Fagráð Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar er skipað samkvæmt 21. gr. reglugerð nr. 787/2007 um heilsugæslustöðvar.
Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar leiðir faglega þróun innan heilsugæslu á landsvísu, vinnur að samræmingu verklags og samhæfingar milli fagfólks á heilsugæslustöðvum, gæðaþróun og framförum í heilsugæslu í samráði við heilbrigðisstofnanir sem reka heilsugæslustöðvar og sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðvar. Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar starfar innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Heilbrigðisráðherra skipar fagráð Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar sem vinnur að stefnumörkun og tryggir tengsl við aðrar heilbrigðisstofnanir sem reka heilsugæslustöðvar. Fagráðið starfar innan Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar.
Fagráðið skipa
- Emil Lárus Sigurðsson, forstöðumaður Þróunarmiðstöðvarinnar, formaður
- Sigríður Dóra Magnúsdóttir, tiln. af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
- Örn Ragnarsson, tiln. af Heilbrigðisstofnun Norðurlands
- Anna Guðríður Gunnarsdóttir, tiln. af Heilbrigðisstofnun Suðurlands
- Íris Dröfn Björnsdóttir, tiln. af Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
- Hulda Gestsdóttir, tiln. af Heilbrigðisstofnun Vesturlands
- Pétur Heimisson, tiln. af Heilbrigðisstofnun Austurlands
- Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, tiln. af Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
- Sigríður Sía Jónsdóttir, tiln. af heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri
- Ragnar Pétur Ólafsson, tiln. af heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands
- Oddur Steinarsson, tiln. af heilsugæslustöðvunum Salahverfi, Urðarhvarfi, Höfða og Lágmúla
Fagráðið er skipað af heilbrigðisráðherra frá 27. nóvember 2018 til næstu fjögurra ára.