Þingmannanefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir
Hinn 19. mars 2025 var undirritað samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda. Á grundvelli þess hefur mennta- og barnamálaráðherra skipað stýrihóp um eftirfylgni samkomulagsins. Þingmannanefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir hefur það hlutverk að styðja við verkefnið og þá sem sinna verkefninu á vettvangi Stjórnarráðsins og stuðla að framgangi þeirra verkefna sem samkomulagið lýtur að.
Nefndin er skipuð til eins árs frá 16.6.2025 til 15.6.2026 og er þannig skipuð:
Aðalmenn:
- Jón Gnarr, formaður, tilnefndur af þingflokki Viðreisnar
- Kolbrún Baldursdóttir, tilnefnd af þingflokki Flokks fólksins
- Kristján Þórður Snæbjarnarson, tilnefndur af þingflokki Samfylkingarinnar
- Ingibjörg Isaksen, tilnefnd af þingflokki Framsóknarflokksins
- Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, tilnefnd af þingflokki Miðflokksins
- Jón Pétur Zimsen, tilnefndur af þingflokki Sjálfstæðisflokksins
Varamenn:
- Grímur Grímsson, tilnefndur af þingflokki Viðreisnar
- Sigurður Helgi Pálmason, tilnefndur af þingflokki Flokks fólksins
- Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, tilnefnd af þingflokki Samfylkingarinnar
- Stefán Vagn Stefánsson, tilnefndur af þingflokki Framsóknarflokksins
- Ingibjörg Davíðsdóttir, tilnefnd af þingflokki Miðflokksins
- Rósa Guðbjartsdóttir, tilnefnd af þingflokki Sjálfstæðisflokksins
Starfsmaður nefndarinnar er Óttarr Ólafur Proppé sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneyti.