Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 119/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 119/2025

Föstudaginn 16. maí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 24. febrúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2025, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála sama dag. Með bréfi, dags. 25. febrúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 24. mars 2025 þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hefði hin kærða ákvörðun þegar verið afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. mars 2025, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst frá kæranda 26. mars 2025 og var það kynnt Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. apríl 2025. Í sama bréfi var einnig óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun er vörðuðu hina kærðu ákvörðun. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 30. apríl 2025. Umbeðin gögn bárust 2. maí 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Í svari kæranda frá 26. mars 2025 kemur fram að hann hafi yfirgefið landið nokkrum dögum eftir að hafa fengið ákvörðun Vinnumálastofnunar um greiðslustöðvun, dags. 24. febrúar 2025. Vinnumálastofnun hafi þá tekið ákvörðun um stöðva greiðslur til hans en kærandi hafi ekki haft val um annað en að yfirgefa landið. Það hafi kærandi gert vegna rangrar ákvörðunar Vinnumálastofnunar um greiðslustöðvun. Kærandi hafi afskráð sig af atvinnuleysisskrá þar sem hann sé ekki staddur á Íslandi eins og er. Kærandi hafi þó fengið atvinnutilboð sem hann sé að íhuga að samþykkja.  

III.  Niðurstaða

Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hefði hin kærða ákvörðun verið afturkölluð. Samkvæmt gögnum málsins var sú ákvörðun tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 18. mars 2025.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kveður úrskurðarnefndin upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur afturkallað hina kærðu ákvörðun verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar vegna þeirrar ákvörðunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta