Hoppa yfir valmynd

Starfshópur um mönnun á hjúkrunarheimilum

Í tengslum við undirritun kjarasamnings Eflingar stéttarfélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) skrifaði fyrrverandi heilbrigðisráðherra undir yfirlýsingu þann 2. október 2024 sem m.a. fól í sér að skipaður yrði starfshópur sem hefði það hlutverk að setja saman tillögu og tímasetta áætlun um hvernig ná mætti fram gæðaviðmiðum um mönnun á hjúkrunarheimilum hér á landi. Starfshópurinn skilaði minnisblaði þar sem lagðar eru  fram ýmsar tillögur að aðgerðum til úrbóta.

Í framhaldi fól heilbrigðisráðherra embætti ríkissáttasemjara að leiða verkefni er varðar fyrr nefnda yfirlýsingu ráðherra frá október 2024 um mönnun á hjúkrunarheimilum. Verkefnið fól í sér að greina stöðu mönnunar á ákveðnum hjúkrunarheimilum og vinna tillögur að hugsanlegum úrbótum sem kann að þurfa að gera varðandi mönnun að höfðu samráði við Eflingu og SFV. Ríkissáttasemjari skilaði loka skýrslu til heilbrigðisráðuneytisins þann 9. maí sl. sem fól í sér greiningu gagna á mönnun ákveðinna hjúkrunarheimila og tillögur að næstu skrefum.

Á grundvelli þessarar vinnu skipar ráðherra hér með starfshóp sem falið er að yfirfara þær tillögur sem fram hafa komið bæði frá þeim starfshópi sem fyrst var skipaður vegna yfirlýsingar ráðherra frá október 2024 sem og skýrslu ríkissáttasemjara með áherslu á að bæta fagmenntun og styrkja starfsfólk heimilanna með menntun, þjálfun og að viðhalda starfsþróun. Í því samhengi verði horft til þjónustusamnings SFV og Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og kröfulýsingar fyrir hjúkrunarrými og dvalarrými. Lokaafurð vinnuhópsins verði tímasett aðgerðaráætlun til að ná þeim aðgerðum sem nauðsynlegt er til að tryggja mönnun á hjúkrunarheimilum til framtíðar bæði hvað snertir fjölda starfsmanna sem og fagmönnun og samsetningu mönnunar. Starfshópurinn getur síðan kallað til fulltrúa annarra haghafa eftir þörfum og verkefnum. 

Starfshópinn skipa

  • Dagmar Huld Matthíasdóttir, án tilnefningar, formaður
  • Elsa B. Friðfinnsdóttir, án tilnefningar
  • Elmar Hallgríms Hallgrímsson, tilnefndur af Sjúkratryggingum Íslands
  • Sigurjón Norberg Kjærnested, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu

Varamenn

  • Anna Kristrún Einarsdóttir, tilnefnd af Sjúkratryggingum Íslands
  • Karl Óttar Einarsson, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu

Starfshópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 23. júní 2025 og skal skila niðurstöðu sinni 29. ágúst . 

 

Tímabundnar nefndir
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta