Mál nr. 573/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 573/2024
Fimmtudaginn 23. janúar 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 11. nóvember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 6. nóvember 2024, annars vegar um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og hins vegar um að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 23. júní 2024 og var umsóknin samþykkt 26. júlí 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. nóvember 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar sama dag var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið synjað þar sem hann hefði ekki skilað inn umbeðnum gögnum um ferð sína erlendis og óvíst væri hvort skilyrði 13. og 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar væru uppfyllt.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. nóvember 2024. Með bréfi, dags. 13. nóvember 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. desember 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. desember 2024. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa sótt um atvinnuleysisbætur en umsókninni hafi verið synjað vegna ófullnægjandi gagna. Kærandi sé í B vegna veikinda móður hans og muni kannski snúa aftur til Íslands í lok nóvember 2024. Það sé ekki auðvelt að finna vinnu og kærandi hafi ekkert til að lifa á.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 23. júní 2024. Með erindi, dags. 26. júlí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt um að með vísan til starfsloka hans hjá fyrrum vinnuveitanda bæri honum að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Með erindi, dags. 23. september 2024, hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund sem haldinn hafi verið á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar 24. september 2024, klukkan 14:15. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 23. september 2024, klukkan 11:25 á „Mínum síðum“. Þá hafi kæranda verið send tilkynning á uppgefið netfang, X, og með smáskilaboðum í uppgefið símanúmer kæranda, X. Sending skilaboðanna í símtækið sé bókuð klukkan 11:25 þann 23. september 2024. Kærandi hafi hvorki mætt til boðaðs fundar né boðað forföll.
Með erindi, dags. 14. október 2024, hafi kærandi aftur verið boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Fundurinn hafi átt að fara fram 15. október 2024, klukkan 14:15. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 14. október 2024, klukkan 11:04 á „Mínum síðum“ kæranda. Þá hafi kæranda verið send tilkynning á uppgefið netfang, X og með smáskilaboðum í uppgefið símanúmer kæranda, X. Sending skilaboðanna í símtækið sé bókuð klukkan 14:04 þann 14. október 2024. Kærandi hafi heldur ekki mætt til seinni fundarins. Þann 16. október 2024 hafi hins vegar borist tölvupóstur frá kæranda þar sem hann hafi sagst vera staddur í B vegna veikinda móður hans og að dvölin þar gæti varað í allt að þrjár vikur í viðbót frá þeim degi.
Þann 18. október 2024 hafi verið óskað eftir skýringum á fjarveru í boðað viðtal og ótilkynntri dvöl hans erlendis. Kæranda hafi verið greint frá því að hefði hann hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði kynni það að leiða til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Kærandi hafi þá þegar komið að skriflegum skýringum sínum þar sem komið hafi fram að hann ætti hugsanlega ekki afturkvæmt til Íslands.
Kæranda hafi með erindi, dags. 6. nóvember 2024, verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði sökum þess að hann hefði ekki sinnt boðunum á kynningarfundi. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 6. nóvember 2024 hafi Vinnumálastofnun einnig tilkynnt kæranda um stöðvun á frekari greiðslum til hans en kærandi hefði ekki skilað inn umbeðnum gögnum um ferð sína erlendis og því óvíst hvort skilyrði 13. og 14. gr. væru uppfyllt.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.
Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni, en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysitrygginga. Atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysitryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.
Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki mætt til kynningarfundar á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar 24. september 2024 né 15. október 2024. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar um boðanir á umrædda kynningarfundi í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda því verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysisbóta komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs viðtals lúti að því að hann sé staddur í B vegna veikinda móður sinnar.
Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds viðtals án gildra ástæðna hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og hafi því borið að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli sá sem hafi áður sætt viðurlögum missa rétt sinn til greiðslu atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði ef slík atvik eigi sér aftur stað á sama bótatímabili samkvæmt 29. gr. laganna. Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags 6. nóvember, hafi því haft ítrekunaráhrif á grundvelli ákvæðisins. Kæranda hafi því borið að sæta viðurlögum í þrjá mánuði.
Vinnumálastofnun bendi einnig á að með kæru til úrskurðarnefndar hafi borist flugfarseðill sem sýni að kærandi hafi farið af landi brott þann 6. júlí 2024. Því sé ljóst að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga frá þeim tíma og að tilefni sé til að Vinnumálastofnun taki enn aðra ákvörðun í máli kæranda um rétt hans til atvinnuleysistrygginga með tilliti til dvalartíma hans erlendis.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli [sæta] niðurfellingu á greiðslum atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærðar eru ákvarðanir Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og um að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var tvívegis boðaður kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem áttu að fara fram annars vegar 24. september 2024 og hins vegar 15. október 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Fyrir seinni kynningarfundinn var athygli kæranda vakin á því að ekki væri hægt að fá nýja boðun á fund en ástæður forfalla yrðu sendar á Greiðslustofu til skoðunar þar sem afstaða yrði tekin til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Boðanir voru sendar kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti á fundina.
Kærandi hefur greint frá því að hafa verið staddur í B vegna veikinda móður hans og að hann kæmi kannski aftur til Íslands í lok nóvember 2024.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaða fundi hjá Vinnumálastofnun.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 26. júlí 2024 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. nóvember 2024, var umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur synjað þar sem hann hefði ekki skilað inn umbeðnum gögnum um ferð sína erlendis og óvíst væri hvort skilyrði 13. og 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar væru uppfyllt. Með kæru til úrskurðarnefndar barst flugfarseðill sem sýnir að kærandi fór af landi brott 6. júlí 2024.
Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Eitt af þeim skilyrðum er að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. Einnig er skilyrði samkvæmt 1. mgr. 13. gr. að vera í virkri atvinnuleit, sbr. 14. gr., en í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, sbr. d. lið ákvæðisins.
Ljóst er að kærandi var ekki tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 eftir 6. júlí 2024, enda þá ekki staddur hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 6. nóvember 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að hafna umsókn hans um atvinnuleysisbætur, eru staðfestar.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir