Hoppa yfir valmynd
Slice 1Created with Sketch.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir - háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra frá 28. nóvember 2021.

Æviágrip

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er fædd í Reykjavík 30. nóvember 1990. Foreldrar: Sigurbjörn Magnússon (fæddur 31. júlí 1959) hæstaréttarlögmaður og Kristín Steinarsdóttir (fædd 1. maí 1959, dáin 12. nóvember 2012) kennari.

Stúdentspróf VÍ 2010. BA-próf í lögfræði HÍ 2015. MA-próf í lögfræði HÍ 2017.

Starfsmaður jafningjafræðslu Hins hússins 2010. Blaðamaður á Morgunblaðinu 20112013. Lögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurlandi 20142015. Varaformaður Æskulýðsráðs 20142016. Laganemi á lögmannsstofunni Juris 2016.

Í stjórn SUS, Sambands ungra Sjálfstæðismanna, frá 2011. Formaður Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, 20112013. Funda- og menningarmálastjóri Orators, félags laganema við HÍ, 20152016. Ritari Sjálfstæðisflokksins 20152019.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður frá 2016 (Sjálfstæðisflokkur).

Allsherjar- og menntamálanefnd 2017 (formaður 2017), efnahags- og viðskiptanefnd 2017, utanríkismálanefnd 20172019 (formaður 20172019).

Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 20172019 (formaður 20172019), Íslandsdeild NATO-þingsins 20172019  (formaður 20172019).

Dómsmálaráðherra frá 6. september 201928. nóvember 2021.

 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum