Hoppa yfir valmynd
K

Nr. 325/2025 Úrskurður

Hinn 23. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 325/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24120023

 

Kæra [...]

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 4. desember 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 26. nóvember 2024, um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til Íslands með flugi frá Búdapest, Ungverjalandi, 26. nóvember 2024. Með ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 26. nóvember 2024, var kæranda vísað frá landinu.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c-, og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í skýrslu lögreglu, dags. 27. nóvember 2024, er greint frá afskiptum lögreglu af kæranda við löggæslueftirlit á Keflavíkurflugvelli. Fram kemur að kærandi hafi ekki haft farmiða úr landi og veitt misvísandi svör um hvert og hvenær hann hygðist fara að dvöl lokinni. Þá hafi framferði kæranda bent til þess að hann hefði ekki undirbúna ferðaáætlun, auk þess sem hann hafi verið vanbúinn til útivistar þrátt fyrir að kveðjast ætla nýta ferðina eða einhverju leyti til útivistar. Enn fremur hafi tilsvör kæranda varðandi samgöngur hérlendis ýtt undir ótrúverðugleika framburðar hans. Þá hafi hann ekki haft nægt fjármagn þar sem ekki væri víst hversu lengi hann hygðist dvelja á landinu. Í framhaldinu hafi lögregla tekið ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c-, og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, einkum vegna ótrúverðugs framburðar og ónógs fjármagns.

Kærandi kærði ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 4. desember 2024. Kærandi lagði fram greinargerð og frekari fylgigögn vegna málsins 19. desember 2024.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu málsins verður greinargerð kæranda ekki reifuð nánar.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 11. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um leiðbeiningarskyldu stjórnvalda. Í 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga kemur fram að í máli er varðar frávísun, brottvísun eða afturköllun leyfis skal útlendingi þegar í upphafi máls leiðbeint um réttindi sín og meðferð málsins á tungumáli sem ætla má með sanngirni að hann geti skilið. Samkvæmt a-lið ákvæðisins skal útlendingi m.a. leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á eigin kostnað við meðferð máls.

Í skýrslu lögreglu, dags. 27. nóvember 2024, kemur ekki fram hvort kæranda hafi verið leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns í upphafi máls. Með tölvubréfum kærunefndar, dags. 21. og  28. mars 2025 óskaði nefndin eftir upplýsingum lögreglu um það hvort kæranda hafi verið leiðbeint um framangreindan rétt sinn. Í upplýsingum frá lögreglu, dags. 23. apríl 2025, kemur fram að kæranda hafi ekki verið leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á fyrstu stigum málsins, með formlegum hætti. Kæranda hafi verið tilkynnt um þann rétt eftir upplýsingatöku við tilkynningu ákvörðunar um frávísun. Kæranda hafi þó ekki verið meinað eða komið í veg fyrir að hann hefði samband við þá einstaklinga sem hann hafi viljað hafa samband við. Hafi hann haft aðgang að öllum sínum eigum, þ.m.t. að símtæki, og því getað rætt við þá aðila sem hann kysi.

Ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um fortakslausa skyldu íslenskra stjórnvalda til að hafa frumkvæði að því að leiðbeina útlendingi við upphaf máls um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á eigin kostnað. Samkvæmt framangreindu er ekki unnt að slá því föstu hvort að kæranda hafi verið leiðbeint um þann rétt sinn í samræmi við 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga og kann að vera að sá annmarki hafi haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Er því óhjákvæmilegt að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.

 

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum er felld úr gildi.

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is vacated.

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir                                                 Vera Dögg Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta