Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 601/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 601/2023

Fimmtudaginn 14. mars 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 18. desember 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að afskrá hann af atvinnuleysisskrá.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 13. ágúst 2023 og var umsóknin samþykkt 23. ágúst 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. október 2023, voru greiðslur til kæranda stöðvaðar með vísan til þess að hann væri ekki staddur á Íslandi. Kærandi bar þá ákvörðun undir úrskurðarnefnd velferðarmála með kæru, dags. 2. nóvember 2023, sbr. mál nr. 527/2023.

Kærandi lagði inn nýja kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 18. desember 2023 og tók fram að Vinnumálastofnun hefði tilkynnt honum um afskráningu af atvinnuleysisskrá með vísan til þess að hann hefði ekki staðfest atvinnuleit. Í kjölfar tölvupóstsamskipta við kæranda óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar, sbr. bréf, dags. 23. janúar 2024. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 26. febrúar 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. febrúar 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Niðurstaða

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Þannig er grundvöllur þess að úrskurðarnefndin geti tekið kæru til efnislegrar meðferðar að fyrir liggi stjórnvaldsákvörðun. Um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldur manna í skjóli stjórnsýsluvalds, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá segir í 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar að úrskurðarnefndin kveði upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna.

Ljóst er að Vinnumálastofnun tók stjórnvaldsákvörðun í máli kæranda þann 18. október 2023 og var sú ákvörðun kærð til úrskurðarnefndarinnar 2. nóvember 2023, sbr. mál nr. 527/2023. Af fyrirliggjandi gögnum málsins verður ekki séð að Vinnumálastofnun hafi tekið nýja stjórnvaldsákvörðun í máli kæranda eftir þann tíma og þar til kæra barst nefndinni 18. desember 2023. Með vísan til þess er það mat úrskurðarnefndarinnar að mál kæranda sé ekki tækt til efnismeðferðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum