Úrskurður félags- og húsnæðismálaráðuneytis 12/2025
ú r s k u r ð u r:
Með erindi til félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 7. apríl 2025, kærði […], lögmaður, fyrir hönd RM pípulagna ehf., kt. 660723-0720, og […], sem er ríkisborgari Albaníu, fd. […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. mars 2025, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá RM pípulögnum ehf.
Málsatvik og málsástæður
Mál þetta varðar veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá RM pípulögnum ehf. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til 7. mgr. 19. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.
Þeirri ákvörðun vildu kærendur ekki una og kærðu þeir ákvörðunina til ráðuneytisins með erindi til ráðuneytisins, dags. 7. apríl 2025.
Með tölvubréfi ráðuneytisins til Vinnumálastofnunar, dags. 10. apríl 2025, óskaði ráðuneytið eftir frekari upplýsingum frá stofnuninni um samskipti stofnunarinnar við kærendur í tengslum við mál þetta.
Í svari Vinnumálastofnunar, dags. 14. apríl 2025, kemur fram að hin kærða ákvörðun hafi verið tekin 6. mars 2025 og að ákvörðunin hafi verið tilkynnt skráðum umboðsmanni kærenda, […], lögmanni, með tölvubréfi sama dag.
Með bréfi ráðuneytisins til kærenda, dags. 15. apríl 2025, óskaði ráðuneytið meðal annars eftir upplýsingum um ástæður þess að umrætt erindi hafi borist ráðuneytinu að loknum lögbundnum kærufresti.
Í svarbréfi kærenda, dags. 8. maí 2025, hafna kærendur því að umrædd kæra hafi borist ráðuneytinu að liðnum fjögurra vikna kærufresti. Í því sambandi benda kærendur á að í erindi kærenda til ráðuneytisins, dags. 7. apríl 2025, hafi komið fram að ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. mars. 2025, hafi borist kærendum 10. mars sama ár. Það sé því mat kærenda að umrædd kæra hafi borist ráðuneytinu innan fjögurra vikna kærufrests samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. einnig 1. mgr. 8. gr. stjórnsýslulaga.
Niðurstaða
Samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, er atvinnurekanda og útlendingi sameiginlega heimilt að kæra til ráðuneytisins ákvarðanir Vinnumálastofnunar á grundvelli laganna og er kærufrestur fjórar vikur frá því að tilkynning barst um ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. 2. mgr. sama ákvæðis.
Fram kemur í gögnum málsins að ákvörðun Vinnumálastofnunar, um synjun á veitingu umrædds atvinnuleyfis, hafi verið send skráðum umboðsmanni kærenda með tölvubréfi sama dag og umrædd ákvörðun hafi verið tekin þann 6. mars 2025. Að mati ráðuneytisins verður því ekki annað séð af gögnum málsins en að upplýsingar um ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi borist kærendum með hefðbundum og sannanlegum hætti strax í kjölfar þess að ákvörðun stofnunarinnar lá fyrir.
Í því sambandi bendir ráðuneytið á að skv. 1. mgr. 39. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, telst stjórnvaldsákvörðun á rafrænu formi birt aðila þegar hann á þess kost að kynna sér efni ákvörðunarinnar og ber aðili máls ábyrgð á því að vél- og hugbúnaður hans fullnægi þeim kröfum sem til búnaðarins eru gerðar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laganna, og nauðsynlegar eru svo að hann geti kynnt sér efni stjórnvaldsákvörðunar eða annarra gagna sem stjórnvald sendir honum á rafrænu formi.
Í ljósi framangreinds er það mat ráðuneytisins að kærufrestur í máli þessu hafi byrjað að líða þann 7. mars 2025 og að hann hafi runnið út þann 4. apríl 2025 eða fjórum vikum frá því að tilkynning barst til skráðs umboðsmanns kærenda um umrædda ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. 2. mgr. 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. einnig 8. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þar sem kveðið er á um útreikning kærufrests. Var lögbundinn kærufrestur því að mati ráðuneytisins runninn út í máli þessu áður en ráðuneytinu barst umrætt erindi kærenda, dags. 7. apríl 2025.
Þrátt fyrir ákvæði 34. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, fer um stjórnsýslukæru að öðru leyti samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 5. mgr. ákvæðisins. Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga ber að vísa stjórnsýslukæru frá berist hún að liðnum kærufresti nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar.
Að mati ráðuneytisins verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að með umræddri ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi fylgt upplýsingar um þau skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt þannig að unnt sé að óska eftir því að málið verði tekið til meðferðar hjá stofnuninni að nýju á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga auk þess sem kærendum hafi verið leiðbeint hvað varðar kæruleið til ráðuneytisins.
Í ljósi framangreinds lítur ráðuneytið svo á að hin kærða ákvörðun hafi verið birt með fullnægjandi hætti af hálfu Vinnumálastofnunar og að kærendur hafi ekki sýnt fram á að afsakanlegar ástæður í skilningi 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, séu fyrir því að umrædd stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu að liðnum lögbundnum kærufresti. Að mati ráðuneytisins verður því ekki annað ráðið af gögnum málsins en að kærendur hafi getað kært umrædda ákvörðun Vinnumálastofnunar til ráðuneytisins innan lögbundins kærufrests hafi þeir talið slíka ráðstöfun þjóna hagsmunum sínum.
Þá verður að mati ráðuneytisins ekki ráðið af fyrirliggjandi gögnum í málinu að hagsmunir kærenda séu annars eðlis en almennt á við í sambærilegum málum og því verður að mati ráðuneytisins ekki talið að veigamiklar ástæður mæli með því að stjórnsýslukæran verði tekin til efnislegrar meðferðar hjá ráðuneytinu, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.
Með vísan til alls framangreinds er stjórnsýslukæru kærenda, dags. 7. apríl 2025, vísað frá ráðuneytinu.
Úrskurðarorð
Stjórnsýslukæru, RM pípulagna ehf. og […] dags. 7. apríl 2025, vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar, dags. 6. mars 2025, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá RM pípulögnum ehf., er vísað frá ráðuneytinu.