Hoppa yfir valmynd
K

Mál nr. 52/2024 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 29. apríl 2025

í máli nr. 52/2024

 

A, B og C

gegn

D

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Víðir Smári Petersen prófessor og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðilar: A, B og C. Umboðsmaður sóknaraðila er E.

Varnaraðili: D.

Krafa sóknaraðila A er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða henni tryggingarfé að fjárhæð 150.000 kr.

Krafa sóknaraðila B er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða henni tryggingarfé að fjárhæð 140.000 kr.

Krafa sóknaraðila C er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða henni tryggingarfé að fjárhæð 150.000 kr.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 28. maí 2024.

Svar sóknaraðila, dags. 3. febrúar 2025, við fyrirspurn kærunefndar.

Kærunefnd hefur ítrekað reynt að óska eftir afstöðu varnaraðila til kæru sóknaraðila. Nefndin sendi beiðni um greinargerð með tölvupósti á netfang varnaraðila 14. nóvember 2024, sem var óvirkt. Einnig sendi nefndin beiðnina með bréfpósti á lögheimili varnaraðila, bæði með hefðbundnum pósti og ábyrgðarpósti en í bæði skiptin kom hún endursend. Þá náði nefndin sambandi við varnaraðila símleiðis 25. nóvember 2024 og var hún upplýst um að kæran lægi fyrir en árangurslaust var óskað eftir upplýsum um netfang og/eða heimilisfang varnaraðila.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Sóknaraðilar gerðu hver fyrir sig tímabundna leigusamninga um leigu þeirra á íbúðum varnaraðila að F. Ágreiningur er um endurgreiðslu tryggingarfjár.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðilar kveða að tvær íbúðir hafi verið í húsnæði varnarðila en hún hafi misst það á nauðungarsölu og neitað að endurgreiða tryggingarféð. Bankinn hafi eignast húsnæðið 31. október 2023 og hafi þá verið gerður leigusamningur til eins árs.

III. Niðurstaða            

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir kærunefnd og verður því við úrlausn málsins byggt á þeim sjónarmiðum og gögnum sem sóknaraðilar hafa lagt fyrir nefndina.

Til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila lagði sóknaraðili B fram tryggingarfé að fjárhæð 140.000 kr. og sóknaraðilar A og C lögðu hvor um sig fram 150.000 kr. Húsnæðið var selt á nauðungaruppboði 31. október 2023, en sóknaraðilar kveðast hafa verið fluttar út þá og að varnaraðili hafi neitað að endurgreiða þeim tryggingarféð.

Í 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, er kveðið á um að leigusali skuli svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hafi uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. gr. Hafi leigusali ekki gert kröfu samkvæmt 1. málsl. skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar og skuli hann greiða leigjanda dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er hann skilar tryggingarfénu

Leigusamningur aðila féll niður við nauðungarsölu á hinu leigða 31. október 2023. Varnaraðili hefur ekki gert skriflega kröfu í tryggingarfé aðila og ber því að endurgreiða sóknaraðila B tryggingarfé að fjárhæð 140.000 kr., sóknaraðila A tryggingarfé að fjárhæð 150.000 kr. og sóknaraðila C tryggingarfé að fjárhæð 150.000 kr. ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá þeim degi sem tryggingarféð var lagt fram en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er fjórar vikur voru liðnar frá lok leigusamnings aðila til þess dags er hún skilar tryggingarfénu, sbr. 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga. Þar sem leigusamningi aðila lauk 31. október 2023 reiknast dráttarvextir frá 29. nóvember 2023.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila A tryggingarfé að fjárhæð 150.000 kr. ásamt vöxtum samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, frá þeim degi sem tryggingarféð var lagt fram til 29. nóvember 2023 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags.

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila B tryggingarfé að fjárhæð 140.000 kr. ásamt vöxtum samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, frá þeim degi sem tryggingarféð var lagt fram til 29. nóvember 2023 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags.

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila C tryggingarfé að fjárhæð 150.000 kr. ásamt vöxtum samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigsulaga, nr. 36/1994, frá þeim degi sem tryggingarféð var lagt fram til 29. nóvember 2023 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags.

 

Reykjavík, 29. apríl 2025

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

Víðir Smári Petersen                                     Eyþór Rafn Þórhallsson

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta