Mál nr. 85/2024 - Álit
ÁLIT
KÆRUNEFNDAR HÚSAMÁLA
í máli nr. 85/2024
Lögmæti ákvörðunar um gjöld í hússjóð.
I. Málsmeðferð kærunefndar
Með álitsbeiðni, dags. 14. ágúst 2024, beindi A hér eftir nefndur álitsbeiðandi, til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við Húsfélagið B, hér eftir nefnt gagnaðili.
Auk álitsbeiðni voru greinargerð gagnaðila, móttekin 6. september 2024, og athugasemdir álitsbeiðanda, 9. september 2024, lagðar fyrir nefndina.
Málið var tekið til úrlausnar á fundi nefndarinnar 29. apríl 2025.
II. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Um er að ræða fjöleignarhúsið C, alls 43 eignarhluta. Álitsbeiðandi er eigandi íbúðar í húsinu en gagnaðili er húsfélagið.
Krafa álitsbeiðanda er:
Að viðurkennt verði að ekki liggi fyrir lögmæt ákvörðun gagnaðila um gjöld í hússjóð vegna tímabilsins nóvember 2023 til júní 2024.
Álitsbeiðandi hafnar því að lögmæt ákvörðun um gjöld í hússjóð hafi verið tekin á húsfundi 18. september 2023. Í fundargerð hafi komið fram tillaga um að álitsbeiðandi ætti að greiða 17.897 kr. í hússjóðsgjöld og að stjórn gagnaðila hafi verið veitt heimild til að ákvarða gjöldin. Eftir fundinn hafi ákvörðun um gjöld í hússjóð verið tekin og hækkuð fyrir íbúð álitsbeiðanda miðað við þær tillögur sem hafi verið ræddar á fundinum. Álitsbeiðandi hafi engar upplýsingar um þessa ákvörðun um hússjóðsgjalda, þar með talið hvort stjórn gagnaðila eða húsfélagsþjónustan hafi tekið hana. Lögmæta ákvörðun um gjöld í hússjóð sé eingöngu hægt að taka á húsfundum. Þá hafi ný eignaskiptayfirlýsing verið gerð fyrir húsið og henni verið þinglýst í kringum 20. desember 2023, en miklar breytingar hafi orðið á eign álitsbeiðanda þar sem þrjár geymslur hafi verið færðar af henni og því hefðu gjöld í hússjóð átt að lækka þar sem hlutdeild hans í sameign hússins hafi minnkað.
Gagnaðili kveður að á aðalfundi 18. júní 2024 hafi fyrri ákvörðun um gjöld í hússjóð, sem tekin hafi verið á stofnfundi 18. september 2023, verið staðfest. Þegar fyrri fundurinn hafi verið haldinn hafi verið í gildi þinglýst eignaskiptayfirlýsing frá 31. október 2022. Í hinni nýju eignaskiptayfirlýsingu hafi skiptahlutföll álitsbeiðanda breyst þar sem hlutdeild hans í sameiginlegum kostnaði hafi lækkað óverulega. Á stofnfundinum hafi verið nauðsyn að gera ráð fyrir því að fljótlega yrði nýrri eignaskiptayfirlýsingu þinglýst. Jafnframt hafi þurft að gera ráð fyrir því að sameiginlegum kostnaði yrði skipt eftir henni, enda hefði annað kallað á umfangsmiklar leiðréttingar í lok uppgjörsárs.
III. Forsendur
Í fundargerð húsfundar sem haldinn var 18. september 2023 kemur fram undir dagskrárlið sem ber yfirskriftina „Kostnaðar- og húsgjaldaáætlun, stofnun hússjóðs“ að drög að kostnaðar- og húsgjaldaáætlun hefði verið kynnt og að áætlaður rekstrarkostnaður nemi 10.750.000 kr. Kærunefnd hefur áður fjallað um ágreining aðila, sbr. álit í máli nr. 111/2023, þar sem ekki var fallist á kröfu álitsbeiðanda um viðurkenningu á ólögmæti fundarins. Þá liggur fyrir að á húsfundi 18. júní 2024 var ákvörðun húsfundar frá 18. september 2023 um húsgjöld staðfest til að fyrirbyggja frekari ágreining. Var tillagan samþykkt samhljóða af fundarmönnum þar sem mættir voru fulltrúar 33 eignarhluta af 43. Telur nefndin engan vafa leika á að fundargerð húsfundarins 18. júní 2024 beri með sér að um hafi verið að ræða ákvörðun um greiðslu hússjóðsgjalda á grundvelli þeirrar áætlunar sem hafi legið fyrir á fundinum 18. september 2023. Samkvæmt 4. mgr. 40. gr. laga um fjöleignarhús, og þeim sjónarmiðum sem búa henni að baki, er heimilt að betrumbæta gallaða ákvörðun á öðrum lögmætum fundi, sem er það sem gagnaðili gerði vegna ágreinings aðila, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar í máli nr. 283/2002.
Að framangreindu virtu liggur fyrir lögmæt ákvörðun um greiðslu gjalda í hússjóð að mati kærunefndar og er kröfu álitsbeiðanda því hafnað.
Álit nefndarinnar hindrar ekki aðila í að leggja ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti, sbr. 6. mgr. 80. gr. laga um fjöleignarhús.
IV. Niðurstaða
Það er álit kærunefndar að hafna beri kröfu álitsbeiðanda.
Reykjavík, 29. apríl 2025
Auður Björg Jónsdóttir
Víðir Smári Petersen Eyþór Rafn Þórhallsson