Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 640/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 640/2024

Fimmtudaginn 20. febrúar 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. desember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. nóvember 2024, um að fella niður rétt hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 15. maí 2024 og var umsóknin samþykkt 4. júní 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. nóvember 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar vegna ótilkynntrar dvalar erlendis. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar frekari skýringa frá henni. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 27. nóvember 2024, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest þar sem sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn í málinu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. desember 2024. Með bréfi, dags. 11. desember 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 22. janúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. janúar 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 31. janúar 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 5. febrúar 2025. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa misst atvinnuleysisbætur í tvo mánuði sökum þess að hún hafi tilkynnt um ferð erlendis daginn sem hún hafi komið heim, þann 11. nóvember 2024, en ekki daginn sem hún hafi farið út, þann 7. nóvember 2024. Kærandi telji refsinguna fáránlega og óboðlega fyrir þriggja barna fjölskyldu á leigumarkaði, sérstaklega rétt fyrir jól. Allir sem kærandi hafi talað við séu í áfalli yfir ákvörðuninni og trúi henni varla, þar á meðal Mæðrastyrksnefnd, Hjálparstarf kirkjunnar, Fjölskylduhjálp, Rauði krossinn, velferðarsvið Reykjavíkurborgar og jafnvel starfsfólk Vinnumálastofnunar.

Kærandi sé menntaður B og hafi aldrei áður verið á atvinnuleysisbótum. Hún hafi aðeins þegið bætur í nokkra mánuði en hafi strax fengið tvær vinnur hjá C, annars vegar hjá D og hins vegar sem stundakennari í verklegri B. Kærandi fái fyrir það um 170.000 til 200.000 kr. á mánuði fyrir skatt. Hún sé í þeirri stöðu að geta ekki borgað leigu, leikskólagjöld og aðra reikninga og nái varla að halda jól.

Kærandi hafi haldið að hún fengi aðstoð frá félagsþjónustunni en hún fái líklega ekki greitt frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar fyrr en 1. febrúar 2025 þar sem þau greiði mánuði seinna. Til þess að fá fjárhagsaðstoð í desember 2024 þurfi kærandi að skila inn tekjum sem hafi fengist 1. nóvember 2024 en þá hafi hún verið á fullum bótum. Til þess að fá greitt í janúar 2025 þurfi kærandi að skila inn tekjum sem hafi fengist 1. desember 2024 en þá hafi kærandi fengið 200.000 kr. frá C og 139.000 kr. frá Vinnumálastofnun. Sú upphæð setji kæranda nánast að tekjumörkum. Þann 1. janúar 2025 muni hún líklega fá um 200.000 kr. greiddar frá C og 0 kr. frá Vinnumálastofnun sem ætti þá að gera hana gjaldgenga fyrir fjárhagsaðstoð sem yrði greidd 1. febrúar 2025, þó með skerðingu vegna tekna frá C.

Kærandi kveðist sár yfir því hvernig kerfið hafi brugðist sér vegna þess að hún hafi tilkynnt um ferð erlendis fjórum dögum of seint. Það sé sérstaklega óskiljanlegt þar sem Vinnumálastofnun hafi haft 20 daga frá 11. nóvember til 1. desember 2024 til að draga bætur frá henni. Stofnunin dragi einnig af kæranda vegna tekna frá C þrátt fyrir að upphæðin frá stofnuninni nemi aðeins 139.000 kr. Kærandi voni að hægt verði að leiðrétta málið hjá Vinnumálastofnun og koma í veg fyrir aukið álag á aðrar stofnanir.

Í athugasemdum kæranda, dags. 31. janúar 2025, kemur fram að hún hafi farið til heimilislæknis þar sem hún hafi glímt við mikinn kvíða. Kærandi hafi fengið vottorð þar sem fram komi að hún hafi verið óvinnufær þá daga sem hún hafi verið erlendis að aðstoða systur sína. Áður en kærandi hafi farið erlendis og á meðan hún hafi dvalið þar hafi hún glímt við mikinn kvíða og verið undir miklu álagi og streitu. Það hafi aldrei staðið til að tilkynna Vinnumálastofnun ekki um dvölina erlendis eins og stofnunin vilji meina að kærandi hefði gert hefði hún ekki fengið boð á fund, enda sé kærandi mjög hreinskilin og heiðarleg manneskja. Þá hafi kærandi haldið að Vinnumálastofnun fengi upplýsingar um þá sem færu erlendis en hún hafi aldrei hugsað sér að láta stofnunina ekki vita af ferðinni viljandi.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar segi:

„Vísar kærandi jafnframt til þess að hún viti um fjölda fólks sem ferðist erlendis án þess að láta stofnunina vita.“

Kærandi kveðist aldrei hafa sagt framangreint og viti ekki hvaðan ummælin komi. Umrædd viðurlög hafi leitt til mikils álags og kvíða á heimilinu. Kærandi sé mjög brotin andlega og sé loks að ná áttum og hafi því leitað til heimilislæknis vegna áfallanna. Hún óski eftir því að fá atvinnuleysisbætur greiddar fyrir umrædda tvo mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 15. maí 2024. Með erindi, dags. 4. júní 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kæranda hafi einnig verið tilkynnt um tilhögun á orlofstöku hennar í sama bréfi.

Þann 8. nóvember 2024 hafi kærandi verið boðuð á Atvinnutorg Vinnumálastofnunar þann 11. nóvember 2024. Kærandi hafi svarað þeirri boðun með tölvupósti sem hafi verið móttekinn 11. nóvember 2024 og þar sem fram komi að hún sé á heimleið frá E og gæti af þeim sökum ekki mætt í boðað úrræði. Kærandi hafi ekki tilkynnt um þessa ferð sína erlendis til Vinnumálastofnunar.

Þann 13. nóvember 2024 hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skriflegum skýringum á því hvers vegna kærandi hefði ekki tilkynnt fyrir fram um ferð sína erlendis ásamt afriti af flugfarseðlum þar sem brottfarar- og komutími væru tilgreindir. Skýringar hafi borist frá kæranda ásamt umbeðnum gögnum en í tölvupósti, dags. 13. nóvember 2024, geri kærandi athugasemd við það að boðunin hafi verið með jafn skömmum fyrirvara og hafi raun borið vitni. Framlögð gögn hafi sýnt að kærandi hefði verið erlendis frá 7. nóvember 2024 til 11. nóvember 2024.

Með erindi, dags. 19. nóvember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði þar sem hún hefði látið hjá líða að tilkynna stofnuninni fyrir fram um dvöl sína erlendis. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Sama dag og ákvörðun hafi verið send kæranda, þann 19. nóvember 2024, hafi Vinnumálastofnun borist frekari skýringar kæranda ásamt beiðni um endurskoðun á ákvörðun stofnunarinnar. Kærandi hafi greint frá því hún hefði farið í ferð erlendis þann 7. nóvember 2024 til að veita systur sinni andlegan stuðning og aðstoða hana við íbúðarleit eftir bruna í íbúð sem systir hennar hafi haft til umráða vegna náms. Kærandi hafi talið að nægjanlegt væri að tilkynna Vinnumálastofnun um þá ferð þegar hún hefði snúið aftur til landsins í kjölfar boðunarinnar á vinnumarkaðsúrræðið. Kærandi hafi jafnframt borið fyrir sig reynsluleysi hvað varði að hafa látið hjá líða að tilkynna fyrir fram um ferð sína erlendis. Þann 27. nóvember 2024 hafi kæranda verið send niðurstaða endurupptöku á ákvörðun Vinnumálastofnunar hvar sú ákvörðun frá 19. nóvember 2024 hafi verið staðfest þrátt fyrir að nýjar skýringar hefðu borist.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði vegna ótilkynntrar dvalar erlendis.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í c. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum.

Í 3. mgr. 9. gr. sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Þar segi:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.”

Í athugasemdum með frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 37/2009 segi meðal annars:

„Láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun þessar upplýsingar sem og í þeim tilvikum þegar rangar upplýsingar eru gefnar kemur til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna.“

Í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu atvinnuleitanda. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á þessari upplýsingaskyldu hins tryggða, en þar segi orðrétt:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur vísvitandi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.”

Fyrir liggi að kærandi hafi dvalið erlendis frá 7. til 11. nóvember 2024. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að vera í virkri atvinnuleit. Það sé jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um þessa utanlandsferð sína, líkt og henni hafi borið samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi því verið beitt viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna.

Í skýringum sínum til Vinnumálastofnunar og í kæru til úrskurðarnefndarinnar greini kærandi frá því að henni hafi ekki verið kunnugt um að henni bæri að tilkynna stofnuninni um ferðir sínar erlendis fyrirfram. Kærandi vísi jafnframt til þess að hún viti um fjölda fólks sem ferðist erlendis án þess að láta stofnunina vita.

Þegar rafrænni umsókn um greiðslu atvinnuleysisbóta sé skilað sé umsækjendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar með talið að tilkynna beri um ferðir erlendis. Umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki að þeir hafi lesið og skilið þær upplýsingar sem fram komi í umsókn um réttindi og skyldur umsækjenda. Kærandi hafi samþykkt framangreinda skilmála þegar hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni þann 15. maí 2024. Kæranda hafi einnig verið sendur tölvupóstur þann sama dag vegna umsóknar hennar um atvinnuleysisbætur þar sem bent hafi verið á að ef farið væri erlendis þyrfti að tilkynna það fyrir fram og skila afriti af flugfarseðlum til stofnunarinnar því til staðfestingar. Þá séu víðtækar og ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda á vefsíðu Vinnumálastofnunar.

Ljóst sé að réttindi og skyldur atvinnuleitenda samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar stofnist frá og með umsóknardegi, enda séu atvinnuleysisbætur greiddar frá og með umsóknardegi samkvæmt 29. gr. laganna. Á því tímabili sem atvinnuleitandi fái greiddar atvinnuleysisbætur beri honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laganna, þar á meðal ferðir sínar utanlands.

Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um utanlandsferð sína líkt og henni hafi borið. Eins og ofar greini hafi kærandi fengið upplýsingar um réttindi sín og skyldur, þar með talið varðandi tilkynningar á dvöl erlendis. Að öllu framangreindu virtu sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er hafi haft bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysistrygginga og að hún skuli því sæta viðurlögum samkvæmt 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem fram kemur að launamaður sé tryggður samkvæmt lögunum sé hann búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi stödd erlendis á tímabilinu 7. til 11. nóvember 2024 en tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrir fram um ferð sína. Kærandi hefur vísað til þess að hún hafi tilkynnt um ferð sína daginn sem hún hafi komið aftur til Íslands. Aldrei hafi staðið til að tilkynna Vinnumálastofnun ekki um ferðina. Þá hafi kærandi haldið að stofnunin fengi upplýsingar um þá sem færu erlendis.

Þann 15. maí 2024 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að tilkynna þyrfti um dvöl erlendis fyrir fram á „Mínum síðum“. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum gætti kærandi ekki að þeirri skyldu sinni vegna ferðar hennar 7. til 11. nóvember 2024.

Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna ferða erlendis eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér upplýsinga um hvort slík skylda væri fyrir hendi. Verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn upplýsingaskyldu sinni er hún tilkynnti ekki fyrir fram um ferð sína erlendis. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. nóvember 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta