastofnun hafi í þrígang móttekið tilkynningar um veikindi á sömu dögum og kærandi hafi átt að mæta á boðaða fundi hjá stofnuninni. Jafnframt liggi fyrir læknisvottorð, dags. 28. nóvember 2024 og 13. janúar 2025, sem votti ótilgreind veikindi kæranda. Á vottorðum komi fram að veikindi þessi hafi verið tilkynnt þann 28. nóvember 2024 og 13. janúar 2025. Veikindin hafi því verið tilkynnt lækni eftir að boðaðir fundir hafi átt sér stað. Það sé engu að síður ljóst að kærandi hafi ekki uppfyllt skyldu sína til að tilkynna stofnuninni um óvinnufærni sína í samræmi við 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hafi lagt fram læknisvottorð sem staðfesti óvinnufærni með öllu á sama tíma og fundur hafi farið fram sem kæra taki til. Kærandi hafi látið vita af veikindum sínum sama dag og fundur hafi farið fram. Kærandi hafi hins vegar ekki orðið við beiðni um ítarlegri gögn en umrætt vottorð, dags. 28. nóvember 2024, hafi borið með sér og hafi ekki skilað inn starfshæfnisvottorði sem óskað hafi verið eftir. Stofnuninni hafi því borið að ákvarða um stöðvun greiðslna atvinnuleysistrygginga á grundvelli 59. gr. en þar segi í 1. mgr. ákvæðisins:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.“

Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með ítrekuðum fjarvistum á boðaða fundi stofnunarinnar hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræðum og þar sem umbeðið starfshæfnisvottorð vegna tíðra veikinda hafi ekki borist beri kæranda að sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á boðaða fundi hjá Vinnumálastofnun dagana 22. október og 27. nóvember 2024 vegna veikinda. Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun um veikindi 22. október 2024 og kvaðst hafa verið veikur frá 18. október 2024. Þá skilaði kærandi inn læknisvottorði þann 28. nóvember 2024 þar sem fram kom að hann væri óvinnufær með öllu vegna ótilgreinds sjúkdóms frá 25. til 28. nóvember 2024.

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki strax um upphaf veikinda sinna annars vegar 18. október 2024 og hins vegar 25. nóvember 2024. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. desember 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta