Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 137/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 137/2025

Föstudaginn 30. maí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 3. janúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hjá fyrrum vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. mars 2025. Með bréfi, dags. 4. mars 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 24. mars 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu 25. mars 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann telji ákvörðun Vinnumálastofnunar ekki rétta. Hann hafi starfað sem skólaliði frá 13. september 2023 til 2. janúar 2025 og hætt að eigin frumkvæði. Hann hafi gefið þrjár ástæður fyrir uppsögn sinni en láti einnig læknisvottorð fylgja til að staðfesta ákvörðun sína. Fyrsta ástæðan hafi verið sú að hann hafi verið að vinna í íþróttahúsi, allir skólaliðar hafi fengið venjulegar pásur í morgunmat og hádegismat, en ekki hann. Honum hafi fundist það óásættanlegt. Önnur ástæða hafi verið sú að þegar hann hafi byrjað að vinna hafi hann þurft að fara út með krakka í frímínútur aðeins þrisvar sinnum í viku í 20 mínútur í hvert skipti, sem hafi verið í lagi. En svo hafi því verið breytt í eina klukkustund daglega á hverjum virkum degi, þrátt fyrir afskaplega vont veður. Þetta hafi hann talið óásættanlegt. Þriðja ástæðan hafi verið sú að hann hafi verið að þrífa eitt svæði ásamt einni konu, sem síðar hafi farið í fæðingarorlof og hann hafi þá þurft að þrífa svæðið einn og þurft að vinna tvöfalt starf fyrir sömu greiðslu sem hann hafi talið óásættanlegt. Vegna alls þess hafi kærandi veikst frá 11. desember 2024 til 20. desember 2024 og svo hafi komið jólafrí. Eftir jólafrí hafi kærandi sagt upp starfi sínu, hann sé barnsfaðir og vilji lifa og hugsa um barn sitt en ekki deyja vegna ófagmennsku og óstjórnar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 3. janúar 2025. Í umsókn kæranda hafi komið fram að ástæður atvinnuleysis væru þær að hann hefði sjálfur sagt upp störfum hjá B vegna óviðunandi kjara eða ráðningarsambands. Samhliða umsókn hafi kærandi sent afrit af uppsagnarbréfi sínu.

Þann 4. janúar 2025 hafi kærandi sent Vinnumálastofnun skýringar á ástæðum uppsagnar sinnar. Í skýringum kæranda hafi komið fram að breytingar hefðu verið gerðar á verkefnum hans sem hafi falið í sér aukið álag sem hann hafi talið óviðunandi og því hafi hann sagt upp starfi sínu. Þann 4. janúar 2025 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir frekari skýringum á ástæðum uppsagnar hans hjá B. Vinnumálastofnun hafi sama dag borist erindi kæranda þar sem fram hafi komið að hann hefði þegar komið á framfæri þremur ástæðum fyrir uppsögn sinni.

Með erindi, dags. 10. febrúar 2025, hafi umsókn kæranda verið samþykkt. Með vísan til starfsloka kæranda hafi réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði, sbr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 3. mars 2025. Rökstuðningur kæranda í kæru sé efnislega samhljóma þeim skýringum sem hann hafi þegar veitt Vinnumálastofnun.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi:

,,Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur á sök á.“

Orðalagið ,,gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi verið talin falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæðinu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf sé ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki uppsögn, séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fyrir liggi að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá B en kærandi hafi starfað í C. Ágreiningur snúi að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn í starfi teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi í fyrri úrskurðum sínum talið að almennt beri að gera ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið sé hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laganna.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun á uppsögn sinni hafi að meginstefnu til verið vegna óánægju með breytingar á verkefnum hans og aðstæðum til vinnuhlés og matartíma. Kærandi hafi lýst því að fyrir breytingar hafi honum verið skylt að fylgja börnum í C út þrisvar í viku í 20 mínútur í senn. Eftir breytingar hafi honum verið gert að fylgja þeim út á hverjum degi í eina klukkustund. Þá hafi kærandi sagt að hann hafi séð um þrif ásamt öðrum starfsmanni sem hafi svo farið í fæðingarorlof og honum þá verið gert að sjá einn um þrifin. Kærandi hafi jafnframt sagt starf sitt þess eðlis að hann hafi ekki getað nýtt sér rétt sinn til matartíma eða vinnuhlés.

Í tilvikum sem þessum hafi í framkvæmd verið gerð sú krafa til launamanna að þeir nýti sér öll tiltæk úrræði til úrbóta, svo sem að leita til síns stéttarfélags, Vinnueftirlitsins eða tryggja sér annað starf, áður en þeir ákveði að segja starfi sínu lausu. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki tryggt sér annað starf áður en hann hafi sagt starfi sínu lausu. Þá liggi ekki fyrir upplýsingar um að tilraunir til úrbóta hafi verið reyndar áður en kærandi hafi sagt starfi sínu lausu með aðkomu atvinnurekanda, viðeigandi stéttarfélags eða Vinnueftirlitsins.

Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að ástæður þær er kærandi hafi gefið fyrir uppsögn sinni teljist ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé því afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli ákvæðisins.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það mat Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysisbóta skuli fyrst hefjast þegar kærandi hafi verið skráður hjá Vinnumálastofnun án bóta í tvo mánuði.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu sem skólaliði í C en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður hans fyrir uppsögninni teljist gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 kemur fram að með ákvæðinu sé undirstrikað það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í því ljósi sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Tekið er fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Í athugasemdunum er þó sérstaklega vísað til tvenns konar tilvika sem talin eru heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar þau tilvik þegar maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi sagt upp starfi sínu hjá B vegna breyttra og óviðunandi vinnuaðstæðna og vinnufyrirkomulags sem og ófagmennsku og óstjórnar. Þá liggur fyrir læknisvottorð, dags. 18. desember 2024, þar sem fram kemur að kærandi hafi verið óvinnufær með öllu frá 11. til 20. desember 2024 vegna sjúkdóms.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er málefnalegt að gera þá kröfu til launþega að þeir segi ekki upp starfi sínu nema við ýtrustu nauðsyn þegar annað starf er ekki í hendi þegar kemur að því að meta hvort viðkomandi skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Ekki verður séð að slíkt eigi við í tilviki kæranda. Er því að mati úrskurðarnefndar velferðarmála ekki um að ræða gildar ástæður fyrir uppsögn í skilningi 54. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi á því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar hans um atvinnuleysisbætur, sbr. 1. mgr. ákvæðisins.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta