Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 422/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 422/2024

Þriðjudaginn 29. október 2024

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 10. september 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 19. júní 2024, um að synja umsókn hans um félagslegt leiguhúsnæði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 8. desember 2023, sótti kærandi um félagslegt leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg. Með bréfi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 11. mars 2024, var umsókn kæranda synjað og var sú ákvörðun staðfest af áfrýjunarnefnd velferðarráðs 19. júní 2024.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. september 2024. Með bréfi, dags. 18. september 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst 1. október 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar 3. október 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að ákvörðun Reykjavíkurborgar endurspegli ekki þær krefjandi aðstæður sem hann búi við. Kærandi glími við verulega fjárhagslega erfiðleika þar sem tekjur hans dugi ekki til að tryggja viðunandi húsnæði á almennum fasteignamarkaði. Skortur á stöðugleika í húsnæðismálum hafi mikil áhrif á persónulegan hag kæranda og fjölskyldu hans. Úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis gæfi kæranda færi á að lifa með reisn og dragi úr sálrænu og fjárhagslegu álagi.

Kærandi telji að með því að synja umsókn hans um félagslegt leiguhúsnæði hafi ekki verið tekið tillit til raunverulegrar stöðu hans. Hann óski því eftir að ákvörðun Reykjavíkurborgar verði endurskoðuð.

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kærandi sé X ára gamall einstæður maður. Kærandi sé flóttamaður frá B sem hafi fengið stöðu um alþjóðlega vernd þann 25. febrúar 2021. Dvalarleyfi hans gildi fyrir tímabilið 25. febrúar 2021 til 25. febrúar 2025. Kærandi sé með flogaveiki og blóðsjúkdóm. Hann hafi síðast fengið flogakast seinni hluta árs 2023. Þá hafi kærandi verið að glíma við svefnvandamál og andleg veikindi, svo sem kvíða og þunglyndi en ekki tekist að finna sér meðferðaraðila. Hann hafi þegið fjárhagsaðstoð sér til framfærslu tímabilið 26. febrúar 2021 til 30. apríl 2023. Kærandi hafi byrjað í starfi á þeim tíma og verið í tveimur störfum um tíma sem hafi orðið honum ofviða. Samkvæmt upplýsingum úr staðgreiðsluskrá hafi kærandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun frá 1. nóvember 2023 til dagsins í dag. Þá hafi kærandi fengið greiðslur frá C. 1. desember 2023, 1. janúar 2024, 1. febrúar 2024 og 1. mars 2024. Kærandi sé nú atvinnulaus. Kærandi hafi verið með húsaleigusamning í D frá 1. febrúar 2022 til 29. febrúar 2024. Hann sé nú húsnæðislaus og dvelji hjá vini sínum.

Þann 8. desember 2023 hafi kærandi sótt um félagslegt leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg. Með bréfi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 11. mars 2024, hafi kæranda verið synjað um félagslegt leiguhúsnæði þar sem skilyrði 1. tölul. e. liðar 1. mgr. 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði hafi ekki verið uppfyllt en þar sé kveðið á um að aðstæður einstaklings/hjóna/sambúðarfólks verði að vera metnar til tíu stiga eða meira. Umsókn kæranda hafi verið metin til níu stiga.

Með bréfi, dags. 14. mars 2024, hafi kærandi skotið framangreindri ákvörðun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs og óskað eftir endurskoðun á ákvörðun stigagjafar. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 19. júní 2024 og afgreitt það með eftirfarandi bókun:

„Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti synjun umsóknar um almennt félagslegt leiguhúsnæði og mat starfsmanna á miðstöð Reykjavíkurborgar á stigagjöf vegna umsóknar um almennt félagslegt leiguhúsnæði, sbr. matsblað með reglum Reykjavíkurborgar um almennt félagslegt leiguhúsnæði.“

Um félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavík gildi reglur sem samþykktar hafi verið í velferðarráði þann 13. mars 2019 og í borgarráði þann 2. maí 2019. Reglurnar hafi tekið gildi 1. júní 2019.

Í 2. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði komi fram að almennt félagslegt leiguhúsnæði sé ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og annarra félagslegra erfiðleika. Í 4. gr. reglnanna séu sett fram tiltekin skilyrði sem umsækjandi þurfi að uppfylla til að umsóknin taki gildi. Skilyrði 1. tölul. e. liðar 4. gr. reglna hafi ekki verið uppfyllt en þar sé kveðið á um að aðstæður einstaklings/hjóna/sambúðarfólks verði að vera metnar til tíu stiga eða meira.

Umsókn kæranda hafi verið metin á grundvelli framangreinds matsviðmiðs og hafi niðurstaðan verið sú að kærandi hafi verið metinn til níu stiga. Sumir þættir séu ekki háðir mati, eins og tekjur umsækjanda, en aðrir þættir séu háðir mati, svo sem húsnæðisstaða og félagslegur vandi umsækjanda. Þau atriði sem ekki eigi við í máli kæranda séu staða maka, börn og sérstakar aðstæður barna.

Stig vegna lögheimilis í Reykjavík sé veitt ef umsækjandi hafi átt lögheimili í Reykjavík í meira en 12 mánuði. Kærandi hafi fengið eitt stig undir lögheimili í Reykjavík.

Stig vegna stöðu umsækjanda séu metin út frá aðstæðum umsækjanda og séu gefin núll eða tvö stig. Kærandi hafi verið metinn til núll stiga. Kærandi hafi óskað eftir því að vera metinn til tveggja stiga vegna stöðu sinnar og falla undir matsviðmið: „Langvarandi atvinnuleysi og/eða skert starfsgeta. Málefni umsækjanda eru einnig í vinnslu á miðstöð Reykjavíkurborgar eða umsækjandi er í umfangsmikilli endurhæfingu hjá viðurkenndum aðilum.“ Ekki liggi fyrir staðfesting á að kærandi sé með skerta starfsgetu, svo sem læknisvottorð. Kærandi glími að sögn við þunglyndi og kvíða en hafi ekki sótt sér meðferð vegna þessa. Atvinnuleysi kæranda sé ekki talið langvarandi og þá sé kærandi ekki í endurhæfingu. Kærandi hafi fengið greiddan sérstakan húsnæðisstuðning tímabilið 1. febrúar 2022 til 29. febrúar 2024 en þess fyrir utan séu málefni kæranda ekki til vinnslu á miðstöð. Vegna framangreinds hafi áfrýjunarnefndin ekki talið unnt að veita kæranda auka stig undir stöðu umsækjanda.

Stig vegna tekna séu metin út frá árstekjum umsækjanda. Kærandi hafi fengið eitt stig vegna tekna á ársgrundvelli og falli undir matsviðmið: „Árstekjur eru á bilinu kr. 4.310.974 til kr. 6.632.000.“

Þættir er varði félagslegar aðstæður kæranda séu háðir mati. Stig fyrir húsnæðisstöðu umsækjenda séu metin út frá umfangi húsnæðisvanda og séu gefin núll, eitt, tvö eða þrjú stig. Kærandi hafi verið metinn til þriggja stiga og falli undir masviðmið: „Húsnæðisleysi, gistir t.d. hjá vinum og/eða ættingjum eða er á áfangaheimili og hefur lokið a.m.k. sex mánaða samfelldri dvöl.“ Ekki sé hægt að fá fleiri stig undir þessum lið.

Stig vegna félagslegs vanda umsækjenda séu metin út frá umfangi vanda og séu gefin núll, tvö, fjögur, eða sex stig. Félagslegur vandi kæranda hafi verið metinn til fjögurra stiga og falli undir matsviðmið: „Umsækjandi glímir við fjölþættan vanda sem hefur afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu og/eða færni til að leigja á almennum markaði, þrátt fyrir stuðning félagsþjónustu eða annarra viðurkenndra atriða.“

Í þeim tilfellum þegar umsækjendur séu metnir til sex stiga vegna félagslegs vanda séu málefni barna umsækjanda til meðferðar hjá Barnavernd Reykjavíkur eða upp hafi komið skyndileg alvarleg veikindi sem hafi afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu, þar með talið getu viðkomandi til að finna húsnæði samkvæmt mati ráðgjafa. Það eigi ekki við um stöðu kæranda og því ekki heldur unnt að veita fleiri stig hvað þennan þátt varði.

Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi því talið að staðfesta bæri niðurstöðu miðstöðvar um níu stig samkvæmt matsviðmiðum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði og þar með synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði.

Rétt sé að geta þess að með notkun matsblaðsins sé leitast við að gæta jafnræðis meðal umsækjenda og veita þeim stig á grundvelli atriða sem séu nánar tilgreind í matsblaðinu og stigagjöf taki mið af aðstæðum viðkomandi. Það hafi því verið mat áfrýjunarnefndar velferðarráðs að ekki væri ástæða til að breyta fyrirliggjandi stigagjöf miðstöðvar með vísan til aðstæðna kæranda og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfest synjun starfsmanna miðstöðvar á grundvelli stigagjafar, sbr. 1. tölul. e. liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði.

Með vísan til alls framanritaðs verði að telja að framangreind ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn framangreindum reglum um félagslegt leiguhúsnæði né lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði. Umsókninni var synjað á þeirri forsendu að skilyrði e. liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði væri ekki uppfyllt.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við húsnæðismál, sbr. 1. mgr. 2. gr.

Í XII. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um húsnæðismál. Þar segir í 1. mgr. 45. gr. að sveitarstjórnir skuli, eftir því sem kostur er og þörf er á, tryggja framboð af leiguhúsnæði, félagslegu kaupleiguhúsnæði og/eða félagslegum eignaríbúðum handa þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Samkvæmt 46. gr. laganna skulu félagsmálanefndir sjá til þess að veita þeim fjölskyldum og einstaklingum, sem ekki eru færir um það sjálfir, úrlausn í húsnæðismálum til að leysa úr bráðum vanda á meðan unnið er að varanlegri lausn.

Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á húsnæðismálum einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í reglum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita, sbr. XII. kafla laga nr. 40/1991. Í 2. mgr. 2. gr. reglnanna kemur fram að almennt félagslegt leiguhúsnæði sé ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrðar og lágra launa. Í 4. gr. reglnanna er að finna skilyrði fyrir því að umsókn verði samþykkt á biðlista og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a. til e. liðum 1. mgr. ákvæðisins.

Samkvæmt e. lið 4. gr. skulu umsóknir metnar samkvæmt ákveðnum matsviðmiðum, sbr. fylgiskjal nr. 1 með reglunum. Við lok mats eru reiknuð stig fyrir hvern þátt fyrir sig. Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista skal umsækjandi vera metinn að lágmarki til tíu stiga þegar um er að ræða einstakling líkt og á við í tilviki kæranda.

Í þeim þætti matsins er varðar lögheimili umsækjanda fékk kærandi eitt stig, eða hámarksfjölda stiga sem í boði eru. Staða kæranda var metin til engra stiga sem úrskurðarnefndin gerir ekki athugasemd við. Kærandi óskaði eftir því að vera metinn til tveggja stiga vegna stöðu sinnar og falla undir matsviðmið: „Langvarandi atvinnuleysi og/eða skert starfsgeta. Málefni umsækjanda eru einnig í vinnslu á miðstöð Reykjavíkurborgar eða umsækjandi er í umfangsmikilli endurhæfingu hjá viðurkenndum aðilum.“ Af greinargerð Reykjavíkurborgar má ráða að málefni kæranda séu hvorki í vinnslu á þjónustumiðstöð né sé hann í endurhæfingu.

Kærandi fékk ekkert stig vegna stöðu maka þar sem það á ekki við. Kærandi fékk eitt stig fyrir tekjur á ársgrundvelli þar sem tekjur hans eru á bilinu 4.310.974 til 6.632.000 kr. Í þeim lið matsins sem varðar börn fékk kærandi engin stig þar sem það á ekki við. Húsnæðisstaða kæranda var réttilega metin til þriggja stiga, eða hámarksfjölda stiga sem í boði eru, þar sem hann er húsnæðislaus. Kærandi fékk ekki stig fyrir sérstakar aðstæður barna þar sem það á ekki við. Þá fékk kærandi fjögur stig fyrir félagslegan vanda sem úrskurðarnefndin gerir ekki athugasemd við, enda verður að telja ljóst að aðrir liðir matsviðmiðsins, sem byggja á því að um málefni barna sé að ræða eða skyndileg veikindi og gefa fleiri stig, eigi ekki við um aðstæður hans.

Samkvæmt framangreindu var umsókn kæranda metin til níu stiga og uppfyllti hann því ekki skilyrði e. liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Að því virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að staðfesta beri synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 19. júní 2024, um að synja umsókn A, um félagslegt leiguhúsnæði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta