Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir félags- og húsnæðismálaráðuneytisins

Úrskurður félags- og húsnæðismálaráðuneytis 10/2025

Föstudaginn 23. maí 2025, var í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

ú r s k u r ð u r:

 

Með erindi til félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 18. mars 2025, sbr. einnig erindi til ráðuneytisins, dags. 5. apríl 2025, kærði […], lögmaður, fyrir hönd J.K. Múr ehf., og […], sem er albanskur ríkisborgari, fd. […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. mars 2025, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá J.K. Múr ehf. auk þess sem óskað var eftir að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað. Úrskurður þessi lýtur eingöngu að beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.

 

 

Málavextir og málsástæður

Málavextir verða hér einungis raktir að því marki sem þörf er á í tengslum við beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.

Mál þetta varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. mars 2025 um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá J.K. Múr ehf.

Þeirri ákvörðun vildu kærendur ekki una og kærðu þeir ákvörðunina til ráðuneytisins með erindi, dags. 18. mars 2025, sbr. einnig erindi til ráðuneytisins, dags. 5. apríl 2025, auk þess sem kærendur óskuðu eftir því að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað með vísan til 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Í erindi kærenda eru færð fram þau rök fyrir frestun réttaráhrifa á grundvelli 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga að réttaráhrif hinnar kærðu ákvörðunar hafi þungbær og íþyngjandi áhrif fyrir kærendur en viðkomandi útlendingur hafi starfað hér á landi fyrir hlutaðeigandi atvinnurekanda í rúmlega fimm ár. Fram kemur að verði réttaráhrifum ákvörðunarinnar ekki frestað myndi það að mati kærenda hafa víðtæk áhrif á líf viðkomandi útlendings, enda yrði honum þá óheimilt að afla sér tekna auk þess sem ákvörðunin myndi takmarka möguleika hans til að fá veitt ótímabundið dvalarleyfi.

Það er jafnframt mat kærenda að umrædd ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi veruleg áhrif á hlutaðeigandi atvinnurekanda, enda sé viðkomandi útlendingur eini starfsmaður félagsins fyrir utan atvinnurekandann sem sé jafnframt eigandi félagsins. Að mati kærenda liggi þannig fyrir nauðsyn af hálfu félagsins þess efnis að viðkomandi útlendingi verði heimilt að starfa áfram hjá félaginu meðan málið sé til meðferðar hjá ráðuneytinu, enda myndi félagið að öðrum kosti eiga í vandræðum með að standa skil á skuldbindingum þess sem geti haft í för með sér tjón fyrir félagið.

 

Erindi kærenda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 7. apríl 2025. Í bréfinu óskaði ráðuneytið sérstaklega eftir umsögn Vinnumálastofnunar í tengslum við beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar auk þess sem ráðuneytið óskaði eftir afriti af öllum gögnum málsins.

Með bréfi til ráðuneytisins, dags. 29. apríl 2025, upplýsti Vinnumálastofnun um að stofnunin teldi ekki ástæðu til að fjalla sérstaklega um beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa og vísaði stofnunin í því sambandi til gagna málsins sem fylgdu með fyrrnefndu bréfi stofnunarinnar til ráðuneytisins.

 

Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, er atvinnurekanda og útlendingi sameiginlega heimilt að kæra til félags- og húsnæðismálaráðuneytis ákvarðanir Vinnumálastofnunar á grundvelli laganna. Samkvæmt 2. mgr. 34. gr. laganna frestar stjórnsýslukæra ekki réttaráhrifum umræddrar ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum við 15. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 74/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, er varð að 34. gr. gildandi laga um atvinnuréttindi útlendinga, er tekið fram að miðað sé við að ráðuneytinu „sé engu síður heimilt á grundvelli 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar þar sem ástæður mæla með því.“

Í máli þessu er kærð ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis en stofnunin synjaði um veitingu leyfisins með vísan til 7. mgr. 19. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga þar sem viðkomandi útlendingur hafi að mati stofnunarinnar lagt fram röng eða villandi gögn við fyrri umsóknir um atvinnuleyfi. Enn fremur vísar stofnunin í ákvörðun sinni til þess að fyrir liggi að viðkomandi útlendingi sé óheimilt að gegna starfi múrara hér á landi þar sem þar til bær stjórnvöld hafi afturkallað viðurkenningu á starfsréttindum og starfsleyfi hans í múraraiðn.

Í ákvörðun Vinnumálastofnunar kemur jafnframt fram að 15. október 2024 hafi verið sótt um framlengingu á tímabundnu atvinnuleyfi fyrir viðkomandi útlending vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, sbr. 8. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, en 13. desember 2024 hafi þess verið óskað að grundvelli þeirrar umsóknar yrði breytt þannig að sótt væri um tímabundið leyfi vegna skorts á starfsfólki, sbr. 9. gr. laganna.

Þá liggur fyrir í gögnum málsins að með tölvupósti, dags. 9. desember 2024, hafi kærendur upplýst Vinnumálastofnun um að þó svo að sótt hafi verið um endurnýjun á tímabundnu atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar taki kærendur nú undir með Vinnumálstofnun hvað varðar það að viðkomandi útlendingur sé ekki múrari. Fram kemur í fyrrnefndum tölvupósti að í ljósi framangreinds yrði sótt um tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli skorts á vinnuafli vegna starfs almenns verkamanns.

Jafnframt kemur fram í gögnum málsins að með tölvupósti, dags. 10. desember 2024, hafi Vinnumálastofnun upplýst kærendur um að stofnunin hefði rökstuddan grun um að lögð hafi veri verið fram fölsuð gögn í tengslum við fyrri umsókn um tímabundið atvinnuleyfi. Af þeim sökum muni Vinnumálastofnun synja umsókn um fyrrnefnt atvinnuleyfi. Þá kemur fram í gögnum málsins að með tölvubréfi kærenda til Vinnumálastofnunar, dags. 10. desember 2024, hafi kærendur upplýst um að umsókn kærenda myndi ekki byggja á fyrrgreindum gögnum, en með tölvupósti hinn 13. desember sama ár, upplýstu kærendur um að búið væri að leggja inn hjá Útlendingastofnun umsókn um tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli skorts á starfsfólki.

Samkvæmt 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, er æðra stjórnvaldi heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar meðan kæra er til meðferðar þar sem ástæður mæla með því. Í athugasemdum við 2. mgr. 29. gr. frumvarps þess er síðar varð að stjórnsýslulögum kemur meðal annars fram að ávallt verði að vega og meta í hverju tilviki fyrir sig hvort réttlætanlegt sé að fresta réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar en við slíkt mat beri að líta til réttmætra hagsmuna hjá öllum aðilum máls. Þá kemur fram að reglan þyki nauðsynleg þar sem kæruheimild geti í raun orðið þýðingarlaus ef æðra stjórnvald hefur ekki heimild til þess að fresta réttaráhrifum ákvörðunar. Jafnframt kemur fram að ákvæðið hafi mesta þýðingu varðandi ákvarðanir sem fela í sér breytta réttarstöðu fyrir aðila, svo sem boð eða bann. Það hafi hins vegar sjaldnast nokkra þýðingu þegar um er að ræða neikvæðar stjórnvaldsákvarðanir þar sem synjanir hafi í för með sér óbreytt ástand fyrir aðila. Enn fremur kemur fram að það mæli með því að fresta réttaráhrifum ákvörðunar ef aðili máls er einungis einn og sú ákvörðun sem um ræðir er íþyngjandi fyrir hann. Í athugasemdunum kemur einnig fram að líta beri til þess hversu langt sé um liðið frá því að hin kærða ákvörðun var tilkynnt aðilum, en einnig verði að horfa til þess hversu líklegt það sé að ákvörðuninni verði breytt.

Að framangreindu virtu lítur ráðuneytið almennt svo á að við mat á því hvort fresta skuli réttaráhrifum kærðrar ákvörðunar beri ávallt að leggja heildstætt mat á aðstæður. Í máli þessu liggur fyrir að viðkomandi útlendingur hafi áður starfað hér á landi grundvelli tímabundins atvinnuleyfis vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar og að upphaflega hafi verið sótt um framlengingu á því leyfi. Enn fremur liggur fyrir að viðurkenning á starfsréttindum viðkomandi útlendings sem og starfsleyfi hans sem múrari hafi verð afturkallað af þar til bærum aðilum.

Eins og atvikum þessa máls er háttað, sbr. framangreint, verður því að mati ráðuneytisins að líta svo á að synjun Vinnumálastofnunar feli ekki í sér breytta réttarstöðu fyrir aðila máls, enda hafi viðurkenning á starfsréttindum sem og starfsleyfi viðkomandi útlendings sem múrari verið afturkallað og honum því þegar óheimilt að starfa hér á landi við múraraiðn áður en ákvörðun stofnunarinnar var tekin. Er það því mat ráðuneytisins að ekki séu fyrir hendi ástæður sem mæli með frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar.

Í ljósi framangreinds telur ráðuneytið að ástæður í máli þessu mæli ekki með því að réttaráhrifum umræddrar ákvörðunar Vinnumálastofnunar verði frestað þar til niðurstaða ráðuneytisins liggur fyrir í málinu og því verði ákvæði 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga ekki beitt í máli þessu.

 

 

 

 

Úrskurðarorð

Beiðni um frestun réttaráhrifa ákvörðunar Vinnumálastofnunar, dags. 12. mars 2025, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá J.K. Múr ehf., meðan kæran er til meðferðar hjá ráðuneytinu, er hafnað.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta