Hoppa yfir valmynd
K

Nr. 343/2025 Úrskurður

Hinn 25. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 343/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25040034

 

Endurtekin umsókn [...]

 

I.       Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 101/2025, dags. 13. febrúar 2025, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. ágúst 2024, um að taka umsókn karlmanns að nafni [...], fd. [...], ríkisborgara Rússlands (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 13. febrúar 2025.

Hinn 7. apríl 2025 barst kærunefnd endurtekin umsókn kæranda. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust frá Vinnumálastofnun, heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun 8. apríl 2025.

Ráða má að umsókn kæranda byggi á 35. gr. a laga um útlendinga nr. 80/2016.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Í tölvubréfi til kærunefndar vísar kærandi m.a. til þess að frestur samkvæmt 1. mgr. 29. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin) til að flytja hann til endursendingarríkis sé liðinn. Með vísan til þess sé lögð fram endurtekin umsókn.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga skal endurtekinni umsókn vísað frá. Þó skal taka endurtekna umsókn til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsókn hans samkvæmt 24. gr. laganna.

Kærunefnd óskaði eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun, Vinnumálastofnun og heimaferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra 8. apríl 2025, um hvort kærandi væri staddur hér á landi. Í svari Vinnumálastofnunar, dags. 8. apríl 2025, kom fram að kærandi væri búsettur í tilteknu búsetuúrræði á vegum Vinnumálastofnunar og hafi verið að sækja þjónustu hjá þeim. Í svari heimferða- og fylgdadeildar Ríkislögreglustjóra, dags. 8. apríl 2025, kom fram að kærandi hafi verið boðaður í þrjú viðtöl hjá heimferða- og fylgdadeild sem hann hafi mætt í. Í svari Útlendingastofnunar, dags. 8. apríl 2025, kemur fram að eftir því sem stofnunin komist næst sé kærandi enn staddur hér á landi og ekki hafi borist tilkynning um flutning hans af landinu. Með vísan til þessa er lagt til grundvallar að kærandi sé staddur hér á landi og því fyrra skilyrði 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga uppfyllt.

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland Dyflinnarreglugerðina, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Hinn 23. júlí 2024 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 24. júlí 2024, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Við rekstur máls sem fer samkvæmt fyrirkomulagi Dyflinnarreglugerðarinnar þurfa stjórnvöld að gæta að tilteknum tímafrestum, sbr. m.a. 1. og 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar sem fjallar um fyrirkomulag og fresti. Í því ákvæði felst m.a. að flutningur á umsækjanda skal fara fram innan sex mánaða frá því að lokaákvörðun var tekin um kæru eða endurskoðun. Þó er heimilt í undantekningartilvikum að framlengja frest til flutnings í að hámarki 18 mánuði ef hlutaðeigandi einstaklingur hleypst á brott (e. abscond). Ef umræddir frestir líða leiðir það til þess að ábyrgð á viðkomandi umsókn um alþjóðlega vernd færist sjálfkrafa yfir til þess aðildarríkis sem leggur fram beiðni, sbr. til hliðsjónar dómur Evrópudómstólsins í máli Shiri, C-201/16, frá 25. október 2017 (26.-34. mgr. dómsins). Ef frestir samkvæmt 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar líða er íslenskum stjórnvöldum því ekki lengur heimilt að krefja viðkomandi ríki um viðtöku einstaklings í skilningi c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í úrskurði kærunefndar nr. 237/2019 frá 9. maí 2019 ákvað kærunefnd að þegar mál hefur verið kært til kærunefndar og réttaráhrifum frestað yrði upphafstími þessa frests miðaður við dagsetningu birtingar úrskurðar kærunefndar. Eins og að framan greinir samþykktu ítölsk yfirvöld viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar 24. júlí 2024. Endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi var birt fyrir kæranda 13. febrúar 2025. Eru því ekki liðnir sex mánuðir frá endanlegri niðurstöðu á stjórnsýslustigi.

Að framangreindu virtu er frestur til að flytja kæranda til viðtökuríkis ekki liðinn samkvæmt 1. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Af því leiðir að ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hefur ekki flust yfir á íslensk stjórnvöld og því er enn hægt að krefja endursendingarríkið um að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Er kröfu kæranda um endurtekna umsókn vísað frá.


Úrskurðarorð:

 

Endurtekinni umsókn kæranda er vísað frá.  

 

The appellant‘s subsequent application is dismissed.

 

 

F.h. kærunefndar útlendingamála,

 

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta