Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 643/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 643/2024

Fimmtudaginn 30. janúar 2025

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. desember 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 2. desember 2024, um að synja umsókn hennar um húsnæðisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði húsnæðisbætur á árinu 2024 á grundvelli umsóknar frá 8. september 2022. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 2. desember 2024, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið hafnað þar sem fleiri heimilismenn væru búsettir í leiguhúsnæðinu en fram kæmu í umsókn.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 9. desember 2024. Með bréfi, dags. 12. desember 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Svar barst frá stofnuninni 17. desember 2024 þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að hinni kærðu ákvörðun og því hefði hún verið afturkölluð, sbr. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Óskað var eftir afstöðu kæranda til svars Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. desember 2024. Sú beiðni var ítrekuð með tölvupósti 16. janúar 2025. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 2. desember 2024, um að synja umsókn kæranda um húsnæðisbætur. Í kjölfar kærunnar fór Húsnæðis- og mannvirkjastofnun yfir mál kæranda og tilkynnti úrskurðarnefnd velferðarmál að ranglega hefði verið staðið að hinni kærðu ákvörðun. Stofnunin hefði því afturkallað ákvörðunina, sbr. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Óskað var eftir afstöðu kæranda til þeirrar ákvörðunar en svar barst ekki.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur er heimilt að kæra ákvarðanir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem teknar eru á grundvelli laganna til úrskurðarnefndar innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.

Af framangreindu er ljóst að úrskurðarvald nefndarinnar er afmarkað við að fjalla um réttmæti tiltekinnar ákvörðunar eða ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 75/2016. Í ljósi þess að hin kærða ákvörðun um synjun á umsókn kæranda um húsnæðisbætur var afturkölluð og framangreinds hlutverks úrskurðarnefndarinnar er það mat nefndarinnar að lögvarðir hagsmunir kæranda af efnislegri úrlausn málsins séu ekki lengur til staðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.      


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta