Mál nr. 89/2024 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 29. apríl 2025
í máli nr. 89/2024
A
gegn
B
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Víðir Smári Petersen prófessor og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A.
Varnaraðili: B.
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að afhenda honum kvittanir fyrir leigugreiðslum vegna þeirra ára sem hann leigði íbúð hennar.
Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.
Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 7. ágúst 2024.
Greinargerð varnaraðila, dags. 5. nóvember 2024.
Athugasemdir sóknaraðila, dags. 4. febrúar 2025.
Athugasemdir varnaraðila, dags. 5. febrúar 2025.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu ótímabundinn leigusamning frá 1. mars 2020 um leigu sóknaraðila á herbergi í eigu varnaraðila að C. Ágreiningur er um kvittanir fyrir leigugreiðslum.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveðst hafa leigt herbergi í húsnæði varnaraðila í þrjú ár. Ekki hafi verið gerður skriflegur leigusamningur og hann hafi ekki fengið kvittanir fyrir hverja leigugreiðslu. Hann hafi upplýst varnaraðila að hann myndi yfirgefa herbergið í lok ágúst 2024 og að hann myndi hjálpa henni við að finna nýjan leigjanda. Síðustu leigugreiðsluna hafi hann innt af hendi 16. júlí sama ár. Sóknaraðili hafi óskað eftir kvittunum vegna leigugreiðslna síðustu þriggja ára, en varnaraðili hafi hafnað því.
III. Sjónarmið varnaraðila
Varnaraðili kveðst ekki vita til þess að það sé skylda, skilyrði eða almennt til siðs að útbúa formlegar kvittanir þegar leiga sé greidd. Leigan hafi verið greidd með millifærslum og sóknaraðili sé þannig með allar kvittanir fyrir greiðslum í sínum heimabanka. Varnaraðili sé hvorki lögaðili né með rafrænt bókhald. Hún hafi beðið sóknaraðila um nafn og símanúmer bókara hans svo hún gæti fengið upplýsingar um hvað þyrfti að koma fram í téðum kvittunum. Sóknaraðili hafi ekki gefið það upp. Varnaraðili hafi boðist til þess að kaupa kvittanahefti í bókabúð og senda á hann þannig kvittanir en hafi ekki fengið neitt heimilisfang til þess að senda þær á.
Sóknaraðili hafi ekki óskað eftir skriflegum leigusamningi, en ekki sé hægt að sækja um húsnæðisbætur vegna leigu í húsinu þar sem eldhús og baðherbergi sé sameiginlegt. Í húsaleigulögum sé kveðið á um að lögin gildi hvort sem skriflegur samningur sé til staðar eða ekki og því hafi hún litið svo á að það væri ekki endilega þörf á því að útbúa skriflegan samning.
IV. Athugasemdir sóknaraðila
Í athugasemdum sóknaraðila segir að hann geri ekki kröfu um annað en að varnaraðila verði gert að afhenda honum kvittanir fyrir leigugreiðslum.
V. Athugasemdir varnaraðila
Í athugasemdum varnaraðila segir að hún hafi verið leigusali í mörg ár og ekki sé gerð krafa um rafrænt bókhald eða kvittanir varðandi leigu enda sé hún ekki virðisaukaskattskyld. Leigan hafi verið skrifuð á skattskýrsluna. Krafa sóknaraðili hafi fyrst komið fram eftir lok leigutíma.
VI. Niðurstaða
Samkvæmt gögnum málsins leigði sóknaraðili herbergi af varnaraðila í um þrjú ár en ekki var gerður skriflegur leigusamningur. Óumdeilt er að leiguréttarsambandi aðila er lokið og hvorugur gerir kröfu á hendur hinum vegna efnda á honum. Ágreiningur er aftur á móti um kröfu sóknaraðila um að varnaraðili útbúi kvittanir fyrir leigugreiðslur allt leigutímabilið.
Sóknaraðili greiddi leigu með millifærslu í banka og á hann þannig sjálfur staðfestingar á því að hann hafi millifært leigu inn á varnaraðila á leigutíma. Þess utan hefur komið fram í svörum varnaraðila að hún hafi boðist til þess að handskrifa kvittanir en ekki fengið heimilisfang til þess að senda þær á. Með vísan til framangreinds er kröfu sóknaraðila hafnað.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kröfu sóknaraðila er hafnað.
Reykjavík, 29. apríl 2025
Auður Björg Jónsdóttir
Víðir Smári Petersen Eyþór Rafn Þórhallsson