Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 627/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 627/2024

Fimmtudaginn 20. mars 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. desember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. október 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. apríl 2024 og var umsóknin samþykkt 13. maí 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. október 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar nýrra gagna. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 28. október 2024, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest þar sem sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu. Mál kæranda var endurskoðað í annað sinn hjá Vinnumálastofnun í kjölfar frekari skýringa frá honum. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 6. nóvember 2024, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest þar sem sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. desember 2024. Með bréfi, dags. 3. desember 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 6. janúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. janúar 2025. Athugasemdir bárust ekki. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. febrúar 2025, var óskað eftir frekari upplýsingum og gögnum frá Vinnumálastofnun vegna málsins. Umbeðin gögn bárust úrskurðarnefndinni 4. mars 2025 og voru þau kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 5. mars 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda samdægurs og 11. mars 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun hafi svipt hann atvinnuleysisbótum fyrir október og nóvember 2024 þar sem hann hefði ekki mætt á fund 11. september 2024, klukkan 10:15. Kærandi vilji undirstrika að hann hafi mætt á fundinn og hafi ávallt verið í virkri atvinnuleit.

Kærandi hafi mætt á fundinn á réttum tíma og skráð sig við borð við inngang fundarsalarins. Hann hafi kynnt sig með nafni en ekki verið beðinn um skilríki, líkt og á fyrri fundi sem hann hafi sótt hjá Vinnumálastofnun. Þetta telji kærandi mikilvægt að nefna þar sem honum hafi verið tjáð að alltaf ætti að biðja um skilríki en það hafi ekki verið gert í þessu tilfelli. Á fundinum hafi meðal annars helstu tækifæri í atvinnuleit verið útskýrð. Farið hafi verið yfir hvar best sé að fylgjast með framboði á vinnumarkaði, mikilvægi undirbúnings fyrir atvinnuviðtöl og hvernig halda eigi utan um og fylgja eftir umsóknum. Efnið tengist fyrri kynningarfundi sem kærandi hafi sótt sumarið 2024 en þessi fundur hafi þó verið styttri og hnitmiðaðri.

Kærandi sé í mjög virkri atvinnuleit og geti veitt fjölbreytt gögn sem staðfesti það, þar á meðal kynningarbréf sem kærandi hafi útbúið fyrir ýmis fyrirtæki (á íslensku, ensku og frönsku), tölvupósta sem sýni móttöku umsókna og ferilskrár og tengla á fyrirtækjasíður þar sem umsóknir kæranda séu í ferli.

Kærandi hafi verið tekjulaus síðan í september í kjölfar ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Hann hafi óskað eftir fjárhagsaðstoð en fengið synjun þar sem hann sé með skráðan eignarhlut í fasteign. Sú eign sé þó ekki nýtt til eigin búsetu heldur tengist hún aðstoð við barnsmóður kæranda. Kærandi sé í alvarlegum vanskilum og þurfi að framfleyta tveimur börnum sínum, sérstaklega nú í erfiðasta mánuði ársins.

Kærandi óski eftir því að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði endurskoðuð með hliðsjón af framangreindu. Hann sé einnig reiðubúinn að mæta á fund eða veita frekari gögn máli sínu til stuðnings.

Í svari kæranda til úrskurðarnefndar, dags. 5. mars 2025, er greint frá því að á hvorugum þeirra funda sem kærandi hafi sótt hjá Vinnumálastofnun hafi hann verið beðinn um að sýna skilríki. Á báðum fundunum hafi kærandi einfaldlega sagt nafn sitt við eina manneskju við inngang salarins. Sú hafi hakað við í skjali en önnur manneskja hafi svo staðfest það sem sú fyrri hafi skráð í skjalið hjá sér. Ef sú manneskja sem kærandi hafi gefið upp nafn sitt hjá hafi ranglega hakað við annað nafn, hvort sem það hafi verið vegna misskilnings, rangrar skráningar eða annars, hafi sú villa borist áfram í næsta skráningarkerfi. Þrátt fyrir að tvær manneskjur hafi verið við borðið við innganginn hafi kærandi aðeins gefið upp nafn sitt hjá annarri þeirra og ekki sýnt skilríki. Sama fyrirkomulag hafi verið í bæði skiptin sem kærandi hafi mætt, annars vegar í september og hins vegar í byrjun sumars 2024 en sú skráning hafi verið rétt. Að mati kæranda liggi þarna rót vandans.

Í svari kæranda, dags. 11. mars 2025, árétti hann athugasemd sína frá 5. mars 2025 þar sem hann hafi tekið skýrt fram að hann hafi aldrei verið beðinn um að sýna skilríki. Það telji kærandi vera ástæðu þess að skráningin sé röng. Kærandi bendi einnig á að hann hafi vakið athygli Vinnumálastofnunar á þessu áður en hann hafi lagt inn kæru til nefndarinnar. Það sem kæranda þyki sérstaklega mikilvægt í þessu samhengi sé að stofnunin hafi ekki neitað því að slíkt gæti hafa gerst. Raunin sé sú að starfsfólk biðji einfaldlega ekki um skilríki, einstaklingur gefi einungis upp nafn sitt og skráning byggist á því. Engin trygging sé fyrir því að skráning sé rétt þar sem ekkert kerfi sé til staðar sem sannreyni upplýsingarnar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 18. apríl 2024. Með erindi, dags. 13. maí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 10. september 2024 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund Vinnumálastofnunar, dags. 11. september 2024, klukkan 10:15. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, x. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 10. september 2024, klukkan 8:30. Kærandi hafi ekki mætt og ekki boðað forföll á fundinn.

Þann 1. október 2024 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru í boðað viðtal. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila skýringum. Skýringar hafi borist frá kæranda í formi skjáskots úr síma og bréfs sem hafi kveðið kæranda hafa lent í tæknivandamálum og hann hafi óskað eftir því að tekið yrði tillit til þess.

Með erindi, dags. 10. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði sökum þess að hann hefði ekki mætt á boðaðan upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hafi sent erindi þann 10. október 2024 og kveðist telja að um misskilning væri að ræða þar sem þetta hefði í reynd verið annar upplýsingafundurinn sem hann hefði mætt á. Í ljósi þeirra upplýsinga sem kærandi hafi lagt fram hafi mál hans verið endurskoðað og kæranda verið tilkynnt þann 28. október 2024 að ákvörðun stofnunarinnar frá 10. október 2024 væri staðfest þar sem ekkert gæfi til kynna að hann hefði mætt. Fyrirkomulagið á viðkomandi upplýsingafundi hafi verið með þeim hætti að tekin hafi verið tvöföld skráning á fundinn svo að ósennilegt hafi verið talið að báðar skráningarnar hefðu verið rangar.

Kærandi hafi aftur sent erindi þann 5. nóvember 2024 og ítrekað að um misskilning væri að ræða. Mál kæranda hafi verið endurskoðað í annað sinn og kæranda verið tilkynnt þann 6. nóvember 2024 að ákvörðun stofnunarinnar frá 10. október 2024 stæði óhögguð.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund Vinnumálastofnunar þann 11. september 2024. Tvisvar sé farið yfir mætingar á viðkomandi fundum og engin rök hnígi til þess að kærandi hafi setið fundinn án þess að mæting hans hafi verið skráð. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tímasetningar og leiðbeiningar hafi verið tilgreindar. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar.

Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Ákvæðið geri ráð fyrir því að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi hafnað því að hann hafi forfallast á fundinn sem um ræði og mál hans hafi í tvígang verið endurskoðað. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar þar sem að óútskýrt sé með öllu hvers vegna tvöföld skráning á mætingu virðist hafa farið fram hjá kæranda.

Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum og að hann skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. í tvo mánuði.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 10. september 2024 boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík daginn eftir, þann 11. september 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án tafar í gegnum netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma.

Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi mætt á fund Vinnumálastofnunar á réttum tíma og skráð sig við inngang fundarsalarins. Hann hafi kynnt sig með nafni en ekki verið beðinn um skilríki, líkt og á fyrri fundi sem hann hafi sótt hjá Vinnumálastofnun. Vinnumálastofnun hefur vísað til þess að tvisvar væri farið yfir mætingar á slíkum fundum og því hnígi engin rök til þess að kærandi hafi setið fundinn án þess að mæting hans hafi verið skráð. 

Í gögnum málsins liggur fyrir skjáskot úr skjali með mætingarskráningu framangreinds fundar. Þar kemur fram að skráð sé mæting í skjalið eftir að farið sé yfir skilríki atvinnuleitanda. Samkvæmt skjalinu mætti kærandi ekki á fundinn.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála liggja fyrir fullnægjandi gögn sem staðfesta að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun 11. september 2024. Að því virtu er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. október 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta