Mál nr. 523/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 523/2024
Fimmtudaginn 9. janúar 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 21. október 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. október 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 27. janúar 2024 og var umsóknin samþykkt 6. mars 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. október 2024, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 372.020 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.
Mál kæranda var tekið fyrir að nýju í kjölfar nýrra gagna. Með ákvörðun, dags. 11. nóvember 2024, var fyrri ákvörðun staðfest en kæranda tilkynnt að ofgreiddar atvinnuleysisbætur næmu 206.207 kr. sem yrðu innheimtar án álags samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 21. október 2024. Með bréfi, dags. 23. október 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 28. nóvember 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. desember 2024. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að hann hafi skilað umbeðnum gögnum en þau hafi týnst hjá Vinnumálastofnun. Hann hafi skilað gögnunum á ný ásamt rökstuðningi og hafi verið fullvissaður í síma um að skuld hans yrði endurskoðuð og lækkuð. Að mati kæranda sé umrædd skuld ekki reiknuð með réttum hætti og refsiaðgerðir séu ekki byggðar á réttum forsendum.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga þann 27. janúar 2024. Með erindi, dags. 6. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með ótilkynntar tekjur í mars 2024 frá B og C. Auk þess hafi kærandi verið með ótilkynntar tekjur í febrúar 2024 frá C og D. Með erindi, dags. 13. september 2024, hafi verið óskað eftir að kærandi veitti stofnuninni skýringar vegna umræddra tekna, auk afrits af launaseðlum.
Með erindi, dags. 15. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysistrygginga væri bótaréttur hans felldur niður frá og með þeim degi í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hans hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur í febrúar 2024, að fjárhæð 323.496 kr., sem yrðu innheimtar með 15% álagi samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna. Heildarskuld kæranda væri því að fjárhæð 372.020 kr. með álagi.
Kærandi hafi þann 16. október 2024 sent með tölvupósti skýringar, launaseðla og önnur gögn varðandi umræddar tekjur í febrúar og mars 2024. Þann 11. nóvember 2024 hafi kæranda verið sent erindi um að ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 15. október 2024 hefði verið tekin til umfjöllunar að nýju. Kæranda hafi verið tilkynnt um að honum bæri að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hefði látið hjá líða að tilkynna um tekjur samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið tilkynnt að ofgreiddar atvinnuleysisbætur væru nú 206.207 kr. sem yrðu innheimtar án álags samkvæmt 2. mgr. 39. gr. sömu laga.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 15. október 2024 hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 21. október 2024. Þar sem sú ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi þegar verið tekin til umfjöllunar að nýju, eftir að ákvörðunin hafi verið kærð til úrskurðarnefndarinnar, miðist umsögn stofnunarinnar við nýja ákvörðun hennar, dags. 11. nóvember 2024.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. október 2024, um að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hafi ekki tilkynnt um tekjur sínar í febrúar 2024. Kæranda hafi jafnframt verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 323.496 kr. ásamt 15% álagi samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna. Heildarskuld kæranda hafi því verið að fjárhæð 372.020 kr. með álagi. Hin kærða ákvörðun hafi verið tekin til umfjöllunar að nýju þann 11. nóvember 2024. Kæranda hafi áfram verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna en í ljósi nýrra gagna hafi ofgreiddar atvinnuleysisbætur verið að fjárhæð 206.207 kr. og skyldu þær innheimtar án álags samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.
Í kæru sinni til úrskurðarnefndar velferðarmála taki kærandi fram að hann hafi skilað umbeðnum gögnum og Vinnumálastofnun hafi týnt þeim. Hann hafi þá skilað þeim aftur ásamt rökstuðningi og fengið fullvissu um að skuld yrði endurskoðuð og lækkuð. Skuldin væri ekki rétt reiknuð og refsiaðgerðir ekki byggðar á réttum forsendum. Þar sem skuld kæranda hafi þegar verið endurskoðuð og lækkuð snúi ágreiningur í máli þessu að því hvort kæranda hafi borið að sæta viðurlögum í formi biðtíma á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laganna.
Ákvæði 1. mgr. 59. gr. sé svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Samkvæmt ákvæðinu skuli atvinnuleitandi sem láti hjá líða að veita Vinnumálastofnun upplýsingar sem kunni að hafa áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá því að honum sé tilkynnt um þá ákvörðun.
Samkvæmt samskiptaskrá Vinnumálastofnunar hafi kærandi ekki látið stofnunina vita af tekjum sínum í febrúar 2024. Þá hafi kærandi ekki skráð tekjurnar í gegnum „Mínar síður“ né tekið þær fram í umsókn sinni um atvinnuleysisbætur. Því sé ljóst að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um tekjur sínar, meðal annars frá C í febrúar 2024.
Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem geti haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Auk þess sé í 3. mgr. 9. gr. sérstaklega fjallað um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu.
Ákvæði 3. mgr. 9. gr. sé svohljóðandi:
„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“
Samkvæmt ákvæðinu beri atvinnuleitenda að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær tekjur sem hann fái, svo sem vegna tilfallandi vinnu. Auk þess sem atvinnuleitanda beri að tilkynna hversu lengi vinnan standi yfir.
Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekað kynnt á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu sína gagnvart Vinnumálastofnun. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Auk þess sé þeim jafnframt bent á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem meðal annars sé að finna ítarlegar upplýsingar um skyldur þeirra sem hafi aðrar tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að tilkynna og skrá slíkar tekjur. Af framangreindu sé ljóst að kærandi hafi ekki uppfyllt tilkynningarskyldu sína samkvæmt lögunum með því að láta hjá líða að tilkynna um tekjur sínar.
Í erindi Vinnumálastofnunar til kæranda þann 13. september 2024 hafi komið fram að hann hefði í febrúar og mars 2024 fengið tekjur frá B, D og C, sem hann hefði ekki gert grein fyrir. Fyrir liggi að kærandi hafi afskráð sig frá og með 7. mars 2024 með þeim skýringum að hann hefði byrjað í vinnu. Samkvæmt gögnum frá skattyfirvöldum sé ljóst að kærandi hafi hafið störf í mars 2024. Samkvæmt ráðningarsamningi hafi kærandi hafið störf hjá E þann 7. mars 2024. Tekjur kæranda frá E hafi verið vegna starfa hans eftir að hann hefði afskráð sig sem atvinnuleitandi hjá Vinnumálastofnun. Þær tekjur hafi því ekki komið til skerðingar á atvinnuleysisbótum kæranda. Tekjur kæranda frá C í mars 2024 hafi numið fjárhæð 57.892 kr. Í reglugerð nr. 1422/2023 sem sett sé með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar hafi frítekjumark fyrir árið 2024 verið 86.114 kr. Tekjur kæranda frá C hafi því verið undir frítekjumarki fyrir árið 2024 og ekki komið til skerðingar á atvinnuleysisbótum.
Við ákvörðun Vinnumálastofnunar þann 15. október 2024 hafi kærandi hvorki skilað gögnum né skýringum. Því hafi tekjur kæranda frá D að fjárhæð 246.925 kr. og C að fjárhæð 656.861 kr. í febrúar 2024 verið skráðar til skerðingar á atvinnuleysisbótum. Í kjölfar nýrra gagna hafi málið verið tekið til umfjöllunar að nýju. Á meðal gagna hafi verið launaseðill frá D. Þar hafi komið fram að tekjur væru uppgjör á óteknum orlofsdögum kæranda. Í 51. gr. laganna sé kveðið á um greiðslur sem séu ósamrýmanlegar greiðslum atvinnuleysisbóta. Í 3. mgr. 51. gr. segi að sá sem þiggi greiðslur vegna ótekins orlofs sé ekki tryggður samkvæmt lögunum. Skerðing á greiðslum atvinnuleysisbóta í febrúar 2024 af tekjum frá D hafi því verið leiðrétt með ákvörðun Vinnumálastofnun, dags. 11. nóvember 2024, og skuld kæranda lækkuð til samræmis.
Af framangreindu sé ljóst að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna tekjur í febrúar 2024 frá C sem Vinnumálastofnun hafi borið að skrá til skerðingar á atvinnuleysisbótum samkvæmt 1. mgr. 36. gr. laganna.
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. sé svohljóðandi:
„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“
Kæranda hafi því borið að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. til 29. febrúar 2024, samtals að fjárhæð 206.207 kr. í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laganna.
Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 sé fjallað um að Vinnumálastofnun beri að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur.
Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar tekjur. Atvinnuleitendum sé ítrekað tilkynnt um þá skyldu sína og leiðbeint að það skuli gera í gegnum „Mínar síður“. Jafnframt vísi Vinnumálastofnun til þess að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. sömu laga. Auk þess hafi Vinnumálastofnun verið skylt að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að fjárhæð 206.207 kr.
Í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. segi að fella skuli niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldmyndunar. Í ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. nóvember 2024, hafi álag á skuld kæranda verið fellt niður. Heildarskuld kæranda sé því að fjárhæð 206.207 kr.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Ásamt því beri honum að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 206.207 kr. samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. október 2024, var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 372.020 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.
Mál kæranda var tekið fyrir að nýju af hálfu Vinnumálastofnunar í kjölfar nýrra gagna. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 11. nóvember 2024, var fyrri ákvörðun staðfest en skuld kæranda lækkuð í 206.207 kr. sem yrði innheimt án álags samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í febrúar 2024 frá C samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í september 2024.
Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk framangreindan mánuð. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur vegna framangreindra tekna. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um framangreindar tekjur fékk hann greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Fyrir liggur að með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. nóvember 2024, var álag á skuld kæranda verið fellt niður.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. nóvember 2024, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. nóvember 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir