Mál nr. 642/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 642/2024
Fimmtudaginn 20. febrúar 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 6. desember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. október 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 19. ágúst 2024 og var umsóknin samþykkt 4. september 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. október 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. desember 2024. Með bréfi, dags. 10. desember 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 13. janúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. janúar 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að atvinnuleysisbætur til hans hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði þar sem hann hafi aðeins mætt á námskeið í eitt skipti af þremur. Ástæðan sé sú að hann hafi ekki fengið tilkynningar í tölvupósti um hin tvö skiptin en því trúi Vinnumálastofnun ekki. Kærandi hafi óskað eftir endurupptöku en Vinnumálastofnun hafi staðfest fyrri ákvörðun sína. Málið hafi valdið kæranda miklum erfiðleikum á allra versta tíma. Kærandi hefði mætt á námskeiðið í hin skiptin hefði hann vitað af þeim. Kærandi telji málið ekki hafa verið skoðað nægilega vel þar sem ekki hafi verið óskað eftir gögnum af netfangi hans. Á sama tíma hafi kærandi skráð sig atvinnulausan og mætt á kynningarfund þrátt fyrir að fá ekki atvinnuleysisbætur.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 19. ágúst 2024. Með erindi, dags. 4. september 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 26. september 2024 hafi kærandi verið boðaður á námskeiðið „Það eru alltaf til leiðir og lausnir“ á vegum Vinnumálastofnunar sem hafi átt að fara fram í gegnum netið. Í boðuninni hafi sérstaklega verið tilgreint að námskeiðið yrði haldið í þrjú skipti dagana 30. september 2024, klukkan 10:00, 2. október 2024, klukkan 10:00 og 7. október 2024, klukkan 10:00. Kærandi hafi verið upplýstur um að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 26. september 2024, klukkan 9:13. Kærandi hafi einungis mætt þann 30. september 2024 en ekki í seinni tvö skiptin sem námskeiðið hafi verið haldið. Engin forföll hafi borist frá kæranda á boðað námskeið.
Með erindi, dags. 10. október 2024, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki uppfyllt kröfur um skyldumætingu á boðað námskeið sem hafi átt að fara fram dagana 30. september 2024 og 2. og 7. október 2024. Áréttað hafi verið að hefði hann hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þann 17. október 2024 hafi Vinnumálastofnun borist skriflegar skýringar frá kæranda þar sem komið hafi fram að hann hefði sannarlega mætt á námskeiðið fyrsta daginn sem námskeiðið hafi verið haldið en hafi ekki mætt í seinni tvö skiptin þar sem hann hefði ekki fengið neina tilkynningu um seinni tvö skiptin og auk þess ekki fengið sendan hlekk á fundinn.
Með erindi, dags. 19. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt um tveggja mánaða stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta til hans sökum þess að hann hefði ekki uppfyllt kröfur um mætingaskyldu á boðað námskeið dagana 30. september 2024 og 2. og 7. október 2024. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þann 5. og 13. nóvember 2024 hafi kærandi sent inn frekari skýringar á ástæðum þess að hann hefði ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið. Kærandi hafi borið því við að hafa ekki fengið tilkynningu um seinni tvö skiptin sem kærandi hafi átt að mæta á boðað námskeið. Kærandi hafi sent Vinnumálastofnun afrit af tölvupóstsamskiptum sem hafi farið á milli hans og kennara námskeiðsins. Kennari námskeiðsins hafi áréttað að hún hefði einungis sent tölvupóst en ekki smáskilaboð á kæranda. Þá hafi kærandi farið fram á rannsókn á máli sínu og talið ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. október 2024, ekki sanngjarna þar sem hann hefði ekki fengið neina tilkynningu um að mæta í seinni tvö skiptin á boðað námskeið og að hann hefði heldur ekki fengið hlekk á fundinn í seinni tvö skiptin.
Vinnumálastofnun hafi tekið mál kæranda til endurumfjöllunar með tilliti til nýrra gagna þann 19. nóvember 2024. Það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun sem hafi verið birt kæranda þann 19. október 2024.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið sem hafi verið haldið dagana 30. september 2024 og 2. og 7. október 2024. Kærandi hafi einungis mætt fyrsta daginn sem námskeiðið hafi farið fram. Vinnumálastofnun hafi hvorki borist tilkynning um forföll né veikindi af hálfu kæranda. Í fyrirliggjandi skýringum komi fram að kærandi hafi sannarlega mætt á námskeiðið þann 30. september 2024 en ekki seinni tvö skiptin, það er dagana 2. og 7. október 2024. Kærandi hefði ekki mætt í seinni tvö skiptin sökum þess að hann hefði ekki fengið neina tilkynningu eða hlekk á fundinn.
Vinnumálastofnun fallist ekki á að þær skýringar sem kærandi hafi veitt geti talist gildar. Vinnumálastofnun vísi til þess að kæranda hafi sannarlega verið send tilkynning í tölvupósti, farsíma og á „Mínar síður“ um boðun á umrætt námskeið þann 26. september 2024 og honum verið tilkynnt um hvenær námskeiðið færi fram. Það hafi komið skýrmerkilega fram í boðun að námskeiðið yrði haldið í þrjú skipti og dagsetningar ásamt tímasetningum verið tilgreindar í boðun. Það að kæranda hafi verið ókunnugt um frekari áminningar kennara námskeiðs í tölvupósti breyti ekki þeirri staðreynd að Vinnumálastofnun hafi sent kæranda boðun með sannarlegum hætti þar sem allar tímasetningar hafi komið fram.
Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 10. október 2024. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi honum verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hans með tölvupósti, skilaboðum inn á „Mínum síðum“ og með smáskilaboðum. Kærandi hafi því verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Fyrir liggi að kæranda hafi verið send tilkynning í farsíma og tölvupósti þar sem honum hafi verið tilkynnt um skilaboð á „Mínum síðum“. Í samskiptasögu kæranda komi fram að honum hafi sannarlega verið sendur tölvupóstur á uppgefið netfang, X, og með smáskilaboðum í skráð farsímanúmer, X, þann 26. september 2024, klukkan 9:13. Boðun til umrædds námskeiðs hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð á námskeið hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda með meira en sólahringsfyrirvara. Kærandi hafi í upphafi umsóknar verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun á umrætt námskeið hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án ástæðulausrar tafar. Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 26. september 2024 boðaður á námskeið hjá Vinnumálastofnun sem haldið yrði í þrjú skipti, tvo tíma í senn, dagana 30. september 2024, 2. og 7. október 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma þar sem allar dagsetningar námskeiðsins voru tilgreindar. Kærandi mætti aðeins á námskeiðið 30. september 2024 en ekki dagana 2. og 7. október 2024 og boðaði ekki forföll.
Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi aðeins mætt á námskeiðið í eitt skipti af þremur þar sem hann hafi ekki fengið tilkynningar um hin tvö skiptin. Kærandi hefði mætt á námskeiðið í hin skiptin hefði hann vitað af þeim.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. október 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir