Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 597/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 597/2024

Fimmtudaginn 23. janúar 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 20. nóvember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. febrúar 2023, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. febrúar 2023, var kæranda tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 26. apríl til 31. ágúst 2021 vegna fjármagnstekna, að fjárhæð 156.275 kr., að meðtöldu 15% álagi. Þann 14. nóvember 2024 var kæranda tilkynnt að ógreidd krafa vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta hefði verið áframsend til frekari meðferðar hjá Innheimtumiðstöð.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 20. nóvember 2024. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. nóvember 2024, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 8. janúar 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála fer kærandi fram á að óréttmæt innheimtukrafa frá Vinnumálastofnun vegna fjármagnstekna á árinu 2021 verði felld niður. Meðfylgjandi kæru sé framtal kæranda með öllum tekjuupplýsingum og bankakvittun frá [febrúar] 2022 vegna endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta ársins 2021. Þrátt fyrir umbeðnar upplýsingar, umbeðin gögn og yfirlit yfir greiðslur og endurgreiðslur hafi engin gögn borist frá Vinnumálastofnun en stjórnvald ætti að vera í stakk búið til að veita málsaðila allar upplýsingar. Kærandi hafi ekki haft neina ástæðu til að fara inn á vef Vinnumálastofnunar eftir að hafa hætt á atvinnuleysisskrá. Engu að síður séu bréf send þar inn, þrátt fyrir að samskipti heyri sögunni til og séu óvirk.  

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. febrúar 2023, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Hin kærða ákvörðun var tilkynnt kæranda með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 28. febrúar 2023, en ákvörðunin var kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála með kæru, móttekinni 20. nóvember 2024. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þess að kæra í máli þessu barst meira en ári eftir að ákvörðun var tilkynnt kæranda er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta