Mál nr. 680/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 680/2024
Fimmtudaginn 20. mars 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 30. desember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. nóvember 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 7. febrúar 2024 og var umsóknin samþykkt 21. mars 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. nóvember 2024, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 157.790 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar nýrra gagna. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 9. desember 2024, var kæranda tilkynnt að beiðni hans um afturköllun skuldar hefði verið hafnað.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. desember 2024. Með bréfi, dags. 3. febrúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. febrúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. febrúar 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að hafa verið sviptur atvinnuleysisbótum. Frekari rökstuðningur fylgdi ekki kæru en af henni má ráða að kærandi óski eftir að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði felld úr gildi.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga þann 7. febrúar 2024. Með erindi, dags. 21. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kærandi hafi verið afskráður af atvinnuleysisskrá 1. apríl 2024 þar sem hann hafi ekki staðfest mánaðarlega atvinnuleit.
Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með ótilkynntar tekjur í mars 2024 frá B. Auk þess hafi kærandi verið með ótilkynntar tekjur í maí 2023 frá C en hann hafi einnig verið skráður atvinnulaus á þeim tíma. Með erindi, dags. 29. október 2024, hafi verið óskað eftir að kærandi veitti stofnuninni skýringar vegna umræddra tekna, auk afrits af launaseðlum.
Engin gögn hafi borist frá kæranda og með erindi, dags. 26. nóvember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysistrygginga væri bótaréttur hans felldur niður frá og með þeim degi í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt hafi kæranda verið tilkynnt að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hans hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur í mars 2024, að fjárhæð 137.209 kr. sem yrðu innheimtar með 15% álagi samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna. Heildarskuld kæranda væri því að fjárhæð 157.790 kr. með álagi. Í ákvörðun hafi athygli kæranda verið vakin á að tekjur frá C í maí 2023 kæmu ekki til skerðingar þegar greiddra atvinnuleysisbóta.
Kærandi hafi þann 28. nóvember 2024 sent skýringar, launaseðla og önnur gögn varðandi umræddar tekjur í mars 2024 og maí 2023. Þann 9. desember 2024 hafi kæranda verið sent erindi um að ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 26. nóvember 2024 hefði verið tekin til umfjöllunar að nýju. Kæranda hafi verið tilkynnt að ekki væri efni til að falla frá ákvörðun um biðtíma á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. nóvember 2024, um að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hafi ekki tilkynnt um tekjur sínar í mars 2024. Jafnframt hafi kæranda verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 137.209 kr., ásamt 15% álagi samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna. Heildarskuld kæranda hafi því verið að fjárhæð 157.790 kr. með álagi.
Í kæru sinni til úrskurðarnefndar velferðarmála taki kærandi fram að hann hafi verið sviptur atvinnuleysisbótum. Enginn frekari rökstuðningur né önnur gögn sé til að dreifa í kæru.
Ágreiningur í máli þessu snúi að því hvort kæranda hafi borið að sæta viðurlögum í formi biðtíma á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna og hvort honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Ákvæði 1. mgr. 59. gr. sé svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Samkvæmt ákvæðinu skuli atvinnuleitandi sem láti hjá líða að veita Vinnumálastofnun upplýsingar sem kunni að hafa áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá því að honum hafi verið tilkynnt um þá ákvörðun.
Samkvæmt samskiptaskrá Vinnumálastofnunar hafi kærandi ekki látið stofnunina vita af tekjum sínum í mars 2024. Þá hafi kærandi ekki skráð tekjurnar í gegnum „Mínar síður“ né tekið þær fram í umsókn sinni um atvinnuleysisbætur. Því sé ljóst að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um tekjur sínar, meðal annars frá B í mars 2024.
Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem gætu haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu.
Ákvæði 3. mgr. 9. gr. sé svohljóðandi:
„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“
Samkvæmt ákvæðinu beri atvinnuleitenda að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær tekjur sem hann fái, svo sem vegna tilfallandi vinnu. Auk þess beri atvinnuleitenda að tilkynna hversu lengi vinnan standi yfir.
Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu sína gagnvart Vinnumálastofnun. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þeim sé jafnframt bent á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem sé meðal annars að finna ítarlegar upplýsingar um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.
Af framangreindu sé ljóst að kærandi hafi ekki uppfyllt tilkynningarskyldu sína samkvæmt lögunum með því að láta hjá líða að tilkynna um tekjur sínar.
Tekjur kæranda frá B í mars 2024 hafi numið fjárhæð 374.976 kr. Í reglugerð nr. 1422/2023 sem sé sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar hafi frítekjumark fyrir árið 2024 verið 86.114 kr. Tekjur kæranda frá B hafi því verið yfir frítekjumarki og komi því til skerðingar á atvinnuleysisbótum.
Í kjölfar nýrra gagna hafi málið verið tekið til umfjöllunar að nýju. Á meðal gagna hafi meðal annars verið launaseðill frá B vegna tímabilsins 1. mars 2024 til 31. mars 2024. Þar komi fram að um hafi verið að ræða tekjur vegna 38% hlutastarfs, samtals 228.000 kr. yfirvinnulaun vegna 18 klukkustunda vinnu ástamt orlofi á mánaðarlaun og yfirvinnu. Þá hafi einnig verið greiðsla að fjárhæð 120.000 kr. vegna dagpeninga sem sé utan staðgreiðslu og komi ekki til skerðingar greiðslna atvinnuleysisbóta.
Af framangreindu sé ljóst að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna tekjur í mars 2024 frá B sem Vinnumálastofnun hafi borið að skrá til skerðingar á atvinnuleysisbótum samkvæmt 1. mgr. 36. gr. laganna.
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. sé svohljóðandi:
„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“
Kæranda hafi því borið að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tímabilsins 1. til 31. mars 2024, samtals að fjárhæð 137.209 kr. í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laganna.
Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 sé fjallað um að Vinnumálastofnun beri að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Í ljósi þess að kærandi sé með samþykkta umsókn, dags. 11. október 2024, séu ofgreiddar atvinnuleysisbætur innheimtar með skuldajöfnuði við síðar greiddar atvinnuleysisbætur í samræmi við ákvæði 3. mgr. 39. gr. laganna.
Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar tekjur. Atvinnuleitendum sé ítrekað tilkynnt um þá skyldu sína og leiðbeint um að það skuli gera í gegnum „Mínar síður“. Jafnframt vísi Vinnumálastofnun til þess að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. sömu laga. Auk þess hafi Vinnumálastofnun verið skylt að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að fjárhæð 157.790 kr.
Í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. segi að fella skuli niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldmyndunar. Að mati Vinnumálastofnunar hafi kærandi ekki sýnt fram á að ofgreiðsla atvinnuleysisbóta stafi af öðrum ástæðum en beint megi rekja til hans eigin athafna eða athafnaleysis.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Ásamt því beri honum að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 157.790 kr. samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í mars 2024 frá fyrirtækinu B samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í október 2024.
Þann 7. febrúar 2024 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.
Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna starfs síns og tekna eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér upplýsinga um hvort slík skylda væri fyrir hendi. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk framangreinda mánuði. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur vegna framangreindra tekna. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um framangreindar tekjur fékk hann greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um tekjur sínar er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. nóvember 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir