Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 160/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 160/2025 – Beiðni um frestun réttaráhrifa

Mánudaginn 7. apríl 2025

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 11. mars 2025, kærði B lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 24. og 26. febrúar 2025, vegna umsóknar hans um sértækan húsnæðisstuðning. Með tölvupósti 1. apríl 2025 var lögð fram beiðni þess efnis að réttaráhrifum ákvörðunar frá 26. febrúar 2025 yrði frestað á meðan málið væri til meðferðar hjá nefndinni.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddan sértækan húsnæðisstuðning frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á tímabilinu febrúar til nóvember 2024 á grundvelli laga nr. 94/2023 um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ. Með bréfi stofnunarinnar, dags. 26. febrúar 2025, var kæranda tilkynnt að lokauppgjör sértæks húsnæðisstuðnings hefði leitt til þeirrar niðurstöðu að hann hefði fengið ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning að fjárhæð 3.124.397 kr.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 11. mars 2025. Með tölvupósti 1. apríl 2025 var lögð fram beiðni þess efnis að réttaráhrifum ákvörðunar frá 26. febrúar 2025 yrði frestað á meðan málið væri til meðferðar hjá nefndinni. Í úrskurði þessum er einungis tekin afstaða til beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa þeirrar ákvörðunar.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar þess að réttaráhrifum ákvörðunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um endurkröfu verði frestað á meðan málið sé til meðferðar hjá úrskurðarnefnd velferðarmála. Um háa fjárhæð sé að ræða sem kærandi sé krafinn um með mjög skömmum fyrirvara, en eindagi kröfunnar sé 22. apríl 2025. Kærandi telji ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar vafalaust ólögmæta, hann hafi uppfyllt öll lagaskilyrði sem þurfi til að eiga rétt á þeim stuðningi sem um ræði í málinu.

III.  Niðurstaða

Samkvæmt 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 frestar stjórnsýslukæra ekki réttaráhrifum ákvörðunar. Æðra stjórnvaldi er þó heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar á meðan kæra er til meðferðar þar sem ástæður mæla með því. Regla þessi er áréttuð í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála en þar segir að stjórnsýslukæra fresti ekki réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar nema á annan veg sé mælt í lögum sem kæranleg ákvörðun byggist á. Úrskurðarnefndinni sé þó heimilt að fresta réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar á meðan kæra er til meðferðar þar sem ástæður mæli með því. Samkvæmt framangreindu er heimild til frestunar réttaráhrifa undantekning frá meginreglu sem aðeins er ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til að fresta framkvæmd. Undantekningar frá meginreglum eru almennt túlkaðar þröngt.

Í athugasemdum við 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga í frumvarpi til stjórnsýslulaga kemur fram að ákvæðið hafi mesta þýðingu varðandi ákvarðanir sem fela í sér breytta réttarstöðu fyrir aðila, svo sem boð eða bann. Það hafi hins vegar sjaldnast nokkra þýðingu þegar um er að ræða neikvæðar stjórnsýsluákvarðanir þar sem synjanir hafa í för með sér óbreytt ástand fyrir aðila. Í athugasemdum við ákvæðið kemur einnig fram að ávallt verði að vega og meta hvort réttlætanlegt sé að fresta réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar í hverju tilviki fyrir sig. Við slíkt mat beri að líta til réttmætra hagsmuna hjá öllum aðilum málsins. Líta beri til þess hversu langt er um liðið frá því að hin kærða ákvörðun var tilkynnt aðilum, en einnig verður að horfa til þess hversu líklegt það sé að ákvörðuninni verði breytt.

Almennt mæli það á móti því að réttaráhrifum ákvörðunar sé frestað ef fleiri en einn aðili eru að máli og þeir eiga gagnstæðra hagsmuna að gæta eða ef til staðar eru mikilvægir almannahagsmunir, til dæmis þar sem ákvörðun hefur að markmiði að koma í veg fyrir hættuástand. Það mælir hins vegar með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls er aðeins einn og ákvörðun er íþyngjandi fyrir hann, veldur honum til dæmis tjóni. Þetta sjónarmið vegur sérstaklega þungt í þeim tilvikum þar sem erfitt yrði að ráða bót á tjóninu, enda þótt ákvörðunin yrði síðar felld úr gildi af hinu æðra stjórnvaldi.

Úrskurðarnefnd velferðarmála horfir til þess við mat á frestun réttaráhrifa hvaða áhrif og afleiðingar það muni hafa á hagsmuni kæranda verði réttaráhrifum ákvörðunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá 26. febrúar 2025 ekki frestað. Meðal þeirra sjónarmiða, sem litið er til við heildstætt mat á málinu, er hvort ákvörðun varði fleiri en einn aðila og hvort hún sé íþyngjandi í garð kæranda. Þá er litið til þess hvort það muni valda kæranda óafturkræfu tjóni eða tjóni sem erfitt yrði að bæta ef réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar yrði ekki frestað.

Kærandi hefur vísað til þess að endurkrafa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sé há og hafi verið lögð á hann með mjög skömmum fyrirvara. Fyrir liggur að tilkynning um kröfuna var birt kæranda með bréfi, dags. 26. febrúar 2025 og að eindagi kröfunnar er 22. apríl 2025.

Að mati úrskurðarnefndarinnar standa ekki rök til þess að víkja frá þeirri meginreglu að kæra fresti ekki réttaráhrifum ákvörðunar. Við það mat lítur úrskurðarnefndin til þess að ekki verður um óafturkræft tjón að ræða þótt krafan falli á eindaga áður en úrskurður í málinu liggur fyrir. Kæranda var einnig með framangreindu bréfi bent á að hann gæti óskað eftir greiðsludreifingu kröfunnar og því ljóst að hann getur leitað til stofnunarinnar varðandi fyrirhugaðar innheimtuaðgerðir. Þá er ekki fyrirséð að töf verði á afgreiðslu málsins hjá úrskurðarnefndinni en hægt verður að taka málið til úrskurðar fljótlega eftir að gagnaöflun er lokið. Beiðni kæranda er því synjað.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Beiðni A, um að fresta réttaráhrifum ákvörðunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá 26. febrúar 2025, er synjað.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta