Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 669/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 669/2024

Fimmtudaginn 20. mars 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. desember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. nóvember 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og ákvörðun stofnunarinnar, dags. 17. desember 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 22. júlí 2024 og var umsóknin samþykkt 12. ágúst 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. nóvember 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. desember 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 19. desember 2024. Með bréfi, dags. 2. janúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. febrúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. febrúar 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Af kæru má ráða að kærandi kæri ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 15. nóvember 2024 og 17. desember 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta annars vegar frá og með 15. nóvember 2024 í tvo mánuði og hins vegar frá og með 17. desember 2024 í þrjá mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 22. júlí 2024. Með erindi, dags. 12. ágúst 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 89%.

Þann 1. nóvember 2024 hafi kærandi verið boðaður á fund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9, þann 4. nóvember 2024, klukkan 11:00. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 1. nóvember 2024, klukkan 9:12.

Kærandi hafi mætt samdægurs á þjónustuskrifstofu og tilkynnt að hann yrði staddur á Akureyri í eina til tvær vikur og hafi þá verið upplýstur um að hann yrði boðaður á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þar. Í kjölfarið hafi honum verið sendur tölvupóstur og SMS þar sem hið sama hafi verið tekið fram. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 1. nóvember 2024, klukkan 11:15. Þann 4. nóvember 2024 hafi einnig verið send áminning til kæranda um viðtal með sama hætti og áður. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund Vinnumálastofnunar.

Þann 6. nóvember 2024 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru í boðað viðtal á Akureyri. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Engar skýringar hafi borist frá kæranda. Með erindi, dags. 15. nóvember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði sökum þess að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 25. nóvember 2024 hafi kærandi sent skýringar þar sem fram komi að hann hefði á þeim tíma verið í vandræðum með síma og internet. Þá hafi kærandi jafnframt kvaðst hafa mætt á rangan stað. Þann 28. nóvember 2024 hafi kæranda verið sent erindi um að ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið tekin fyrir að nýju með tilliti til skýringa kæranda. Það væri mat stofnunarinnar að staðfesta fyrri ákvörðun þar sem sú ákvörðun hafi verið efnislega rétt þrátt fyrir nýjar skýringar kæranda.

Þann 2. desember 2024 hafi kærandi verið boðaður á fund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9, þann 4. desember 2024, klukkan 14:00. Vakin hafi verið athygli á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með SMS skilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 2. desember 2024, klukkan 13:06.

Þann 3. desember 2024 hafi kærandi komið á þjónustuskrifstofu og sagst ekki komast í viðtal daginn eftir þar sem hann væri á leiðinni á Hellu og yrði þar næstu 10 til 15 daga. Kæranda hafi því verið send ný boðun og tilkynnt að honum bæri að mæta á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Selfossi þann 5. desember, klukkan 11:00. Vakin hafi verið athygli á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með SMS skilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi SMS skilaboðin borist í símtæki kæranda þann 3. desember 2024, klukkan 11:19. Kærandi hafi ekki mætt á umræddan fund.

Þann 6. desember 2024 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðaðan fund. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Engar skýringar hafi borist frá kæranda. Með erindi, dags. 17. desember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í þrjá mánuði sökum þess að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund Vinnumálstofnunar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. mgr. sömu greinar.

Kærandi hafi mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 17. desember 2024 og spurt út í viðurlög. Honum hafi verið ráðlagt að skila skýringum sem hann hafi gert samdægurs. Í skýringum kæranda komi fram að hann hafi ekki komist á boðaðan fund þar sem hann hefði verið staddur utan Reykjavíkur.

Þann 7. janúar 2025 hafi kæranda verið sent erindi um að ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið tekin fyrir að nýju með tilliti til skýringa kæranda. Það hafi verið mat stofnunarinnar að staðfesta fyrri ákvörðun þar sem sú ákvörðun hafi verið efnislega rétt, þrátt fyrir nýjar skýringar kæranda. Kæra hafi borist úrskurðarnefnd velferðarmála þann 19. desember 2024. Af fylgigögnum með kæru megi ætla að báðar ákvarðanir Vinnumálastofnunar um biðtíma sæti kæru til nefndarinnar.

Um lagarök segir í greinargerð Vinnumálastofnunar að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 5. nóvember 2024 né boðað viðtal þann 5. desember 2024. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tímasetning og staðsetning hafi verið tilgreindar. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að sá sem hafi áður sætt viðurlögum samkvæmt 57-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir ef hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili samkvæmt 29. gr.

Í 2. mgr. 61. gr. segi svo að þegar viðurlög eða biðtími hafi frestast leggist sá tími sem eftir hafi verið af fyrri viðurlagaákvörðun eða biðtíma saman við viðurlög samkvæmt 1. mgr.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á boðaðan fund þann 5. desember 2024 en þær lúti að því að hann hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um að hann yrði staddur utan Reykjavíkur eða nánar tiltekið á Hellu. Kærandi hafi af þeim sökum ekki getað mætt á boðuð vinnumarkaðsúrræði. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að kæranda hafi verið sent annað boð um mætingu á þeirri þjónustuskrifstofu sem hafi verið næst honum. Boðun hafi verið send bæði með tölvupósti á skráð netfang og með SMS skilaboðum á skráð símanúmer kæranda. Sérstaklega hafi verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án ástæðulausrar tafar. Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt á boðuð vinnumarkaðsúrræði í tvígang á sama bótatímabili beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Fyrst í formi tveggja mánaða biðtíma og svo þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði og einnig í þrjá mánuði á grundvelli 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærðar eru ákvarðanir Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í annars vegar tvo mánuði og hins vegar í þrjá mánuði , á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 1. nóvember 2024 boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík þann 4. nóvember 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og í farsíma. Kærandi mætti sama dag á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og tilkynnti að hann yrði á Akureyri í eina til tvær vikur og var þá upplýstur um að hann yrði boðaður á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þar. Þann 4. nóvember 2024 var kærandi boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Akureyri sem fara átti fram daginn eftir, þann 5. nóvember 2024. Líkt og í fyrri boðun var kæranda greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti í boðað viðtal. Kærandi gaf Vinnumálastofnun þær skýringar að hann hefði á þeim tíma verið í vandræðum með síma og internet og að hann hafi mætt á rangan stað.

Þann 2. desember 2024 var kærandi boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík þann 4. desember 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og í farsíma. Kærandi mætti á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 3. desember 2024 og tilkynnti að hann kæmist ekki í viðtalið þar sem hann yrði á Hellu næstu 10 til 15 daga. Kæranda var þá send ný boðun og honum tilkynnt að hann ætti að mæta á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Selfossi þann 5. desember, klukkan 11:00. Vakin var athygli á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin var birt á „Mínum síðum“, með tölvupósti og með SMS skilaboðum sem bárust í skráð símanúmer kæranda. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti í boðað viðtal. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar kemur fram að hann hafi ekki komist á boðaðan fund þar sem hann hafi verið staddur utan Reykjavíkur. 

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á sannanlega boðaða fundi hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Þar sem bótaréttur kæranda var felldur niður í tvo mánuði með ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 15. nóvember 2024 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. við ákvörðun stofnunarinnar frá 17. desember 2024, enda um sama bótatímabil að ræða, sbr. 29. gr. laganna. Með vísan til framangreinds eru ákvarðanir Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í annars vegar tvo og hins vegar þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfestar.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 15. nóvember 2024 og 17. desember 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo og þrjá mánuði eru staðfestar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta