Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 617/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 617/2024

Fimmtudaginn 6. febrúar 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 28. nóvember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. nóvember 2024, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 7. september 2023 og var umsóknin samþykkt 18. september 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. nóvember 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hennar til atvinnuleysisbóta.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. nóvember 2024. Með bréfi, dags. 3. desember 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 13. janúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. janúar 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 17. janúar 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. janúar 2025. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að hafa þann 12. nóvember 2024 fengið boð á fund sem hafi átt að fara fram 13. nóvember 2024. Kærandi hafi ekki séð fundarboðið þar sem hún hafi verið veik með flensu og rúmliggjandi frá 11. til 13. nóvember 2024. Þegar kærandi hafi náð heilsu þann 14. nóvember 2024 hafi hún séð umrætt boð og áttað sig á því að hún hefði misst af fundinum og ekki afboðað sig í tæka tíð. Hún hafi sent tölvupóst og síðar læknisvottorð til að útskýra mál sitt.

Í ákvörðun Vinnumálastofnunar sé vísað til þess að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna stofnuninni um nauðsynlegar upplýsingar sem hafi haft áhrif á rétt hennar til atvinnuleysisbóta. Það hafi kærandi hins vegar gert með læknisvottorði sem hún hafi sent 18. nóvember 2024 og útskýri bæði fjarveru hennar á fundinum og ástæðu þess að hún hafi ekki getað afboðað sig í tæka tíð. Þá sé vísað til ítrekunaráhrifa vegna fyrri niðurfellingu bótaréttar í byrjun árs 2024. Ástæða fjarveru kæranda þá hafi verið vegna dauðsfalls nákomins ættingja sem Vinnumálastofnun hafi ekki tekið til greina. Kærandi ítreki að sú ákvörðun hafi ekki verið nægilega ígrunduð að hennar mati.

Þau viðurlög sem um ræði séu eflaust tilkomin af ástæðu en hvort hún sé að komast hjá því að fólk svindli á kerfinu eða til að kenna bótaþegum stranga lexíu viti kærandi ekki. Kærandi ítreki að verið sé að fella niður alls fimm mánuði af áunnum réttindum, atvinnuleysisbótum, til hennar annars vegar vegna veikinda og hins vegar erfiðs áfalls. Það sé nánast ómögulegt að ná endum saman þegar fólk þurfi að þiggja slíkar bætur, svo ekki sé minnst á þá berskjaldandi stöðu sem langvarandi atvinnuleysi skapi. Með því að framfylgja ákvörðuninni muni það hafa augljós og erfið áhrif á afkomu fjölskyldunnar. Kærandi efist um réttmæti ákvörðunarinnar út frá mannréttindum í ljósi þess að hvorki sé um brot að ræða né ástetning til brots, heldur greinilega mannlega yfirsýn í veikindum og fjölskylduharmleik.

Kærandi óski því eftir að farið verið yfir málið með skýringar hennar og mannúð að leiðarljósi.

Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar bendir kærandi á að hún hafi gert mistök með því að boða ekki forföll á fundinn og láta ekki vita af veikindum sínum. Athugasemdir kæranda beinist ekki að því hvort lagaheimild sé til að beita viðurlögum. Hún átti sig á ríkri skyldu sinni sem atvinnuleitanda til að sinna boðunum og skilji tilkomu slíkra viðurlaga. Kærandi leggi og muni leggja sig fram við að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum. Hún hafi til dæmis sótt nokkurra daga námskeið um atvinnuleit á vegum Vinnumálastofnunar og haft gagn af.

Það sé næstum ómögulegt að ná endum saman með þeim 300 þúsund krónum sem kærandi hafi þegið síðasta árið frá Vinnumálastofnun. Hún hafi á þessum tíma reynt sitt besta til að sækja atvinnutækifæri og búa til ný í kjölfar þess að hafa misst tvö stór verkefni.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 7. september 2023. Með erindi, dags. 18. september 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 12. nóvember 2024 hafi kærandi verið boðuð í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 13. nóvember 2024, klukkan 12:00. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 12. nóvember 2024, klukkan 8:28. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund.

Kærandi hafi þann 14. nóvember 2024 sent skráningu í forfallatilkynningu stofnunarinnar þar sem hún hafi skýrt frá því að hún hafi misst af viðtalinu vegna veikinda. Tilkynning kæranda hafi því borist eftir að fundur hafi verið yfirstaðinn.

Þann 18. nóvember 2024 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðaðan fund. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Skýringar hafi borist frá kæranda með skýringarbréfi, mótteknu þann 19. nóvember 2024. Skýringar kæranda hafi verið þær að hún hefði verið með slæma flensu frá mánudegi til miðvikudags og verið bæði fjarri tölvu og í litlu símasambandi vegna þess. Kærandi hafi jafnframt skilað læknisvottorði, útgefnu 18. nóvember 2024, þar sem fram komi að veikindi á tímabilinu 11. til 13. nóvember 2024 hafi verið tilkynnt sama dag og vottorðið hafi verið gefið út.

Með erindi, dags. 26. nóvember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar í þrjá mánuði sökum þess að hún hefði ekki mætt á boðaðan upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem kærandi hefði sætt viðurlögum á grundvelli 58. gr. þann 4. janúar 2024 vegna höfnunar á þátttöku í vinnumarkaðsúrræði hafi borið að beita ítrekunaráhrifum 1. mgr. 61. gr. við ákvörðun stofnunarinnar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysisbóta komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund þann 12. nóvember 2024. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tímasetning og staðsetning hafi verið tilgreindar. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar.

Kærandi hafi ekki tilkynnt um veikindi sín þann 14. nóvember 2024 en hún hafi verið boðuð tveimur dögum fyrr á fund Vinnumálastofnunar. Í skýringum kæranda komi fram að hún hafi ekki getað mætt vegna veikinda. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi sent kæranda boð á upplýsingafund bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda. Erindið hafi auk þess verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Kæranda hafi í upphafi umsóknar verið tilkynnt um með hvaða hætti henni yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án ástæðulausrar tafar.

Samkvæmt skýringum kæranda hafi veikindi hennar hafist 11. nóvember 2024. Vinnumálastofnun hafi þó ekki borist tilkynning um veikindi fyrr en eftir að kærandi hafi átt að vera á fundi hjá stofnuninni. Samkvæmt læknisvottorði, dags. 18. nóvember 2024, hafi kærandi verið lasin frá 11. til 13. nóvember 2024. Í vottorðinu komi fram að veikindi þessi hafi verið tilkynnt á vefnum www.heilsuvera.is þann 18. nóvember 2024. Veikindin hafi því verið tilkynnt lækni sjö dögum eftir að þau hafi hafist. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Þar sem kærandi hafi lagt fram læknisvottorð sem staðfesti óvinnufærni með öllu á sama tíma og fundur hafi farið fram en hafi þó ekki látið vita af veikindum sínum eða boðað forföll án ástæðulausrar tafar hafi ákvörðun verið tekin um stöðvun greiðslna atvinnuleysistrygginga á grundvelli 59. gr. en þar segi í 1. mgr. ákvæðisins:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.“

Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Þar sem kærandi hafi ekki tilkynnt um veikindi án ástæðulausrar tafar beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem um hafi verið að ræða annað tilfellið sem kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á bótatímabili komi til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hennar, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnun um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun þann 13. nóvember 2024 vegna veikinda. Þá liggur fyrir að kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um veikindin fyrr en 14. nóvember 2024, eftir að viðtalið hafði átt að fara fram. Þá skilaði kærandi læknisvottorði, dags. 18. nóvember 2024, þar sem fram kemur að hún hafi verið óvinnufær vegna veikinda frá 11. til 13. nóvember 2024.

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki strax um veikindi sín. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 4. janúar 2024 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. nóvember 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta