Mál nr. 630/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 630/2024
Fimmtudaginn 20. mars 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 2. desember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. október 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar bætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 22. apríl 2024 og var umsóknin samþykkt 24. maí 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. október 2024, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar þar sem hann stundaði nám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Kæranda var einnig tilkynnt að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. til 30. september 2024, að fjárhæð 351.054 kr., að meðtöldu 15% álagi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. desember 2024. Með bréfi, dags. 3. desember 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 19. febrúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að hann hafi í byrjun árs 2021 hafið doktorsnám við viðskipta- og hagfræðideild B og verið á námsstyrk til febrúar 2024 en doktorsnemastyrkir séu að hámarki veittir í þrjú ár. Í apríl 2024 hafi kærandi því verið tekjulaus og hafi ákveðið að sækja um atvinnuleysisbætur. Vinnumálastofnun hafi samþykkt það með þeim fyrirvara að hann myndi gera námssamning við stofnunina. Vinnumálastofnun hafi því vitað að kærandi væri skráður í doktorsnám í háskólanum.
Vinnumálastofnun hafi tjáð kæranda að hann væri skráður í fullt nám hjá B sem sé ekki rétt. Kærandi hafi strax brugðist við því og sent stofnuninni skýringarbréf og undirritað skjal frá leiðbeinanda til að leiðrétta þann misskilning. Kærandi kæri ákvörðun Vinnumálastofnunar þar sem hún sé óréttmæt, enda sé hann ekki í fullu námi þar sem hann hafi lokið við tilskildan einingafjölda, sbr. meðfylgjandi staðfestingu frá viðskipta- og hagfræðideild háskólans. Kærandi bendi á að Rannsóknarráð B hafi ekki samþykkt framvinduskýrsluna og það hafi tekið lengri tíma en kærandi hafi gert ráð fyrir eins og fram komi í skýringarbréfi og staðfestingu frá leiðbeinanda. Vinnumálastofnun hafi ekki tekið tillit til þeirra skýringa, þ.e.a.s. þegar skýringarbréfið hafi verið skrifað hafi kærandi verið nýlega búinn að senda framvinduskýrsluna til rannsóknarráðsins en hún ekki enn farið fyrir ráðið til umsagnar. Því hafi Vinnumálastofnun tekið ákvörðun sína á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum, að minnsta kosti hafi ákvörðunin verið ótímabær. Vinnumálastofnun hafi því ekki tekið tillit til þess að það ætti eftir að samþykkja framvinduskýrsluna sem sé auðvitað nauðsynlegt hlutur til að meta námsferil doktorsnema eða framvindu hans í námi. Ráðið hafi nú lokið yfirferð og hafi samþykkt framvinduskýrsluna, ásamt þeim markmiðum sem kærandi hafi sett um námslok. Sönnun þess komi fram í meðfylgjandi viðbótargögnum sem séu ný. Fyrra sönnunargagnið sé staðfesting frá skrifstofustjóra viðskipta- og hagfræðideildar B. Það sýni glögglega að ákvörðun Vinnumálastofnunar sé óréttmæt. Seinna sönnunargagnið sé uppfærður námsferill en það sýni að kærandi hafi ekki verið í fullu námi á bótatímabilinu eins og Vinnumálastofnun hafi haldið fram. Námsferillinn sýni framvinduskýrslur metnar til ákveðins einingafjölda. Einingarnar fyrir árið 2024 séu reiknaðar út í samræmi við mat deildarinnar á námshlutfalli byggt á innihaldi framvinduskýrslunnar, s.s. markmiðum og vinnuálagi. Kærandi biðli til úrskurðarnefndarinnar að taka viðeigandi tillit til sérstakra aðstæðna hans í doktorsnámi. Mikið álag fylgi doktorsnáminu og því hafi ákvörðun Vinnumálastofnunar reynst kæranda mjög erfið, sérstaklega þegar um sé að ræða svo krítískan tímapunkt í náminu. Kærandi biðji að réttmæt og sanngjörn ákvörðun stjórnsýslunnar nái fram að ganga í máli hans. Að mál hans verði tekið aftur fyrir hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar og að endurgreiðslukrafa verði felld niður tafarlaust.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um atvinnuleysistryggingar þann 22. apríl 2024. Með erindi, dags. 24. maí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt með 100% bótarétti.
Í umsókn kæranda hafi komið fram að hann væri skráður í nám, hefði verið skráður í nám á fyrri námsönn og væri skráður í nám á næstu námsönn. Gerður hafi verið námssamningur við kæranda sem leyfði 12 ECTS einingar á vorönn 2024. Samningurinn sé dagsettur 24. maí 2024.
Við reglubundið eftirlit hafi komið í ljós að kærandi hafi verið skráður í 30 ECTS eininga nám á haustönn 2024. Með erindi, dags. 9. október 2024, hafi verið óskað eftir því að kærandi skilaði skólavottorði þar sem umfang náms hans væri tilgreint, ásamt skýringum á því hvers vegna hann hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun ekki um nám sitt. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að veita stofnuninni umbeðin gögn. Kærandi hafi lagt fram gögn sem staðfestu að hann væri í doktorsnámi en þau hafi stangast á við skráningu skólans. Í gögnum frá skóla segi að kærandi sé í 30 ECTS einingum en samkvæmt bréfi, dags. 17. október 2024, undirritað af lektor við B sé því haldið fram að kærandi sé ekki að sækja námskeið á önninni, sem undirrituðum væri kunnugt um. Kærandi hafi einnig sent inn bréf 17. október 2024 þar sem fram komi að í staðfestingu frá leiðbeinanda komi fram að hann sé að ljúka doktorsnámi og hafi lokið við einingar sem þurfi til að útskrifast. Hvergi hafi komið fram skýring á skráningum á fjölda eininga sem fram hafi komið í gögnum skólans sem hafi verið aflað í eftirliti stofnunarinnar.
Með erindi, dags. 24. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði stundað nám á sama tíma og hann hefði þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysistryggingar á tímabilinu 1. til 30. september 2024, að fjárhæð 305.264 kr., auk 15% álags eða samtals 351.054 kr. sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá hafi kæranda jafnframt verið tilkynnt að greiðslur til hans væru stöðvaðar á grundvelli 52. gr. laganna.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Í c. lið 3. gr. laganna sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:
„Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“
Í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé nánar kveðið á um nám. Í 1. mgr. 52. gr. segi orðrétt:
„Hver sá sem stundar nám, sbr. c. lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.“
Ljóst sé af ákvæði 1. mgr. 52. gr. að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum með 52. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé tiltekið að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem um sé að ræða fjarnám, dag- eða kvöldskóla.
Í 2. til 5. mgr. 52. gr. laganna séu undanþágur frá 1. mgr. sömu greinar. Ljóst sé af skýringum kæranda að hann telji að ákvæði 4. mgr. 52. gr. laganna eigi við í hans tilfelli.
Ákvæði 4. mgr. 52. gr. laganna sé svohljóðandi:
„Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.“
Í ákvæðinu sé því heimild til að stunda ólánshæft nám, sem skipulagt sé samhliða vinnu, án skerðingar á atvinnuleysisbótum, svo lengi sem námið hindri ekki virka atvinnuleit né þátttöku á vinnumarkaði.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi verið skráður í 30 ECTS eininga nám við B á haustmisseri 2024, á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Samkvæmt úthlutunarreglum Menntasjóðs námsmanna sé að hámarki veitt lán fyrir 30 ECTS-einingum á hvoru misseri og að lágmarki fyrir 22 ECTS. Nám kæranda hafi því verið lánshæft samkvæmt lánareglum Menntasjóðs námsmanna og falli því ekki að undanþágu 4. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé því ljóst að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. til 30. september 2024. Í 39. gr. laganna sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Í 2. mgr. 39. gr. segi orðrétt:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kæranda beri að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún hafi fengið greiddar fyrir tímabilið 1. til [30.] september 2024, samtals að fjárhæð 305.264 kr. auk 15% álags, enda liggi fyrir að hann hafi ekki uppfyllt skilyrði laganna á umræddu tímabili, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Heildarskuld kæranda með álagi nemi í dag 351.054 kr.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslu atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 1. til 30. september 2024, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að meðtöldu álagi, samtals 351.054 kr., sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar bætur með vísan til þess að hann hafi stundað nám.
Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:
„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.
Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.
Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.
Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.
Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“
Í c. lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:
„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“
Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.
Þegar sótt er um atvinnuleysisbætur er umsækjandi spurður hvort hann sé skráður í nám á umsóknardegi. Þá er upplýst að almennt sé ekki heimilt að vera í námi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Þó séu undantekningar á þeirri meginreglu. Tekið er fram að það sé því mjög mikilvægt að hafa samband sem fyrst við ráðgjafa Vinnumálastofnunar til að kanna hvort viðkomandi eigi rétt á námssamningi.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var skráður í doktorsnám við B þegar hann sótti um atvinnuleysisbætur í apríl 2024. Þann 24. maí 2024 var gerður námssamningur við kæranda vegna vorannar 2024. Í tilkynningu til kæranda þar um er greint frá því að honum væri heimilt að stunda 12 ECTS eininga nám við B á vorönn 2024. Að þeim tíma liðnum væri kæranda ekki heimilt að stunda frekara nám án samþykkis stofnunarinnar. Þá var athygli kæranda vakin á því að ef hann myndi halda áfram námi samhliða atvinnuleysisbótum að framangreindu tímabili liðnu gæti komið til innheimtu með 15% álagi og viðurlaga eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Það væri því mikilvægt að kærandi hefði samband við Vinnumálastofnun að loknu tímabili ef hann hygðist fara í frekara nám. Óumdeilt er að kærandi hélt áfram að stunda doktorsnám sitt á haustönn 2024 og upplýsti Vinnumálastofnun ekki um það.
Með vísan til framangreindra upplýsinga sem kæranda voru veittar telur úrskurðarnefndin ljóst að hann hefði mátt vita að honum væri óheimilt að halda áfram námi sínu samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Þar sem Vinnumálastofnun hafði ekki vitneskju um nám kæranda fékk hann greiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. til 30. september 2024 án þess að eiga rétt til þeirra, sbr. framangreinda meginreglu um að námsmenn séu ekki tryggðir samkvæmt lögum nr. 54/2006 .
Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um nám sitt er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. október 2024, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir