Mál nr. 563/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 563/2024
Fimmtudaginn 13. febrúar 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 5. nóvember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. september 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 4. apríl 2023 og var umsóknin samþykkt 24. apríl 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. september 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. nóvember 2024. Með bréfi, dags. 19. nóvember 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 20. desember 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. janúar 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 6. janúar 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. janúar 2025. Frekari athugasemdir bárust frá kæranda 8. og 20. janúar 2025.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun vilji meina að hann hafi ekki boðað forföll. Kærandi hafi gert það en stofnunin taki ekki mark á því. Kærandi hafi boðað forföll vegna tannlæknatíma en það taki oft marga mánuði að fá viðtal hjá tannlækni og því hafi verið um einskonar neyð að ræða. Kærandi hafi verið með brotna tönn og hafi vantað nýja. Það hafi hindrað kæranda í félagslegum samskiptum sem og öðrum samskiptum.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 4. apríl 2023. Með erindi, dags. 24. apríl 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 91%.
Þann 27. ágúst 2024, klukkan 11:16 hafi kærandi verið boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, þann 28. ágúst 2024, klukkan 11:30. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með SMS skilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 27. ágúst 2024, klukkan 15:09. Kærandi hafi ekki mætt en hafi sent inn skýringar með tölvupósti 27. ágúst 2024. Þar komi fram að kærandi gæti ekki mætt í viðtal þar sem hann væri á sýklalyfjakúr vegna sýkingar í tönn.
Kærandi hafi aftur verið boðaður á fund hjá Vinnumálastofnun með erindi 4. september 2024. Fundurinn hafi átt að fara fram 5. september, klukkan 10:15. Samdægurs hafi borist tölvupóstur frá kæranda þar sem hann hafi sagst vera „fastur í sveit með sýkingu“ og hefði þegar látið stofnunina vita.
Þann 9. september 2024 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum vegna fjarveru á boðaðan fund. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Tölvupóstur hafi borist frá kæranda þann 11. september 2024. Í erindi sínu geri kærandi ekki tilraun til að skýra fjarveru sína frekar en geri athugasemdir við boðun og starfsfólk Vinnumálastofnunar.
Með erindi, dags. 18. september 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði sökum þess að hann hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þann 19. september 2024 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda annað erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum vegna fjarveru á boðaðan fund þann 5. september 2024. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Skýringar hafi borist frá kæranda, dags. 21. september 2024 og 23. september 2024.
Með erindi, dags. 2. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í þrjá mánuði sökum þess að hann hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 5. september 2024. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þann 3. október 2024 hafi kærandi sent Vinnumálastofnun erindi sem hafi verið túlkað sem beiðni um endurskoðun á ákvörðun stofnunarinnar. Með erindi, dags. 9. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að ákvörðun stofnunarinnar um stöðvun greiðslna í þrjá mánuði frá 2. október væri felld niður. Það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að biðtími vegna fjarveru á boðuð úrræði stofnunarinnar mætti rekja til eins og sama atviks og að ekki væri réttlætanlegt að beita ítrekunaráhrifum vegna þessa.
Kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála hafi borist þann 5. nóvember 2024. Af kæru megi ráða að ákvörðun stofnunarinnar frá 18. september 2024 sæti kæru til nefndarinnar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki mætt í boðað viðtal þann 28. ágúst 2024 né 5. september 2024. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar.
Kærandi hafi tilkynnt um forföll í viðkomandi viðtöl með þeim hætti sem honum hafi verið leiðbeint um. Þær skýringar sem hafi verið lagðar til grundvallar sem skýringar á forföllum í viðkomandi viðtal snúi að því að kærandi hafi verið á sýklalyfjakúr og fastur út í sveit.
Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi ekki borist tilkynning þess efnis að kærandi hafi verið óvinnufær á umræddu tímabili. Hann hafi þó ekki séð sér fært að mæta á tvö úrræði á vegum stofnunarinnar með 12 daga millibili.
Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með fjarveru í boðað viðtal hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Kærandi skuli því sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 27. ágúst 2024 boðaður í viðtal sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík daginn eftir, þann 28. ágúst 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar í gegnum netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma, með sólarhringsfyrirvara. Kærandi boðaði forföll með vísan til þess að hann væri á sýklalyfjakúr vegna sýkingar í tönn.
Kærandi var aftur boðaður á fund með sama hætti 4. september 2024 sem fara átti fram daginn eftir, þann 5. september 2024, á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án tafar með tölvupósti til stofnunarinnar. Kæranda var einnig bent á að ef hann væri ekki höfuðborgarsvæðinu gæti hann mætt á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar innan 24 klukkustunda frá boðun. Jafnframt var vakin athygli á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum lagann. Kærandi sendi Vinnumálastofnun tölvupóst þar sem fram kom að hann væri fastur út í sveit með sýkingu.
Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi boðað forföll vegna tannlæknatíma sem hann hafi þurft að mæta í vegna brotinnar tannar.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. september 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir