Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum
Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum er viðurkenndur úrskurðaraðili skv. lögum um úrskurðaraðila á sviði neytendamála, nr. 81/2019. Nefndinni starfar samkvæmt samþykktum Neytendasamtakanna, Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu og fjármála- og efnahagsráðuneytisins frá 1. janúar 2025. Nefndina skipa þrír nefndarmenn og þrír til vara. Einn nefndarmaður skal skipaður af Neytendasamtökunum, einn af Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og einn nefndarmaður af fjármála- og efnahagsráðherra og skal hann jafnframt vera formaður nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Varamaður formanns er formaður í forföllum hans.
Formaður nefndarinnar er Dr. Guðmundur Sigurðsson.
Varaformaður er Sóley Ragnarsdóttir.
Heimasíða nefndarinnar er nefndir.is. Þar má finna nánari upplýsingar um nefndarmenn, starfshætti nefndarinnar og úrskurði.