Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 84/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 84/2025

Fimmtudaginn 6. mars 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. febrúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið desember 2022 til janúar 2023.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun í desember 2022 og janúar 2023. Með greiðsluseðli, dags. 31. janúar 2023, var kæranda tilkynnt um skuld við Vinnumálastofnun, að fjárhæð 120.900 kr., vegna desembermánaðar 2022. Með greiðsluseðli, dags. 28. febrúar 2023, var kæranda tilkynnt um skuld, að fjárhæð 62.190 kr. vegna janúarmánaðar 2023. Samtals næmi skuld kæranda við Vinnumálastofnun 145.896 kr., eftir að 37.194 kr. hafði verið skuldajafnað. Þann 31. janúar 2025 var kæranda tilkynnt að ógreidd krafa vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta hefði verið áframsend til frekari meðferðar hjá Innheimtumiðstöð.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. febrúar 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. febrúar 2025, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 17. febrúar 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi verið í hlutastarfi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Hún hafi þá verið í samskiptum við Vinnumálastofnun vegna stöðu sinnar þar sem hún hafi haft áhyggjur af því að fá ofgreitt. Kæranda hafi verið sagt að allt væri rétt og ekkert meira þyrfti að gera. Kærandi vilji því vita hvað hún hafi gert rangt og hverjum sé um að kenna.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið desember 2022 til janúar 2023.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Með greiðsluseðli, dags. 28. febrúar 2023, var kæranda tilkynnt um skuld við Vinnumálastofnun, samtals að fjárhæð 145.896 kr. Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. febrúar 2025. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þess að kæra í máli þessu barst meira en ári eftir að ákvörðun var tilkynnt kæranda er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta