Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 536/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 536/2024

Fimmtudaginn 23. janúar 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. október 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. júlí 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 19. janúar 2024 og var umsóknin samþykkt 13. febrúar 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. júlí 2024, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju í kjölfar nýrra gagna og með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. október 2024, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. október 2024. Með bréfi, dags. 29. október 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 27. nóvember 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar sama dag. Athugasemdir bárust frá kæranda 10. desember 2024 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. desember 2024. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa verið boðaður á fund Vinnumálastofnunar, dags. 28. júní 2024, með sólarhringsfyrirvara en hann hafi ekki getað mætt á fundinn þar sem hann hafi verið staddur í B á Vestfjörðum. Kærandi hafi um leið tilkynnt forföll og óskað eftir því að fundinum yrði frestað. Kærandi hafi mætt á fund stofnunarinnar þann 4. júlí 2024 en engu að síður hlotið viðurlög.

Kærandi hafi fengið skýringar frá Vinnumálastofnun símleiðis um að hann hefði skilað skýringum sínum of seint, það er eftir að fundurinn 28. júní 2024 hefði farið fram. Kærandi hafi hins vegar skilað skýringum sínum klukkan 01:30 sama dag. Kæranda hafi einnig verið tjáð að stofnunin hafi ekki getað staðfest mætingu hans á fundinn 4. júlí 2024 en kærandi telji það rangt. Að símtali loknu hafi kærandi óskað eftir skýringum stofnunarinnar í tölvupósti. Svar hafi borist þann 29. júlí 2024 um að Greiðslustofa myndi fara yfir mál kæranda og láta hann vita. Kærandi hafi hins vegar aldrei fengið almennilegt svar.

Fleiri vandamál hafi komið upp í september 2024 þegar kærandi hafi tekið eftir því að launaseðill hans hefði verið lækkaður niður í núll krónur. Vinnumálastofnun hafi synjað beiðni kæranda um rökstuðning þar sem beiðnin hefði komið fram eftir 14 daga frest. Kærandi skilji ekki hvers vegna honum hafi verið refsað fyrir eitthvað sem hann hafi ekki stjórn á eða hvers vegna skýringum hans hafi verið hafnað. Ásakanir um að kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði eigi ekki við rök að styðjast. Hefði kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði hefði hann ekki óskað eftir nýjum fundartíma. Kærandi telji ákvörðun Vinnumálastofnunar afar ósanngjarna.

Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar bendir kærandi á að greinargerðin hafi einungis verið send á íslensku sem hann telji fela í sér mismunun í ljósi þess að hann sé útlendingur og samskiptin hafi hingað til farið fram á ensku. Það hafi veruleg áhrif á skilning kæranda á svari Vinnumálastofnunar þar sem hann hafi þurft að nota þýðingarforrit. Þá hafi sum fyrri bréf eingöngu verið send á íslensku.

Kærandi bendi einnig á að Vinnumálastofnun virðist ekki virða tímafrest en stofnunin krefjist þess hins vegar að kærandi geri það. Stofnunin hafi hafnað beiðni kæranda um rökstuðning á þeim grundvelli að beiðnin hafi ekki borist innan 14 daga frá ákvörðun. Kærandi hafi hins vegar samdægurs óskað eftir rökstuðningi í gegnum tölvupóst. Stofnunin hafi enn fremur staðfest að hann yrði látinn vita en það hafi ekki verið gert. Svör Vinnumálastofnunar hafi stöðugt borist eftir 14 daga frest sem kærandi telji óábyrgt.

Vinnumálastofnun haldi því ítrekað fram að kærandi hafi neitað að mæta á fundinn þann 28. júní 2024. Kærandi hafi hins vegar margoft útskýrt að hann hafi verið í B og gæti ekki ferðast til Reykjavíkur innan 24 klukkustunda. Vinnumálastofnun hafi nefnt Ísafjörð sem valkost en kærandi hafi heldur ekki verið nálægt þeim stað. Möguleikar varðandi almenningssamgöngur á Íslandi séu takmarkaðir og kærandi sé ekki með ökuréttindi. Hann hafi tafarlaust tilkynnt forföll og lýst yfir vilja til að mæta á fund á öðrum tíma.

Þá hafi Vinnumálastofnun látið hjá líða að minnast á símtöl kæranda við stofnunina þar sem honum hafi verið tjáð að skýringar hans hafi komið fram of seint og ekki hafi verið unnt að staðfesta mætingu hans á fundinn þann 4. júlí 2024, sem sé rangt. Símtölin eigi að mati kæranda að vera hljóðrituð og geti sýnt fram á rangfærslur stofnunarinnar.

Kærandi hafi farið frá Íslandi með rétt til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á meðan hann sé í atvinnuleit erlendis. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um stöðvun greiðslna í tvo mánuði hafi haft verulega neikvæð áhrif á líf hans.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 19. janúar 2024. Með erindi, dags. 13. febrúar 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 27. júní 2024 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9 í Reykjavík þann 28. júní 2024, klukkan 10:15. Kærandi hafi verið upplýstur um að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Þá hafi einnig verið tekið fram að ef kærandi væri ekki á höfuðborgarsvæðinu gæti hann mætt á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 27. júní 2024, klukkan 10:07. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund.

Þann 28. júní 2024 hafi borist skýringarbréf frá kæranda í gegnum „Mínar síður“ á vef Vinnumálastofnunar þar sem fram hafi komið að hann myndi ekki mæta á boðaðan upplýsingafund þar sem hann væri upptekinn á Vestfjörðum við að aðstoða vin sinn. Hann hafi tekið fram að hann myndi koma aftur til Reykjavíkur eftir þrjá daga og hafi óskað eftir nýjum viðtalstíma.

Með erindi, dags. 15. júlí 2024, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á fjarveru hans á upplýsingafund þann 28. júní 2024. Áréttað hafi verið að hefði hann hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 4. júlí 2024 hafi Vinnumálastofnun borist skriflegar skýringar frá kæranda þar sem komið hafi fram að hann hafi ekki getað mætt á boðaðan fund þann 28. júní 2024. Þá hafi kærandi tekið fram að hann hafi verið boðaður á annan fund þann 4. júlí 2024 sem hann hafi mætt á.

Með erindi, dags. 26. júlí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt um tveggja mánaða stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta til hans vegna fjarveru á boðaðan upplýsingafund þann 28. júní 2024. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 29. júlí 2024 hafi frekari skýringar borist frá kæranda á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund þann 28. júní 2024 í formi tölvupósts. Í þeim skýringum hafi kærandi sagst hafa sannarlega boðað forföll á boðaðan upplýsingafund sem hafi farið fram þann 28. júní 2024. Þá hafi kærandi ítrekað að hann hafi mætt á upplýsingafund sem haldinn hafi verið þann 4. júlí 2024.

Þann 4. september 2024 hafi kærandi óskað eftir skriflegum rökstuðningi á ákvörðun Vinnumálastofnunar. Þeirri beiðni hafi verið hafnað sökum þess að tímafrestur til að óska eftir skriflegum rökstuðningi hefði verið liðinn.

Þann 2. október 2024 hafi frekari skýringar borist frá kæranda þar sem hann hafi ítrekað fyrri skýringar sínar um að hann hefði sannarlega afboðað þátttöku sína í boðuðum upplýsingafundi þann 28. júní 2024. Að hans mati hefði hann ekki hafnað þátttöku í boðuðum upplýsingafundi þar sem hann hefði mætt á næsta fund sem hann hefði verið boðaður á.

Þann 9. október 2024 hafi Vinnumálastofnun tekið mál kæranda fyrir að nýju. Það hafi verið mat stofnunnarinnar að staðfesta fyrri ákvörðun í máli kæranda þrátt fyrir frekari skýringar hans.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 28. júní 2024, klukkan 10:15. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu um boðun á umræddan upplýsingafund í tölvupósti, farsíma og á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi fengið rúmlega sólarhringsfyrirvara til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið inntur eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 15. júlí 2024. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Skýringar kæranda á fjarveru sinni á boðaðan upplýsingafund lúti einkum að því að hann hafi hafnað þátttöku í boðuðum upplýsingafundi sem hafi farið fram þann 28. júní 2024 sökum þess að hann hafi verið upptekinn á Vestfjörðum við að aðstoða vin sinn. Kærandi hafi af þeim sökum ekki getað mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði.

Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda á höfnun hans á þátttöku í vinnumarkaðsúrræði ekki gildar. Í því samhengi bendi stofnunin á að í boðun sem send hafi verið á kæranda hafi sérstaklega verið tekið fram að væri hann staddur utan höfuðborgarsvæðisins skyldi hann mæta á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Í skýringum kæranda hafi hann sagst ekki hafa getað mætt á boðaðan upplýsingafund sem haldinn hafi verið á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu þar sem hann hafi verið á Vestfjörðum. Kæranda hafi samkvæmt boðun borið að mæta á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar hafi hann verið staddur úti á landi en þjónustuskrifstofur stofnunarinnar séu staðsettar víðsvegar um landið, þar á meðal á Vestfjörðum, það er á Ísafirði. Í stað þess að mæta á næstu þjónustuskrifstofu stofnunarinnar hafi kærandi ákveðið að hafna því að mæta á boðaðan upplýsingafund.

Vinnumálastofnun sé samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysitryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð á upplýsingafund hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda rúmlega 24 tímum fyrir áætlaðan fund. Boðun til umrædds fundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að hafi kærandi verið staddur úti á landi skyldi hann mæta á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.

Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í tvo mánuði.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 27. júní 2024 boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík daginn eftir, þann 28. júní 2024. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar í gegnum netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Kærandi mætti ekki á fundinn.

Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi boðað forföll vegna fundarins 28. júní 2024 og óskað eftir nýjum fundartíma sökum þess að hann væri staddur í B á Vestfjörðum og gæti ekki ferðast til Reykjavíkur innan 24 klukkustunda. Vinnumálastofnun hafi nefnt Ísafjörð sem valkost en kærandi hafi heldur ekki verið nálægt þeim stað. Möguleikar varðandi almenningssamgöngur á Íslandi séu takmarkaðir og kærandi sé ekki með ökuréttindi. Hefði kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði hefði hann ekki óskað eftir nýjum fundartíma.

Fyrir liggur að í boðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. júní 2024, var kæranda greint frá því að væri hann ekki á höfuðborgarsvæðinu gæti hann mætt á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar innan 24 klukkustunda frá því að skilaboðin voru send. Kærandi hefði því átt að mæta á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Vestfjörðum.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. júlí 2024, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta