Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 557/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 557/2023

Fimmtudaginn 29. febrúar 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 20. nóvember 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. október 2023, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á árunum 2022 og 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. október 2023, var kæranda tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 29. ágúst 2022 til 30. september 2023, að fjárhæð 827.490 kr., að meðtöldu 15% álagi, þar sem hún hefði ekki verið að fullu í virkri atvinnuleit á því tímabili vegna aðkomu að rekstri fyrirtækis.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 20. nóvember 2023. Með bréfi, dags. 29. nóvember 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 3. janúar 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. janúar 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa árið 2019 tekið þátt í að stofna lítið fyrirtæki með vinkonu sinni, æfingastöðina B. Á þeim tíma hafi kærandi átt og rekið samskonar fyrirtæki á C þar sem hún sé búsett og því hafi hennar hlutverk verið það að aðstoða vinkonu sína við að hefja rekstur með svipuðum hætti og kærandi hafi áður gert. Eftir að rekstur hafi farið í gang hafi hlutverki kæranda verið lokið þó að hún eigi enn hlut í fyrirtækinu. Kærandi hafi aldrei starfað hjá fyrirtækinu eða tekið á móti greiðslum með neinum hætti.

Árið 2021 hafi kærandi tekið ákvörðun um að hætta rekstri æfingastöðvarinnar á C vegna líkamlegs ástands. Frá þeim tíma hafi kærandi menntað sig og unnið að því að byggja upp annan starfsferil sem henti betur heilsufarslega. Það hafi gengið upp og ofan. Kærandi hafi síðastliðið ár þurft að leita til Vinnumálastofnunar en aldrei á þeim tíma, þrátt fyrir að hafa verið í reglulegum samskiptum við ráðgjafa, hafi verið gerð athugasemd við þau hlutafélög sem hún eigi hlut í. Um sé að ræða tvö hlutafélög, D, sem sé hennar og sé nú ekki í rekstri, og B sem hún eigi 33% hlut í en komi ekki nálægt með neinum hætti. Vegna hlutarins í B geri Vinnumálastofnun kröfu um að kærandi endurgreiði samtals 827.490 kr. vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta, auk þess sem hún geti ekki leitað til stofnunarinnar næstu tvo mánuðina. Það sé mat Vinnumálastofnunar að tímabilið 29. ágúst 2022 til 30. september 2023 hafi kærandi ekki verið atvinnulaus í skilningi 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem fyrirtæki í hennar eigu, B, hafi verið í rekstri á þeim tíma og aðrir aðilar hafi verið á launaskrá. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi eigi að vera skráð í 25% hlutastarf samhliða atvinnuleysisbótum vegna þessa og því reikni stofnunin aftur í tímann ofgreiddar bætur samkvæmt því. Þetta eigi kærandi mjög erfitt með að sætta sig við. Kærandi viðurkenni fúslega að ef hún hefði vitað af því að þetta skipti máli hefði hún að sjálfsögðu skráð sig með þeim hætti sem Vinnumálastofnun geri kröfu um, þrátt fyrir að það eigi ekki við rök að styðjast þar sem kærandi hafi aldrei starfað þarna eða komið nálægt rekstri félagsins. Með þessum hætti sé verið að setja alla undir sama hatt, alla sem eigi meira en 25% hlut í félagi, sama hver stærð félagsins sé eða hlutverk hluthafa. Þrátt fyrir að fyrirtækið sé með aðila á launaskrá sé kæranda ekki með neina tengingu við fyrirtækið. Það sé enginn grundvöllur fyrir því að kærandi geti starfað þarna og því ósanngjarnt að gera ráð fyrir því. Einnig skili félagið ekki arðgreiðslum, það sé rekið rétt nægilega fyrir ofan núllið til að geta staðið undir kostnaði.

Kærandi hafi talað við ráðgjafa á C, aðila hjá Greiðslustofu og lögfræðing á þeirra vegum vegna málsins og öll hafi þau sýnt stöðu kæranda skilning og gefið í skyn óréttlætið sem fylgi þessu. Þau hafi meira að segja öll hvatt kæranda til þess að leggja inn kæru. Þau starfi eftir lögum og reglugerðum sem geri ekki ráð fyrir að hlutirnir séu ekki bara svartir og hvítir. Þeim sé ekki leyfilegt að meta út frá aðstæðum hverju sinni. Kærandi skilji að það þurfi að vera rammi en það sé hins vegar óréttlátt að vera sett undir sama hatt og allir sem eigi meira en 25% í félagi sama hver stærðin sé eða hlutverk hluthafa og vera refsað eins og um hagnaðarbrot hafi verið að ræða. Í tilviki kæranda sé það einmitt andstæðan við það.

Ástæðan fyrir því að kærandi leggi fram kæru sé ekki vegna þess að hana langi til þess. Ef kærandi hefði tök á myndi hún í fyrsta lagi ekki leita til Vinnumálastofnunar, neyðin hafi bara verið það mikil. Í öðru lagi myndi kærandi greiða skuldina ef hún gæti og haldið áfram. Staðan sé hins vegar sú að hún sé að berjast fyrir hverri krónu þessa stundina og hafi verið að gera það allt síðasta ár. Það hafi ráðgjafinn vitað og því fari ekki saman hljóð og mynd hjá Vinnumálastofnun þegar talað sé um stuðning en á sama tíma sé fótunum kippt undan kæranda með þessum hætti vegna vitlausrar skráningar á hlutafélagi sem hafi aldrei komið málunum við.

Fyrir kæranda sé næg refsing að geta ekki leitað til Vinnumálastofnunar næstu tvo mánuðina en að þurfa að endurgreiða þessa upphæð sé ómögulegt. Kærandi biðji því um að mál hennar verði skoða og það metið út frá fjölbreyttu félagaformi og mannlegum þáttum. Kærandi hafi ekki undir neinum kringumstæðum hagnast á því að halda frá Vinnumálastofnun þessum upplýsingum og telji því refsinguna að geta ekki leitað til stofnunarinnar næstu tvo mánuði næga. Að krefja kæranda um þessa endurgreiðslu sé mjög harkalegt.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 29. ágúst 2022. Með erindi, dags. 15. september 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 80%.

Með erindi, dags. 13. apríl 2023, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir upplýsingum frá kæranda um hlutastörf hjá eigin fyrirtæki. Kærandi hafi skilað inn skýringum vegna þess samdægurs. Við samkeyrslu gagna hjá Skattinum hafi ekki komið í ljós tekjuskráningar frá fyrirtækjum í eigu kæranda, B og D, en í ljós hafi komið að hún væri skráður stofnandi og prókúruhafi fyrirtækjanna. Þá hafi einnig legið fyrir að kærandi væri skráð með 33,33% eignarhlut í B. og 80% hjá D. Vinnumálastofnun hafi jafnframt óskað upplýsinga úr launagreiðandaskrá B og D frá embætti Skattsins. Samkvæmt þeim upplýsingum hafi einn starfsmaður verið á launaskrá hjá B á tímabilinu ágúst til desember 2022 og einn til þrír starfsmenn frá janúar til september 2023. Enginn starfsmaður hafi verið á launaskrá hjá D.

Með bréfi, dags. 18. október 2023, hafi kærandi verið innt eftir skriflegri ástæðu þess að ekki hafi verið upplýst um rekstur fyrirtækis í hennar eigu samhliða töku atvinnuleysistrygginga. Þess hafi verið óskað að kærandi veitti Vinnumálastofnun frekari skýringar. Kæranda hafi verið veittur sjö daga frestur til að svara erindinu. Svör hafi borist frá kæranda innan gefinna tímamarka.

Með bréfi Vinnumálastofnunar þann 26. október 2023 hafi kæranda verið tjáð að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið [leiðréttar] þar sem hún teldist ekki vera í virkri atvinnuleit. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi verið greint frá því að í ljósi þess að hún væri skráð 33% eigandi B samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins og verið með launamenn í vinnu frá ágúst 2022 væri það mat Vinnumálastofnunar að hún uppfyllti ekki skilyrði 14. gr. laganna. Kæranda hafi jafnframt verið greint frá því að ofgreiddar atvinnuleysisbætur til hennar, að fjárhæð 719.556 kr., auk álags að fjárhæð 107.934 kr. yrðu innheimtar í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að leiðrétta greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í 3. mgr. 9. gr. sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Þar segi:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Í athugasemdum með frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 37/2009 segi meðal annars að „láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun þessar upplýsingar sem og í þeim tilvikum þegar rangar upplýsingar eru gefnar kemur til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna.“ Í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu atvinnuleitanda. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti.

Ofgreiddar atvinnuleysisbætur beri að innheimta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en þar segi orðrétt:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur.

Samkvæmt upplýsingum frá Skattinum og Creditinfo sé kærandi eigandi félaganna B (33,33%) og D (80%) en í ljós hafi komið að hún sé einnig skráður stofnandi og prókúruhafi fyrirtækjanna. Helstu skýringar kæranda séu þær að hún hafi ekki starfað hjá félaginu B á þeim tíma sem hún hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Ástæðu þess hafi kærandi tilgreint nánar sem ráðgefandi hlutverk í upphafi en sagt að tekjur félagsins rétt standi undir kostnaði við rekstur þess.

Að mati Vinnumálastofnunar samrýmist það hvorki gildissviði né markmiði laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. og 2. gr., að eigandi, stofnandi og prókúruhafi [félags] í fullum rekstri þiggi atvinnuleysisbætur. Hvort þá heldur þegar umrætt félag sé með starfsmenn í vinnu. Eðli máls samkvæmt geti einstaklingur sem sé með fólk í vinnu og fari með stjórn félags ekki talist atvinnulaus í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Eigandi fyrirtækis sem ráði starfsfólk til starfa til að sinna rekstri þess í stað þess að sinna slíkum störfum sjálfur geti ekki talist atvinnulaus í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að mati Vinnumálastofnunar. Í því samhengi skipti ekki máli að mati Vinnumálstofnunar hvort umrætt félag hafi skilað hagnaði.

Í a. lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að eitt af skilyrðum þess að teljast tryggður samkvæmt lögunum sé að vera í virkri atvinnuleit. Í 1. mgr. 14. gr. laganna komi fram að í virkri atvinnuleit felist meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi og vera reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf, hlutastarf eða vaktavinnu sé að ræða, sbr. c. til f. liði 1. mgr. 14. gr. Þá sé í g. lið 14. gr. kveðið á um að skilyrði fyrir virkri atvinnuleit sé jafnframt að viðkomandi eigi ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann teljist vera í virkri atvinnuleit. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. Það sé mat Vinnumálastofnunar að slíkt geti hvorki samræmst markmiði laga um atvinnuleysistryggingar né ákvæði 14. gr. laganna um virka atvinnuleit.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði greiðslu atvinnuleysistrygginga þann tíma sem fyrirtæki í hennar eigu hafi verið í rekstri. Í því samhengi vísi Vinnumálstofnun til 1., 2. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tímabilsins 29. ágúst 2022 til 30. september 2023.

Heildarskuld kæranda standi í 827.490 kr. og þar af sé 15% álag að fjárhæð 107.934 kr. Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldamyndunar. Í þessu samhengi vísi Vinnumálastofnun einkum til þess að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir því að fella skuli niður álag á skuld hennar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði greiðslu atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 29. ágúst 2022 til 30. september 2023, sbr. 1., 2. og 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, auk álags, samtals 827.490 kr., sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. október 2023, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 29. ágúst 2022 til 30. september 2023 með vísan til þess að hún hefði ekki verið að fullu í virkri atvinnuleit, sbr. 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, á þeim tíma vegna aðkomu að rekstri fyrirtækis í hennar eigu.

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit, sbr. 14. gr. Sama skilyrði á við um sjálfstætt starfandi einstaklinga, sbr. 1. mgr. 18. gr. laganna. Í 1. mgr. 14. gr. segir að sá teljist vera í virkri atvinnuleit sem uppfylli eftirtalin skilyrði:

  1. er fær til flestra almennra starfa,
  2. hefur heilsu til að taka starfi eða taka þátt í virkum vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. þó 5. mgr.,
  3. hefur frumkvæði að starfsleit og er reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, sbr. 1. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, og uppfyllir skilyrði annarra laga,
  4. hefur vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara,
  5. er reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi,
  6. er reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu,
  7. á ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann telst vera í virkri atvinnuleit nema ákvæði 17. eða 22. gr. eigi við,
  8. hefur vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til boða, og
  9. er reiðubúinn að gefa Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar til að auka líkur hans á að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum.

Í hinni kærðu ákvörðun var vísað til þess að kærandi væri skráð eigandi og stofnandi hjá B. Eignarhlutur hennar væri 33%. Einnig var tekið fram að samkvæmt upplýsingum frá Skattinum hefði kærandi ekki verið sjálf á launaskrá hjá fyrirtækinu á sama tíma og hún hefði þegið greiðslur atvinnuleysisbóta en á þeim tíma hefðu aðrir aðilar verið á launaskrá, eða á tímabilinu ágúst 2022 til september 2023. Þar sem það hefði verið starfandi rekstur í fyrirtæki í eigu kæranda á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta taldi Vinnumálastofnun hana ekki uppfylla skilyrði 14. gr. laga nr. 54/2006 á sama tímabili og leiðrétti greiðslur atvinnuleysisbóta miðað við 25% hlutastarf hjá fyrirtækinu á tímabilinu.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna.

Af lagaáskilnaði 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og lögmætisreglu stjórnsýsluréttar leiðir að lagaákvæði sem mæla fyrir tiltekin skilyrði sem þarf að uppfylla til að eiga rétt á bótum frá hinu opinbera verða að vera skýr og ótvíræð þannig að auðvelt sé fyrir einstaklinga að átta sig á réttarstöðu sinni. Jafnframt verða ákvarðanir stjórnvalda að eiga sér stoð í lögum og ef um íþyngjandi ákvörðun er að ræða verður að gera strangari kröfur til skýrleika þeirrar lagaheimildar sem hún byggist á. Túlka verður 1. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 í ljósi þessara lagasjónarmiða. Af texta ákvæðisins og lögskýringargögnum verður ekki ráðið að það eitt að eiga hlut í einkahlutafélagi eða koma að rekstri slíks félags með einhverjum hætti valdi því að viðkomandi teljist sjálfkrafa ekki virkur í atvinnuleit í skilningi ákvæðisins og eigi þar með ekki rétt til atvinnuleysisbóta. Úrskurðarnefndin telur að í slíkum tilvikum verði að fara fram atviksbundið og heildstætt mat hverju sinni, þ.e. að meta þurfi hlutverk viðkomandi í rekstrinum og umfang rekstursins.

Með vísan til framangreinds getur úrskurðarnefndin því ekki fallist á að Vinnumálastofnun hafi verið heimilt að leiðrétta greiddar atvinnuleysisbætur til kæranda miðað við að hún væri í 25% hlutastarfi hjá eigin fyrirtæki án þess að leggja atviksbundið og heildstætt mat á störf kæranda fyrir félagið, svo sem hvaða verk hún hefði innt af hendi og hvert væri umfang þeirra.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 29. ágúst 2022 til 30. september 2023 er því felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. október 2023, í máli A, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum