Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 92/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 92/2025

Mánudaginn 24. mars 2025

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. febrúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 5. febrúar 2025, um að synja umsókn hans um félagslegt leiguhúsnæði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 24. janúar 2024, sótti kærandi um félagslegt leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg og var umsóknin samþykkt á biðlista. Í kjölfar endurmats á umsókninni var kæranda synjað um félagslegt leiguhúsnæði með bréfi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 22. janúar 2025, og var sú ákvörðun staðfest af áfrýjunarnefnd velferðarráðs, dags. 5. febrúar 2025.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. febrúar 2025. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst 27. febrúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann sé öryrki og eigi tíu ára dóttur. Kærandi hafi beðið eftir félagslegu húsnæði í næstum því fimm ár og hafi nú fengið synjun.

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kærandi sé X ára gamall karlmaður frá B. Kærandi hafi alist upp í stórum systkinahópi hjá foreldrum sem hafi verið bændur og hann hafi átt góða æsku, án nokkurs félagslegs vanda að eigin sögn. Þegar hann hafi verið tvítugur hafi hann flutt til Frakklands til að hefja nám en hætt fljótlega og farið að vinna. Þar hafi hann kynnst íslenskri konu sem hafi síðar orðið eiginkona hans og þau flutt til Íslands. Saman eigi þau eina dóttur sem sé níu ára. Kærandi og eiginkona hans hafi skilið árið 2018 en kærandi sé í reglulegri umgengni við dóttur sína. Kærandi hafi verið atvinnulaus meiri hluta ársins 2019 en svo fengið vinnu við akstur en lent í bílslysi árið 2020. Kærandi hafi farið í endurhæfingu eftir bílslysið sem hafi ekki skilað árangri og hann hafi því fengið samþykkt örorkumat árið 2023. Kærandi leigi bílskúr af leigufélagi að nafni C. Kærandi hafi fyrst fengið tímabundinn leigusamning sem hafi átt að renna út þann 31. desember 2024 en verið endurnýjaður og núverandi leigusamningur kæranda gildi til 31. desember 2025. Málefni kæranda hafi verið til vinnslu á miðstöð Reykjavíkurborgar frá því í janúar 2020 og vinnslan að mestu snúist um húsnæðismál hans. Hann hafi fyrst sótt um félagslegt leiguhúsnæði með umsókn þann 31. ágúst 2020 sem hafi verið synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, dags. 21. október 2020, þar sem skilyrði e. liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði hafi ekki verið uppfyllt. Kærandi hafi skotið framangreindri synjun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs sem hafi staðfest mat starfsmanna miðstöðvar á stigagjöf vegna umsóknar hans um félagslegt leiguhúsnæði. Málið hafi farið til úrskurðarnefndar velferðarmála sem hafi staðfest ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði með úrskurði nr. 613/2020, dags. 18. febrúar 2021. Kærandi hafi aftur sótt um félagslegt leiguhúsnæði með umsókn þann 21. febrúar 2022 sem hafi verið synjað með bréfi, dags. 1. mars 2022. Hann hafi einnig sótt um félagslegt leiguhúsnæði með umsókn þann 1. desember 2022 sem hafi verið synjað með bréfi, dags. 22. desember 2022. Þá hafi hann sótt um félagslegt leiguhúsnæði með umsókn, dags. 14. júní 2023, sem hafi verið synjað með bréfi, dags. 14. júní 2023.

Þann 24. janúar 2024 hafi kærandi sótt um félagslegt leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg sem hafi verið samþykkt á biðlista með 11 stigum. Við endurmat á framangreindri umsókn þann 16. janúar 2025 hafi kæranda verið synjað um félagslegt leiguhúsnæði, með bréfi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 22. janúar 2025, þar sem skilyrði 1. tölul. e. liðar 1. mgr. 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði hafi ekki verið uppfyllt, en þar sé kveðið á um að aðstæður einstaklings/hjóna/sambúðarfólks verði að vera metnar til tíu stiga eða meira. Umsókn kæranda hafi verið metin til níu stiga.

Með bréfi, dags. 23. janúar 2025, hafi kærandi skotið framangreindri ákvörðun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs og óskað eftir undanþágu frá e. lið 4. gr. reglna um félagslegt leiguhúsnæði. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 5. febrúar 2025 og afgreitt það með eftirfarandi bókun:

„Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfestir synjun umsóknar um almennt félagslegt leiguhúsnæði og mat starfsmanna á Vesturmiðstöð Reykjavíkurborgar á stigagjöf vegna umsóknar um almennt félagslegt leiguhúsnæði, sbr. matsblað með reglum Reykjavíkurborgar um almennt félagslegt leiguhúsnæði.“

Um félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavík gildi reglur sem samþykktar hafi verið í velferðarráði þann 13. mars 2019 og í borgarráði þann 2. maí 2019. Reglurnar hafi tekið gildi 1. júní 2019.

Í 2. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði komi fram að almennt félagslegt leiguhúsnæði sé ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og annarra félagslegra erfiðleika. Í 4. gr. reglnanna séu sett fram tiltekin skilyrði sem umsækjandi þurfi að uppfylla til að umsóknin taki gildi. Skilyrði 1. tölul. e. liðar 4. gr. reglna hafi ekki verið uppfyllt, en þar sé kveðið á um að aðstæður einstaklings/hjóna/sambúðarfólks verði að vera metnar til tíu stiga eða meira.

Umsókn kæranda hafi verið metin á grundvelli framangreinds matsviðmiðs og hafi niðurstaðan verið sú að kærandi hafi verið metinn til níu stiga. Sumir þættir séu ekki háðir mati, eins og tekjur umsækjanda, en aðrir þættir séu háðir mati, svo sem húsnæðisstaða og félagslegur vandi umsækjanda. Þau atriði sem ekki eigi við í máli kæranda séu staða maka og sérstakar aðstæður barna.

Stig vegna lögheimilis í Reykjavík sé veitt ef umsækjandi hafi átt lögheimili í Reykjavík í meira en 12 mánuði. Kærandi hafi fengið eitt stig fyrir að eiga lögheimili í Reykjavík.

Stig vegna stöðu umsækjanda séu metin út frá aðstæðum umsækjanda og séu gefin núll eða tvö stig. Kærandi hafi fengið tvö stig og verið metinn undir matsviðmið: „75% öryrki eða fær greiddan endurhæfingarlífeyri“.

Stig vegna tekna séu metin út frá árstekjum umsækjanda. Kærandi hafi fengið eitt stig vegna tekna á ársgrundvelli og falli undir matsviðmið: „Árstekjur eru á bilinu kr. 4.310.974 til kr. 6.632.000.“

Stig vegna barna séu metin út frá því hvort barn eða börn séu í reglulegri umgengni hjá umsækjanda og/eða hversu mörg börn eigi lögheimili hjá umsækjanda. Kærandi hafi fengið eitt stig þar sem dóttir hans sé í reglulegri umgengi hjá honum.

Þættir er varði félagslegar aðstæður kæranda séu háðir mati. Stig fyrir húsnæðisstöðu umsækjenda séu metin út frá umfangi húsnæðisvanda og séu gefin núll, eitt, tvö eða þrjú stig. Kærandi hafi verið metinn til núll stiga og falli undir masviðmið: „Öruggt húsnæði. Meira en sex mánuðir eftir af húsaleigusamningi. Húsnæðiskostnaður að frádregnum húsnæðisbótum og sérstökum húsnæðisstuðningi er lægri en 30% af heildartekjum heimilis (miðað er við brúttótekjur).“ Kærandi sé með húsaleigusamning til 31. desember 2025. Hann sé því í öruggu húsnæði og ekki sé unnt að veita fleiri stig hvað þennan þátt varði.

Stig vegna félagslegs vanda umsækjenda séu metin út frá umfangi vanda og séu gefin núll, tvö, fjögur, eða sex stig. Félagslegur vandi kæranda hafi verið metinn til fjögurra stiga og falli undir matsviðmið: „Umsækjandi glímir við fjölþættan vanda sem hefur afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu og/eða færni til að leigja á almennum markaði, þrátt fyrir stuðning félagsþjónustu eða annarra viðurkenndra atriða.“

Í þeim tilfellum þegar umsækjendur séu metnir til sex stiga vegna félagslegs vanda séu málefni barna umsækjanda til meðferðar hjá Barnavernd Reykjavíkur eða upp hafi komið skyndileg alvarleg veikindi sem hafi afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu, þar með talið getu viðkomandi til að finna húsnæði samkvæmt mati ráðgjafa. Það eigi ekki við um stöðu kæranda og því sé ekki heldur unnt að veita fleiri stig hvað þennan þátt varði.

Miðlægur húsnæðisfundur hafi ekki mælt með undanþágu frá e. lið 4. gr. reglna um félagslegt leiguhúsnæði þar sem kærandi væri í öruggu leiguhúsnæði og ekki væri til staðfesting á því að hann fengi ekki áframhaldandi leigusamning á sama stað. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi því talið að staðfesta bæri niðurstöðu vesturmiðstöðvar um níu stig samkvæmt matsviðmiðum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði og þar með synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði.

Rétt sé að geta þess að með notkun matsblaðsins sé leitast við að gæta jafnræðis meðal umsækjenda og veita þeim stig á grundvelli atriða sem séu nánar tilgreind í matsblaðinu og stigagjöf taki mið af aðstæðum viðkomandi. Það hafi því verið mat áfrýjunarnefndar velferðarráðs að ekki væri ástæða til að breyta fyrirliggjandi stigagjöf miðstöðvar með vísan til aðstæðna kæranda og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfest synjun starfsmanna vesturmiðstöðvar á grundvelli stigagjafar, sbr. 1. tölul. e. liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði.

Með vísan til alls framanritaðs verði að telja að framangreind ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn framangreindum reglum um félagslegt leiguhúsnæði né lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði. Umsókninni var synjað á þeirri forsendu að skilyrði e. liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði væri ekki uppfyllt.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við húsnæðismál, sbr. 1. mgr. 2. gr.

Í XII. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um húsnæðismál. Þar segir í 1. mgr. 45. gr. að sveitarstjórnir skuli, eftir því sem kostur er og þörf er á, tryggja framboð af leiguhúsnæði, félagslegu kaupleiguhúsnæði og/eða félagslegum eignaríbúðum handa þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Samkvæmt 46. gr. laganna skulu félagsmálanefndir sjá til þess að veita þeim fjölskyldum og einstaklingum, sem ekki eru færir um það sjálfir, úrlausn í húsnæðismálum til að leysa úr bráðum vanda á meðan unnið er að varanlegri lausn.

Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á húsnæðismálum einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í reglum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita, sbr. XII. kafla laga nr. 40/1991. Í 2. mgr. 2. gr. reglnanna kemur fram að almennt félagslegt leiguhúsnæði sé ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrðar og lágra launa. Í 4. gr. reglnanna er að finna skilyrði fyrir því að umsókn verði samþykkt á biðlista og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a. til e. liðum 1. mgr. ákvæðisins.

Samkvæmt e. lið 4. gr. skulu umsóknir metnar samkvæmt ákveðnum matsviðmiðum, sbr. fylgiskjal nr. 1 með reglunum. Við lok mats eru reiknuð stig fyrir hvern þátt fyrir sig. Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista skal umsækjandi vera metinn að lágmarki til tíu stiga þegar um er að ræða einstakling líkt og á við í tilviki kæranda.

Í þeim þætti matsins er varðar lögheimili umsækjanda fékk kærandi eitt stig, eða hámarksfjölda stiga sem í boði eru. Staða kæranda var metin til tveggja stiga þar sem hann er 75% öryrki. Kærandi fékk ekkert stig vegna stöðu maka þar sem það á ekki við. Kærandi fékk eitt stig fyrir tekjur á ársgrundvelli þar sem tekjur hans eru á bilinu 4.310.974 til 6.632.000 kr. Í þeim lið matsins sem varðar börn fékk kærandi eitt stig þar sem dóttir hans er í reglulegri umgengni hjá honum. Húsnæðisstaða kæranda var réttilega metin til núll stiga, sem úrskurðarnefndin gerir ekki athugasemd við, enda er kærandi með húsaleigusamning til 31. desember 2025. Kærandi fékk ekki stig fyrir sérstakar aðstæður barna þar sem það á ekki við. Þá fékk kærandi fjögur stig fyrir félagslegan vanda sem úrskurðarnefndin gerir ekki athugasemd við, enda verður að telja ljóst að aðrir liðir matsviðmiðsins, sem byggja á því að um málefni barna sé að ræða eða skyndileg veikindi og gefa fleiri stig, eigi ekki við um aðstæður hans.

Samkvæmt framangreindu var umsókn kæranda metin til níu stiga og uppfyllti hann því ekki skilyrði e. liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Að því virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að staðfesta beri synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 5. febrúar 2025, um að synja umsókn A, um félagslegt leiguhúsnæði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta