Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 122/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 122/2025

Föstudaginn 16. maí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. febrúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. febrúar 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. október 2024 og var umsóknin samþykkt 5. nóvember 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. janúar 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun með tilliti til nýrra gagna. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 19. febrúar 2025, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun hefði verið staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. febrúar 2025. Með bréfi, dags. 26. febrúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 24. mars 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. mars 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 27. mars 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. apríl 2025. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa verið með 60% mætingu á skyldunámskeið Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi misskilið póst stofnunarinnar og haldið að velja ætti einn dag af fimm dögum námskeiðsins til þess að mæta. Um heiðarleg mistök hafi verið að ræða og hún hafi látið Vinnumálastofnun vita um leið og hún hafi áttað sig á þeim. Kærandi hafi hringt og spurt hvað hún ætti að gera, hvort hún ætti að fara á námskeiðið seinna eða hvort hún gæti haldið áfram á því. Hún hafi einnig sagt frá því að námskeiðshaldari hefði boðið henni að bæta fyrstu tvo dagana upp seinna. Fulltrúi Vinnumálastofnunar hafi tjáð kæranda að hún ætti að byrja á námskeiðinu og að þetta yrði skráð. Þar með hafi kærandi talið að allt væri í lagi. Kærandi hafi talið líklegt að laun yrðu dregin af henni fyrir þá daga sem hún hafi ekki mætt eða jafnvel fyrir allt námskeiðið, en ekki að hún yrði án atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Hefði kærandi vitað það hefði hún reynt að komast að samkomulagi við Vinnumálastofnun eða í það minnsta gert ráðstafanir þar sem hún yrði án bóta í tvo mánuði. Kærandi telji um of harðar aðgerðir að ræða vegna misskilnings. Hún sé reiðubúin að vera launalaus þá daga sem námskeiðið hafi verið haldið en krefjist þess að ákvörðun Vinnumálastofnunar um tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum verði felld úr gildi.

Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar kemur fram að í greinargerðinni komi ekkert fram um símtalið sem hún hafi átt við fulltrúa stofnunarinnar að morgni 17. janúar 2025 þegar hún hafi áttað sig á mistökum sínum. Hefði kæranda verið tjáð að hún mætti búast við því að vera án atvinnuleysisbóta í tvo mánuði hefði hún reynt að komast að lausn með Vinnumálastofnun eða í það minnsta gert ráðstafanir.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 21. nóvember 2023. Með erindi, dags. 19. desember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 13. janúar 2025 hafi kæranda verið sendur tölvupóstur og smáskilaboð í farsíma hennar frá stofnuninni, klukkan 8:00, þar sem hún hafi verið boðuð á námskeið. Námskeiðið hafi verið haldið dagana 15., 16., 17., 23. og 24. janúar 2025, klukkan [9:00 til 12:30], í Safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ af hálfu Vinnumálastofnunar. Umrædd boðun hafi verið send þann 13. janúar 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang, X, og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 13. janúar 2025, klukkan 8:00. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Forföll hafi borið að tilkynna á netfang Vinnumálastofnunar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi einungis mætt dagana 17., 23. og 24. janúar 2025 og því einungis uppfyllt 60% mætingarskyldu.

Skriflegar skýringar kæranda hafi borist 2. febrúar 2025 þar sem komið hafi fram að hún hefði misskilið boð Vinnumálastofnunar á námskeið. Hún hafi haldið að hún þyrfti einungis að mæta á námskeið einn dag af þeim fimm sem hafi verið tilgreindir í boðun. Með erindi, dags. 3. febrúar 2025, hafi kæranda verið boðið að koma að frekari skriflegum skýringum á ástæðum fjarveru hennar á boðað námskeið og sama dag hafi frekari athugasemdir borist frá kæranda. Þar hafi komið fram að hún hafi misskilið boðun á námskeið. Kærandi hafi haft samband við Vinnumálastofnun með símtali um leið og hún hafi áttað sig á misskilningi sínum. Samkvæmt samskiptasögu kæranda hafi hún hringt þann 17. janúar 2025 og tilkynnt að hún hefði misskilið boðun Vinnumálastofnunar og hefði þá verið að mæta fyrst þá á námskeið.

Með erindi, dags. 11. febrúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um tveggja mánaða stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta til hennar sökum þess að hún hefði ekki uppfyllti mætingarskyldu á boðað námskeið. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 12. febrúar 2025 hafi borist frekari skýringar á fjarveru kæranda á boðað námskeið. Hún hafi sagst hafa valið að mæta í þriðja mögulega tímann en ekki þann fyrsta sökum þess að þann dag hafi hún verið með bíl til umráða en ekki hina dagana. Kærandi hafi jafnframt tilgreint að hún byggi í vesturbæ Reykjavíkur en námskeiðið hafi verið haldið í Garðabæ og því hafi verið smá ferðalag fyrir hana að mæta.

Mál kæranda hafi verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það hafi verið mat stofnunarinnar að skýringar kæranda á fjarveru gætu ekki talist gildar og hafi fyrri ákvörðun því verið staðfest. Sú ákvörðun hafi verið tilkynnt kæranda með erindi, dags. 19. febrúar 2025.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um atvinnuleysisbætur komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í viðtöl, á fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun á umrætt námskeið. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið innt eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 13. september 2024. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun á fjarveru hennar á boðað námskeið lúti að því að hún hafi misskilið boð Vinnumálastofnunar. Þá beri kærandi einnig við að hún hafi ekki haft aðgang að bíl fyrr en 17. janúar 2025.

Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda ekki gildar. Boðun til umrædds námskeiðs hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í boðun til kæranda hafi komið skýrt fram að um skyldumætingu væri að ræða á umrætt námskeið og bent á að fjarvera gæti leitt til stöðvunar á greiðslum atvinnuleysisbóta. Hvað varði skýringar kæranda um að hún hafi ekki verið með bíl til umráða fyrr en þann 17. janúar 2025 bendi Vinnumálastofnun á að staðsetning námskeiðsins hafi verið í Garðabæ en kærandi búi í vesturbæ Reykjavíkur. Í ljósi þess að almenningssamgöngur séu á milli Garðabæjar og Reykjavíkur fallist Vinnumálastofnun ekki á þær skýringar kæranda. Því verði að líta svo á að kærandi hafi brugðist skyldu sinni sem atvinnuleitandi að mæta á boðað námskeið og hafi ekki gildar skýringar á fjarveru sinni.

Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið hafi kærandi brugðist skyldum sínum og beri því að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 13. janúar 2025 boðuð á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem var haldið í fimm skipti á tímabilinu 15. til 24. janúar 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Að endingu var tilgreint að námskeiðið væri alls 17,5 klukkustundir og var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga.

Fyrir liggur að kærandi mætti aðeins síðustu þrjá daga námskeiðsins af fimm, eða 17., 23. og 24. janúar 2025, og uppfyllti hún því aðeins 60% mætingarskyldu. Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun þann 17. janúar 2025 að hún hefði misskilið boðun stofnunarinnar og haldið að hún ætti að mæta einn dag af fimm dögum námskeiðsins. Af hálfu kæranda hefur komið fram að um heiðarleg mistök hafi verið að ræða. Í símtali við fulltrúa stofnunarinnar hafi kæranda jafnframt verið tjáð að hún ætti að mæta hina daga námskeiðsins og að þetta yrði skráð.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að námskeiðið væri haldið í fimm skipti og að henni bæri að mæta alla þá daga sem tilgreindir voru í boðun. Þar sem kærandi hvorki mætti né boðaði forföll á hluta námskeiðsins kom til viðurlaga á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. febrúar 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta