Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 561/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 561/2024

Fimmtudaginn 16. janúar 2025

A

gegn

Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. nóvember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu, dags. 29. október 2024, um að synja umsókn hennar um endurnýjun á húsaleigusamningi vegna félagslegs leiguhúsnæðis.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, móttekinni 28. október 2024, óskaði kærandi eftir endurnýjun á húsaleigusamningi vegna félagslegs leiguhúsnæðis að B. Umsókn kæranda var tekin fyrir á fundi félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu daginn eftir og henni synjað með vísan til 10. gr. reglna um úthlutun á félagslegu leiguhúsnæði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. nóvember 2024. Með bréfi, dags. 6. nóvember 2024, óskaði úrskurðarnefnd velferðarmála eftir greinargerð Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð barst úrskurðarnefndinni 19. nóvember 2024 þar sem meðal annars kom fram að kærandi hefði skotið hinni kærðu ákvörðun til stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu og að mál hennar yrði tekið fyrir 2. desember 2024. Greinargerðin var kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. nóvember 2024. Athugasemdir bárust frá kæranda samdægurs og voru þær kynntar byggðasamlaginu með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. nóvember 2024. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 7. janúar 2025, var óskað eftir upplýsingum frá byggðasamlaginu um niðurstöðu máls kæranda af stjórnarfundi 2. desember 2024. Svar barst samdægurs þar sem fram kom að stjórn hefði samþykkt að veita kæranda undanþágu í sex mánuði, eða til og með 30. júní 2025. Kærandi hefði svo kost á að sækja aftur um félagslegt leiguhúsnæði og/eða sækja um undanþágu aftur.

II. Niðurstaða

Kærð er ákvörðun félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu, dags. 29. október 2024, um að synja umsókn kæranda um endurnýjun á húsaleigusamningi vegna félagslegs leiguhúsnæðis. Eftir að kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála, eða þann 11. nóvember 2024, skaut hún hinni kærðu ákvörðun til stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu. Á fundi stjórnarinnar 2. desember 2024 var ákveðið að veita kæranda undanþágu í sex mánuði, eða til 30. júní 2025. Kærandi hefði svo kost á að sækja aftur um félagslegt leiguhúsnæði og/eða sækja um undanþágu aftur.

Úrskurðarnefndin telur ástæðu til að gera athugasemd við framangreinda meðferð stjórnar Félags- og skólaþjónustunnar. Þegar kærandi skaut máli sínu til stjórnarinnar hafði úrskurðarnefndin þegar óskað eftir greinargerð vegna kærunnar og átti byggðasamlaginu því að vera ljóst að mál kæranda væri til meðferðar hjá nefndinni. Áður en stjórnvald á lægra stjórnsýslustigi endurskoðar eigin ákvörðun er grundvallaratriði að gengið sé úr skugga um að málið sé ekki til meðferðar hjá æðra stjórnvaldi, enda verður ekki fjallað um mál á tveimur stjórnsýslustigum á sama tíma. Úrskurðarnefndin brýnir fyrir byggðasamlaginu að hafa framangreind sjónarmið til hliðsjónar telji það rétt að taka eigin ákvörðun til endurskoðunar sem kærð hefur verið til úrskurðarnefndarinnar.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga kemur fram að aðila máls hjá félagsþjónustu sveitarfélaga sé heimilt að kæra stjórnvaldsákvarðanir teknar samkvæmt lögunum til úrskurðarnefndar velferðarmála. Í sömu málsgrein segir að nefndin meti að nýju alla þætti kærumáls og að nefndin geti fellt úr gildi ógildanlegar ákvarðanir í heild eða að hluta en ekki tekið nýja ákvörðun í máli fyrir hönd sveitarfélags. Af framangreindu er ljóst að úrskurðarvald nefndarinnar er afmarkað við að fjalla um réttmæti tiltekinnar ákvörðunar eða ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 40/1991.

Í ljósi þess að hin kærða ákvörðun um synjun á endurnýjun húsaleigusamnings var afturkölluð og framangreinds hlutverks úrskurðarnefndarinnar er það mat nefndarinnar að lögvarðir hagsmunir kæranda af efnislegri úrlausn málsins séu ekki lengur til staðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.      

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta