Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 562/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 562/2024

Fimmtudaginn 23. janúar 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 5. nóvember 2024, kærði B lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2024, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 8. janúar 2024 og var umsóknin samþykkt 7. mars 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. nóvember 2024. Með bréfi, dags. 6. nóvember 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 10. desember 2024 og var hún kynnt lögmanni kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. desember 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir þær kröfur að ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2024, þar sem réttur hennar til atvinnuleysisbóta hafi verið felldur niður í tvo mánuði, verði felld úr gildi og að viðurkenndur verði réttur hennar til atvinnuleysisbóta samkvæmt lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar í tvo mánuði frá og með 30. september 2024.

Þann 5. september 2024, klukkan 8:38, hafi Vinnumálastofnun sent kæranda boðun til fundar sem til hafi staðið að halda með kæranda. Samkvæmt boðuninni skyldi fundurinn haldinn þann 6. september 2024, klukkan 11:15, það er rétt rúmum sólarhring síðar. Kærandi hafi verið í atvinnuviðtali á vegum Vinnumálastofnunar eftir hádegi sama dag. Kærandi hafi ekki orðið vör við fundarboðið fyrr en 9. september 2024 þegar hún hafi opnað „Mínar síður“ á heimasíðu stofnunarinnar. Hún hafi í framhaldinu þann 11. september 2024 haft samband við Vinnumálastofnun og veitt útskýringar á fjarveru sinni símleiðis. Þann 17. september 2024 hafi kæranda verið gefinn kostur á að koma á framfæri skriflegum skýringum á fjarveru sinni á fundinum. Kærandi hafi sent skýringar sínar samdægurs.

Með hinni kærðu ákvörðun, dags. 30. september 2024, hafi Vinnumálastofnun fellt niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta frá og með 30. september 2024 í tvo mánuði að telja. Það hafi verið gert með vísan til þess að kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Kærandi geti ekki fellt sig við framangreinda niðurstöðu og kæri umrædda ákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Kærandi telji hina kærðu ákvörðun byggja á röngum forsendum og vera í andstöðu við lög. Þannig eigi kærandi rétt á umræddum bótum þegar litið sé til atvika málsins og ákvæða laga nr. 54/2006. Þá hafi meðalhófsregla 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 verið brotin við meðferð málsins. Hvort tveggja leiði til þess að fallast beri á kröfu kæranda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar.

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2024, byggi á þeirri forsendu að kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði en efnislegur rökstuðningur sé afar knappur og eftirfarandi:

„Með vísan til þess að þú hafnaðir þátttöku í vinnumarkaðsúrræði er réttur þinn til atvinnuleysisbóta felldur niður (...)“

Kærandi hafi aldrei hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og ákvörðunin virðist því byggja á röngum atvikum og efnislega röngum forsendum sem óhjákvæmilega leiði til ólögmætis hennar. Þegar af þeirri ástæðu beri að fallast á kröfu kæranda og fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.

Í hinni kærðu ákvörðun sé vísað til 6. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar til stuðnings þess að boðunin hafi verið send með sannanlegum hætti. Kæranda reki ekki minni til þess að tiltekið hafi verið við hana að skilaboð um heimasvæði Vinnumálastofnunar teljist boðun með sannanlegum hætti og mótmæli því að um birtingu með sannanlegum hætti hafi verið að ræða.

Þá sé vísað til 3. mgr. 13. gr. laganna til stuðnings þeim stutta fyrirvara sem gefinn hafi verið. Samkvæmt greininni skuli þeir sem tryggðir séu samkvæmt lögunum vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar „með mjög skömmum fyrirvara“. Ekki sé tiltekin nákvæm tímalengd þess sem megi teljast mjög skammur frestur í þessu samhengi en allt að einu verði að telja sólarhringsfyrirvara enn styttri en sá sem umrædd lagagrein heimili.

Loks telji kærandi þá ákvörðun að svipta hana framfærslu sinni í tvo mánuði vegna svo smávægilegra saka, að verða ekki vör við boðun Vinnumálastofnunar með innan við sólarhringsfyrirvara, andstæða meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en kærandi hafi lagt sig fram við að fylgja fyrirmælum og tillögum stofnunarinnar í hvívetna og reynt af samviskusemi að komast aftur til starfa á vinnumarkaði. Svipting framfærslunnar sé kæranda verulega þungbær en eðli máls samkvæmt hafi hún ekki aðrar tekjur. Samkvæmt greininni skuli stjórnvald aðeins taka íþyngjandi ákvörðun þegar lögmætu markmiði sem að sé stefnt verði ekki náð með öðru og vægara móti. Þess skuli gætt að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn beri til.

Til stuðnings öllu framangreindu vísi kærandi loks til 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 8. janúar 2024. Með erindi, dags. 7. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 5. september 2024 hafi kærandi verið boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 6. september 2024, klukkan 11:15. Kærandi hafi verið upplýst um að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 5. september 2024, klukkan 8:38. Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan kynningarfund né boðað forföll.

Með erindi, dags. 17. september 2024, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á fjarveru hennar á upplýsingafund þann 6. september 2024. Áréttað hafi verið að hefði hún hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 17. september 2024 hafi Vinnumálastofnun borist skriflegar skýringar frá kæranda þar sem fram hafi komið að kærandi hafi misst af skilaboðum varðandi fundinn á „Mínum síðum“ og í tölvupósti. Með erindi, dags. 30. september 2024, hafi kæranda verið tilkynnt um tveggja mánaða stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta til hennar vegna fjarveru á boðaðan kynningarfund þann 6. september 2024. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 6. september 2024, klukkan 11:15. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu um boðun á umræddan upplýsingafund í tölvupósti, farsíma og á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi fengið rúmlega sólarhringsfyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar.

Þá segi í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Skýringar kæranda á fjarveru sinni á boðaðan upplýsingafund hafi í fyrstu verið að henni hefði yfirsést boðun á „Mínum síðum“ og í tölvupósti. Síðar hafi komið fram að fundarboð hefði verið sent með of skömmum fyrirvara og að hún hafi átt bókað atvinnuviðtal á vegum Vinnumálastofnunar eftir hádegi sama dag. Kærandi hafi af þeim sökum ekki getað mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði. Í kæru til nefndarinnar sé tæpt á því að boðun hafi verið send rúmum sólarhring fyrir fyrirhugaðan fund og því haldið fram að kærandi hafi verið í atvinnuviðtali eftir hádegi sama dag og fundurinn hafi farið fram. Þá segi að kærandi hafi ekki orðið vör við fundarboðið fyrr en fjórum dögum eftir að það hafi verið sent. Kærandi byggi á því að ákvörðun um viðurlög sé byggð á röngum forsendum og að hún fari gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga.

Kærandi hafi valið að vera í rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun þegar hún hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi henni verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hennar með tölvupósti, skilaboðum inn á „Mínum síðum“ atvinnuleitenda og með smáskilaboðum. Kærandi hafi því verið upplýst með fullnægjandi hætti um hvernig henni yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Fyrir liggi að kæranda hafi verið send tilkynning í farsíma og tölvupósti þar sem henni hafi verið tjáð að henni biðu skilaboð á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Í samskiptasögu kæranda komi fram að henni hafi sannarlega verið sendur tölvupóstur á uppgefið tölvupóstfang, X, og með textaskilaboðum í skráð farsímanúmer, X, þann 5. september 2024, klukkan 8:38. Boðun til umrædds fundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun sé samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysitryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð á upplýsingafund hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda ríflega 26 tímum fyrir áætlaðan fund. Kærandi hafi í upphafi umsóknar verið upplýst með fullnægjandi hætti um hvernig henni yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án ástæðulausrar tafar. Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga og beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laganna í tvo mánuði.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 5. september 2024 boðuð á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík daginn eftir, þann 6. september 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar í gegnum netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti á fundinn.

Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi ekki séð boðun á fund fyrr en of seint, eða 9. september 2024. Þá hafi hún verið í atvinnuviðtali á vegum Vinnumálastofnunar eftir hádegi á fyrirhuguðum fundardegi. Kærandi hafi aldrei hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og ákvörðunin byggi því á röngum forsendum. Þá telji kærandi að Vinnumálastofnun hafi boðað hana á fund með of stuttum fyrirvara og að umrædd boðun hafi ekki verið birt með sannanlegum hætti. Ákvörðunin sé jafnframt andstæð meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta