Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 492/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 492/2024

Fimmtudaginn 6. mars 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 8. október 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júlí 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júlí 2024, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki bætt á boðaðan fund hjá stofnuninni.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 8. október 2024. Með bréfi, dags. 9. október 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. nóvember 2024 þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hefði hin kærða ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 verið afturkölluð. Kærandi fengi greiddar atvinnuleysisbætur frá því tímabili sem greiðslur til hans hefðu verið stöðvaðar, eða þann 18. júlí 2024. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. nóvember 2024, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með tölvupósti 15. janúar 2025. Svar barst frá kæranda 23. janúar 2025 þar sem hann óskaði eftir að halda áfram með mál sitt og lagði fram afrit af ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. júní 2024, um þriggja mánaða viðurlög.

Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 28. janúar 2025, var kæranda tilkynnt að kærufrestur væri liðinn vegna ákvörðunar, dags. 14. júní 2024, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Svar barst ekki. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. febrúar 2025, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna ákvörðunar stofnunarinnar, dags. 14. júní 2024. Umbeðin gögn bárust 18. febrúar 2025.

II.  Niðurstaða

Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júlí 2024, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Undir rekstri málsins óskaði kærandi einnig eftir að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. júní 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði. Verður fyrst vikið að þeirri ákvörðun.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um þriggja mánaða viðurlög var tilkynnt kæranda með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 14. júní 2024, en kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. október 2024. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn vegna þeirrar ákvörðunar þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Fyrir liggur að kæranda var í ákvörðun, dags. 14. júní 2024, leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Kæranda var veittur kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga gætu átt við í málinu. Svar barst ekki. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Þá verður heldur ekki séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Í því sambandi er meðal annars haft í huga að gögn málsins benda ekki til þess að framangreind ákvörðun hafi verið efnislega röng. Að því virtu og með vísan til framangreinds er þeim hluta málsins er snýr að ákvörðun, dags. 14. júní 2024, vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kemur þá til skoðunar ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júlí 2024, um tveggja mánaða viðurlög. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að sú ákvörðun hefði verið afturkölluð og að kærandi fengi því greiddar atvinnuleysisbætur frá því tímabili sem greiðslur til hans hefðu verið stöðvaðar, eða þann 18. júlí 2024.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kveður úrskurðarnefndin upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur afturkallað ákvörðun, dags. 18. júlí 2024, verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar hvað hana varðar. Að því virtu er þeim hluta málsins einnig vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta