Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 550/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 550/2023

Fimmtudaginn 15. febrúar 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 14. nóvember 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. september 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. janúar 2023 og var umsóknin samþykkt 23. febrúar 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. september 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað starfi hjá B. Í kjölfar skýringa frá kæranda sem bárust Vinnumálastofnun 2. nóvember 2023 var mál hans tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. nóvember 2023, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 14. nóvember 2023. Með bréfi, dags. 21. nóvember 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 19. desember 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. desember 2023 og tölvupósti 10. janúar 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar er ekki að finna sérstakan rökstuðning fyrir kæru en af kærunni má ráða að kærandi sé ósáttur við þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 11. janúar 2023. Með erindi, dags. 23. febrúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að vegna starfsloka hans hjá C væri bótaréttur felldur niður í tvo mánuði.

Þann 18. september 2023 hafi Vinnumálastofnun borist tilkynning þess efnis að kærandi hefði hafnað atvinnuviðtali hjá B. Um hafi verið að ræða starf á dekkjaverkstæði en kæranda hafi verið miðlað í umrætt starf af Vinnumálastofnun. Af upplýsingum atvinnurekanda megi ráða að kærandi hafi lýst því yfir að hann hefði ekki áhuga á starfi við dekkjaskipti. Með erindi, dags. 18. september 2023, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar á ástæðum þess að hann hefði hafnað starfi hjá B. Engar skýringar hafi borist frá kæranda og með erindi, dags. 28. september 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að réttur hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga væri felldur niður í þrjá mánuði sökum þess að hann hefði hafnaði starfi hjá B. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. jafnframt 1. mgr. [61.] gr.

Þann 2. nóvember 2023 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar frá kæranda þess efnis að hann hefði ekki hafnað starfi þar sem honum hefði aldrei boðist starfið. Þá hafi komið fram að hann hefði ekki reynsluna sem þyrfti til að sinna starfinu. Vinnumálastofnun hafi þann 8. nóvember 2023 óskað eftir frekari upplýsingum frá atvinnurekanda varðandi mál kæranda og upphafleg tilkynning hafi verið staðfest af hálfu atvinnurekanda. Starfsmaður B hafi haft samband við kæranda símleiðis og kærandi hafi ekki haft áhuga á að koma í viðtal þegar hann hafi verið upplýstur um eðli starfsins.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. september 2023, hafi verið tekin fyrir að nýju í kjölfar þess að stofnuninni hafi borist frekari skýringar frá kæranda. Með erindi, dags. 9. nóvember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að það væri mat Vinnumálastofnunar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hans, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir leiti nýs starfs. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af almennum skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá B. Honum hafi í kjölfarið verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig 1. mgr. 61. gr. Ákvæði 1. mgr. 57. gr. sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé tekið fram að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem bjóðist. Ástæðan sé einkum sú að atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þyki mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við það að hafna starfi.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt stangist á við upplýsingar frá atvinnurekanda sem hafi verið staðreyndar með eftirfylgni Vinnumálastofnunar. Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda þess efnis að hann hafi ekki hafnað umræddu starfi hjá B eða að honum hafi ekki verið boðið starfið vegna reynsluleysis ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Þá vísi Vinnumálastofnun til þess að á meðal almennra skilyrða fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Í virkri atvinnuleit felist meðal annars að vera reiðubúinn til að taka hverju því starfi sem greitt sé fyrir, hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu, sbr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls þess sem að framan hafi verið rakið sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfi hjá B í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig 1. mgr. 61. gr.

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. febrúar 2023, hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum starfsloka. Þegar kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 28. september 2023, sökum þess að hann hefði hafnað starfi hjá B hafi því komið til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hans, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hann skuli því ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga fyrr en að þremur mánuðum liðnum.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði sökum þess að hafa hafnað starfi hjá B, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Í athugasemdum við 57. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 kemur fram:

„Enn fremur þykir mikilvægt að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem býðst. Ástæðan er einkum sú að atvinnuviðtal er venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þykir það mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi. Verður að teljast óeðlilegt að hinn tryggði geti neitað því að fara í atvinnuviðtal án viðbragða frá kerfinu en þeir sem fóru í viðtalið og var boðið starfið þurfi að þola biðtíma eftir atvinnuleysisbótum taki þeir ekki starfinu.“

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda miðlað í starf hjá B. Samkvæmt skýringum fyrirtækisins hafði kærandi ekki áhuga á að koma í viðtal þegar hann komst að því að um væri að ræða starf við dekkjaþjónustu.

Þar sem kærandi hafnaði atvinnuviðtali hjá B kom réttilega til viðurlaga á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Í 1. mgr. 61. gr. laganna er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 23. febrúar 2023 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.

 

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. september 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum