Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 118/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 118/2025

Fimmtudaginn 3. apríl 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 24. febrúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á árinu 2022. Með greiðsluseðli Vinnumálastofnunar, dags. 3. janúar 2023, var kæranda tilkynnt um skuld við stofnunina að fjárhæð 74.439 kr. Þann 27. janúar 2025 var kæranda tilkynnt að ógreidd krafa vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta hefði verið áframsend til frekari meðferðar hjá Innheimtumiðstöð.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 24. febrúar 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. febrúar 2025, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 7. mars 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála greinir kærandi frá því að hann kæri þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að senda til innheimtu meintar ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 74.439 kr. Tilkynning um kröfuna hafi fyrst borist kæranda þann 27. janúar 2025 í gegnum „Mínar síður“ Vinnumálastofnunar en áður hafi hann hvorki fengið formlega tilkynningu né skýringar um meinta skuld. Því telji kærandi að hann hafi rétt á að kæra ákvörðunina og fá hana rökstudda með fullnægjandi hætti.

Í rökstuðningi fyrir kæru vísar kærandi í fyrsta lagi til skorts á leiðbeiningarskyldu og réttmætri tilkynningu um skuld. Í öðru lagi vanrækslu á upplýsingaskyldu stjórnvalda og í þriðja lagi til óskýrra útreikninga sem og ófullnægjandi rökstuðnings. Með vísan til þess óski kærandi í fyrsta lagi eftir því að úrskurðarnefnd velferðarmála felli niður kröfuna um endurgreiðslu þar sem Vinnumálastofnun hafi ekki sýnt fram á að um raunverulega ofgreiðslu hafi verið að ræða en kærandi hafi tekið við greiðslunum í góðri trú. Í öðru lagi að úrskurðarnefndin meti hvort Vinnumálastofnun hafi brotið gegn leiðbeiningarskyldu samkvæmt 7. gr. stjórnsýslulaga og í þriðja lagi að nefndin tryggi að stjórnvaldsákvarðanir um endurkröfur séu tilkynntar með skýrum hætti og innan hæfilegs tíma en ekki rúmum tveimur árum eftir meint brot.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 74.439 kr.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Með greiðsluseðli Vinnumálastofnunar, dags. 3. janúar 2023, var kæranda tilkynnt um skuld við stofnunina, að fjárhæð 74.439 kr. Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 24. febrúar 2025. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þess að kæra í máli þessu barst meira en ári eftir að ákvörðun var tilkynnt kæranda er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta