Mál nr. 421/2024-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 421/2024
Fimmtudaginn 30. janúar 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 10. september 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 20. mars 2024, um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið 1. til 31. janúar 2024.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í janúarmánuði 2024. Með ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 20. mars 2024, var kæranda tilkynnt að hún hefði fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en heimilt væri fyrir tímabilið 1. til 31. janúar 2024. Henni bæri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði 301.986 kr., að meðtöldu 15% álagi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. september 2024. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 11. september 2024, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hún að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Svar barst ekki. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. september 2024, var óskað eftir gögnum frá Fæðingarorlofssjóði vegna kærunnar. Umbeðin gögn bárust 14. október 2024. Athugasemdir vegna kærufrests bárust frá kæranda 15. október 2024. Með bréfi, dags. 30. október 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Greinargerð Fæðingarorlofssjóðs barst með bréfi, dags. 27. nóvember 2024, þar sem fram kom að ákvörðun sjóðsins frá 20. mars 2024 hefði verið afturkölluð, sbr. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. nóvember 2024, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Fæðingarorlofsssjóðs. Sú beiðni var ítrekuð með tölupóstum til kæranda 6. og 9. janúar 2025. Svar barst ekki.
II. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 20. mars 2024, um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið 1. til 31. janúar 2024.
Fyrir liggur að sú ákvörðun var afturkölluð hjá Fæðingarorlofssjóði með vísan til 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem kveður á um að stjórnvald geti afturkallað ákvörðun sína að eigin frumkvæði, sem tilkynnt hafi verið aðila máls, þegar það er ekki til tjóns fyrir aðila. Kæranda var tilkynnt um framangreint með bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 18. nóvember 2024.
Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof skal úrskurðarnefnd velferðarmála kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna.
Af framangreindu er ljóst að úrskurðarvald nefndarinnar er afmarkað við að fjalla um réttmæti tiltekinnar ákvörðunar eða ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 144/2020.
Í ljósi þess að hin kærða ákvörðun um endurgreiðslu til fæðingarorlofssjóðs var afturkölluð og framangreinds hlutverks úrskurðarnefndarinnar er það mat nefndarinnar að lögvarðir hagsmunir kæranda af efnislegri úrlausn málsins séu ekki lengur til staðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir